Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.04.1965, Blaðsíða 36

Skólablaðið - 01.04.1965, Blaðsíða 36
- 178 - - Jamm. Ég lauk stúdentsprófi héðan árið 1915 og sigldi samsumars til Kaup- mannahafnar. Það var eini staðurinn, sem hægt var að fara til. Stráðið var skollið á, fyrri heimsstyrjöldin, og það var eiginlega ekki í annað hus að venda. Annars hefði eg ef til vill farið til Þyzka- lands, af þvi að það var bezt að stunda það nám, sem eg ætlaði að stunda, að stunda það 1 Þyzkalandi, eg á við gömlu malin. Þjoðverjar voru einna lengst komnir þa á þeim sviðum. En sem sagt, ekki var hægt að fara þangað, svo eg for til Kaupmannahafnar. - Hvers vegna völduð þer gömlu mál- in? Ég hugsa til allra þeirra Mennt- skælinga, sem skjálfa frá hvirfli til ilja, er þeir sjá ut-setningu eða ablatívus absólutus. - Ja, mór þótti strax mjög gaman að latínunni. Ég byrjaði að læra hana hjá honum sera Friðriki Friðrikssyni, hann kenndi mer undirstöðuatriðin, þegar eg var 1 þriðja bekk. Latínan varð uppá- haldsgrein frá byrjun. Ég ákvað strax að lesa hana eftir stádentspróf. En þá var skylda í Katipmannahöfn að lesa grisku með, og eg kunni ekkert í henni og varð að taka hana frá byrjun. En mér fannst hun fullt eins skemmtileg og latínan og eiginlega nauðsynlegt að kunna hana líka. Nu, og svo varð eg að taka þriðju greinina með, og þá valdi eg fyrst frönsku, en sá fram á, að hun myndi verða of erfið viðureignar, eg hefði ekki lært nógu mikið i henni her heima, svo eg tók ensku. Það var ágætt að hafa þetta svona, tvö gömul, klassásk mál og svo eitt nymal. - En teljið þer, að gömlu málin eigi framtáð fyrir ser? - Þau eru nu yfirleitt á undanhaldi nuna i heiminum. Það er svo margt, sem knyr a. Margt annað, sem knyr á. En eg held, að flestir, sem vit hafa á, telji, að það se tjón fyrir menninguna, að hætt er að kenna mikið grásku. Hun er að sjálfsögðu alls staðar kennd í há- skólum, en er nokkuð á undanhaldi, þó að víðast hvar seu fornmáladeildir. Ástandið er einna bezt hjá Hollendingum, þeir kenna bæði latínu og grásku, jafnvel láka i stærðfræðideildum. Hann ber netta, hvíta hendi að munni sór og ræskir sig. - Vilduð þer koma á gráskukennslu hór í Menntaskólanum? - Ég er hræddur um, að fáir vildu taka hana. Ef her kæmi einhvern tíman fornmaladeild, þá yrði latínan aðalfag, en gráskan kjörgrein fyrir frönsku eða þyzku. já, maður gæti hugsað ser grásku sem kjörgrein. Hann ræskir sig enn. - En raunvísindin eru sem sagt að sigra? - Ég veit ná ekki. Það er ná dálítið upp og niður, en óg býst ná frekar við þvi. Margir telja það ver farið og berj- ast a moti þessum sputnikhugum, eða hvað þeir ná heita. - En eru nemendur kannski jafn hæfir til hvoru tveggja? - Ja, menn eru ná alltaf svolítið mis- jafnlega lagaðir fyrir þetta. ÞÓ má segja, að flestir geti ná lært hvort sem er. Ég man það sjálfur frá minni skóla- tib, að óg helt, að eg gæti aldrei nokk- urn timan lært geometríu. Ég skilaði alltaf geometríuprófum blönkum, reikn- aði bara algebrudæmi. En í fjórða bekk sa eg, að þetta var alls ekki svo slæmt, og þa var geometrían eiginlega opin fyr- ir mer líka. Siminn hringir, og rektor ris á fætur og svarar. Hann ber sig vel, þrátt fyr- ir haan aldur og mikið starf, hreyfingar lóttar og mjákar, og fánar gólffjalir Þjóðfundarhássins láta ekki á sór kræla. Mer kemur í hug ummæli nemenda nokk- urs, er hann kom af leynifundi með rektor, furðu brattur og sagði reigings- lega: Hann var að skamma mig fyrir óstundvási. Hvað sagði hann, spurði ein- hver viðstaddra. Ekkert, bókstaflega ekkert. Það þýðir ekkert fyrir hann að skamma mann. Hann getur ekki ávítað fólk, hann er svo mikið goðmenni. Rektor leggur heyrnartólið niður og gengur að borðinu, tínir nokkur laus blöð saman i bunka og leggur þau til hliðar. Þá sezt hann í stolinn. - Hvenær fóruð þer að kenna? - Ég kom utan arið 1923. Ég tafðist. Ég var átta ár við nám, en þar af tvö ár á skrifstofu. Ég vann á íslenzku. stjórnarráðsskrifstofunni í Höfn. Það var gríðarlega mikið að gera a stríðsárun- um. Ég var á skrifstofunni á árunum 1917 til 1918, þangað til Tsland varð sjálfstætt ríki fyrsta desember. Þa kom

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.