Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.04.1965, Blaðsíða 45

Skólablaðið - 01.04.1965, Blaðsíða 45
- 187 - skarar skríða. Á leið sinni gegnum þorpið tilkynnti hann vinum sinum hvað hann hefði i hyggju. "Ertu alveg bandbrjalaður? " sögðu vinirnir og ósköpuðust mikinn. En strákur svaraði engu, heldur helt brosandi niður að vatninu og ýtti bátnum á flot. Sífean stillti hann hundinum i skut og reri af stað. Þegar hann var kominn spölkorn frá landi, fór fólkið 1 þorpinu að safnast saman 1 fjörunni, alveg eins og hann hafði buizt við. Amma hans og lögregluþjónn inn hrópuðu ut á vatnið og skipuðu honum að snua aftur, en auðvitað gegndi hann / því* engu. Þess í stað stóð hann upp 1 bátnum og byrjaði að rugga honum. Fyrst lak örlítið inn a hliðunum, en skyndilega fór báturinn alveg um koll og vinirnir tveir þeyttust með miklum gusugangi ut á vatnið. Og þarna busluðu þeir, meðan folk ið 1 fjörunni tók andköf af spenningi. En nú var hundurinn ekki alveg sjalfum ser sam- kvæmur. Hvort sem það hefur nu verið vegna veltingsins í bátnum eða hinnar skyndi- legu flugferðar ut á vatnið, þá var hann orðinn gjörsamlega trylltur af hræðslu. Hann gleymdi drengnum í sturlun sinni og synti sem óðast \ land. Og þau urðu endalok husbónda hans. Daginn eftir jarðarförina sótti amma stráksins gamlan framhlaðning sem mað- urinn hennar sálugi hafði notað í fyrri heimsstyrjöldinni (kindabyssan var biluð ), og leiddi hundsræksnið ut undir hlöðuvegg. Það furðulega var að hvutti gaf ekkert hljóð frá ser frekar en gamla konan. Hann var meira að segja grafkyrr, þegar kalt byssuhlaupið snerti enni hans ; hafði máski nokkuð öran andardrátt, en það er hlut- ur sem ekki er hægt að áfellast hann fyrir. Ágúst Guðmundsson

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.