Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.04.1965, Blaðsíða 33

Skólablaðið - 01.04.1965, Blaðsíða 33
ENN eitt ár hefur bætzt við sögu bóka- safnsins fþöku, vonandi lokaárið í* leið- indakafla þeirrar sögu. Næsta vetur mun skorið ur um það, hvort Safninu verður sýndur sá sómi, sem þvi ber innan veggja þessa skóla, og þvá fenginn aftur fyrri verustaður í* sal íjpöku, eða hvort það verð- ur látið kúldrast afram í* nuverandi husa- ky nnum. NÚ er það orðið að raunveruleika, sem aðeins var lausleg hugmynd í* haust, að gerður hefur verið salur í* kjallara nýja skólahússins þar sem kaffisala mun fara fram, og unnt er að halda dansleiki ekki veigaminni en 1 íþöku. Þetta var reynt fyrir skömmu, og virtist mer ekki fara verr um fólk 1 hinum nýju salarkynnum en á böllum 1 fþöku áður. Þarna komust a. m. k. aliir fyrir á dansgólfi, sem vildu, en hinir gátu notið tónlistarinnar 1 sætum sinum. Hins vegar kom það ósjaldan fyr- ir, að hvoruj;t var gerlegt 1 íþöku. Vúkjum nu að störfum vetrarins. Fyrst er að nefna útlán, sem fóru fram á þriðjudagskvöldum. Var framkvæmd með svipuðu sniði og undanfarna vetur. Ætla eg, að fiestir þekki það skipulag, eða öllu heldur skipulagsleysi. Lítið sem ekkert eftirlit hefur verið með þvú hvort menn skiluðu aftur bókum, sem þeir höfðu feng- ið að láni, enda ekki hægt um vik, þar eð engar reglur voru til að fara eftir. NÚ er hins vegar 1 ráði að bæta úr þessu með því* að setja ákveðnar reglugerðir um út- lán. Skömmu fyrir jol færði bókaverzlun Kron Safninu álitlega bókagjöf. Voru 1 henni aðallega útlendar bókmenntir. Gjöf- inni fyl^di eins konar landabref af tunglinu, þ. e. ljosmyndir af Mána gamla bæði bak og fyrir (kortið er tjekkneskt) og eru ymis kennileiti merkt inn a ljosmyndirnar. Hef- ur Kron okkar beztu þakkir fyrir gjöfina. Geta ber þeirrar nýbreytni, sem ákveð- ið hefur verið að taka upp, en hún er, að Safnið kaupi og láni út talplötur þær, sem nú tíðkast svo mjög, en það eru hljóðritan- ir á upplestri skálda og rithöfunda á verk- um sínum. Til að byrja með, hafa verið keyptar fjórar plötur, sem Plötusafnið átti af þessarri gerð. Ef undirtektir nemenda verða góðar, verður að sjálfsögðu haldið áfram á þessarri braut, keyptar hljóðrit- anir á leikritum 1 flutningi úrvalslista- manna o.s.frv. , en töluvert mun vera til af slíkum hljómplötum 1 verzlunum. Þá er komið að þvá, sem merkast verð- ur að telja 1 vetrarstarfsemi Safnsins, en það er skráning alls Safnsins og gerð spjaldskrár. Mál þetta hefur verið nokkuð lengi á döfinni oj; m.a. verið rætt nokkrum sinnum her í Skolablaðinu undanfarin ar. Þar kom, að málið var borið upp við rekt- or. í marz s.l. gerðist það, að rektor kvaddi íþökunefnd a sinn fund og tilkynnti henni, að hann hefði fengið sórmenntað fólk til að aðstoða við skráningu bókasafns- ins, þau Sigriði Guðmundsdóttur og Gunnar Karlsson, en bæði hafa þau m.a. lokið prófi í* bókasafnsfræðum frá Háskóla íslands. Var þá þegar tekið til við skráninguna, og hefur Gunnar unnið að henni dag hvern á- samt Sigráði, en nefndarmenn 1 íþökunefnd eftir því” sem skyndipróf og aðrar aðstæð- ur hafa leyft. í sambandi við skráninguna var rektor svo velviljaður að láta Safninu 1 te geymslu- herbergi úti í* nýjahúsi, og voru fluttar þangað bækur, sem legið höfðu í* óhirðu uppi á lofti gamla skólahússins. Kom þá 1 ljós, að Safnið átti þar margt fágætra bóka og tímarita, en eftir er að athuga það nanar. Áformað er að halda skráningu Safnsins áfram 1 sumar og ráða þá fleira fólk til starfans ef þess gerist þörf, þannig að spjaldskráin geti orðið tilbúin að hausti og skemmtilegt væri, að Safnið kæmist um leið aftur 1 öndvegi í* Iþöku. í aprxl 1965 F. h. íþökunefndar - Sigurþór Aðalsteinss.

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.