Skólablaðið - 01.04.1965, Page 42
- 184 -
DULSPEKI SOCIALISMANS
Það, sem hefur engan stuðul
er ekki til. -
Við menn
við byggjum líkamlega tilveru okkar
á efnisbundnum stuðli :
Jörðinni.
Og við menn
við byggjum andlega tilveru okkar
á efnisbundnum stuðli :
Höfðinu.
Og þannig var það i gær,
og þannig er það 1 dag
og þannig mun það vera á morgun.
Og flestir okkar manna
eigum fátt
vegna hins efnisbundna stuðuls :
Hinir ríku.
En það, sem hefur engan stuðul
er ekki til. -
MYRKRATAL
Hver ert þu , sem ásækir hugsun mína
en leyfir mer ekki að hugsa til þín?
Og hver ert þu, sem ásækir líkama minn
en leyfir mer ekki að snerta þig ?
Ég ákalla þig
þá dýr
sem ásækir
án þess að þekkjast.
Ég þekki hatrið, sem ásækir mig
því græt eg.
Ég þekki löngunina til að kága
því" fyrirlít eg.
Ég þekki geðveikina, sem ásækir mig
því* dey eg.
Og svo ert það þá
sem ásækir mig
en eg þekki ekki.
Ásæktu mig
en sýndu þig ekki
þá lifi eg kannske !
Vilmundur
Gylfason