Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.04.1965, Page 43

Skólablaðið - 01.04.1965, Page 43
185 - ÉG sit við gluggann og horfi á svert- ingjana mína, þar sem þeir bogra við vinnu sína 1 garðinum. Ég sagði mína, þvi að þeir eru mínir frá hvirfli til ilja. Ég get látið drepa þá ef mer sýnist, eg á þa, þeir eru þrælarnir mínir. Það er hart að eiga svona marga menn, bera ábyrgð á þeim fyrir Guði og mönnum, að þeim líði vel, hafi nóg að borða og sjá um, að þeir seu hamingju- samir. Það er líka hart að mega ekki gefa þeim frelsi, fræða þa, tala við þa eins og menn. En það er verst, að þeir lita á mig eins og böðul eða dreka, hræðast mig, hlýða mer, en bölva mer a bak. Ég gerði tilraun til að breyta þessu. Einn þrællinn minn var við vinnu x garðinum. Hann kraup i einu beðinu og reytti illgresi. "Goðan daginn, það er heitt finnst þer ekki. " Hann virtist ekki taka eftir mer. "Þar sem eg átti heima var alltaf kalt. Þar snjóar á veturna. " Hann leit a mig, síðan í kringum sig, svo aftur á mig. "Þu veizt hvað snjor er? " Hann hélt áfram að vinna. "Snjor er hvít korn, sem. . . " Ég tok á allri kunnáttu minni í* tungumálinu og reyndi að koma svertingjanum til að skilja mig. Þá birtist umsjónarmaðurinn. "Hvað vill herra minn 1 þessa garð- holu. » Mer flaug 1 hug ormur. "Ég var að tala við svertingjann, er hann mállaus. " Umsjónarmaðurinn sneri sár að svert- ingjanum, hvessti á hann augun-----hvá- líkt hatur. "Þu átt að svara herra mínum, þegar hann spyr þig. " Svertinginn glotti. Hnuar umsjónarmannsins hvítnuðu og hann hvæsti: "Þu verður barinn 1 kvöld. " Mer brá. "Þer ætlið þó ekki að berja hann fyrir að svara mer ekki. " "Jú, hví* ekki. " "En það var eg sem yrti á hann að ó- þörfu, hann vildi ekki hætta vinnunni. " "Þetta er þrjózka, láttu mig þekkja þa, svertingjar eru þrjózkari en asnar. Svipan er það eina sem dugar. Svipan eða uppreisn og uppreisn er dauði. " "Ég vil þetta ekki, eg banna þetta. Þú færð ekki að berja hann. " Hann ætlaði að þræta, en hætti við það, sneri sór við og skundaði þrjózku- lega á braut. "Hvíta svín. " Ég leit á svertingjann-----. Hann hólt áfram að reyta illgresi. Himinninn var blár. Konan min kom út á svalirnar og bað mig að koma og finna sig. Líklega hef eg virt hana fyrir mór með stolti, þeg- ar ég gekk upp eftir. Þá var óg hreyk- inn af að vera maðurinn hennar, að eiga 1 vændum að verða pabbi. Þa fann óg ekki, að hún var eins og hinar. Þá var óg hrifinn af líkama hennar, augum hennar, þessum augum, sem sögðu mór heil ævintýri. En tíminn tók á rás. MÓr finnst þetta hafa skeð fyrir örstuttri stundu. HÚn kom ser beint að efninu. "Umsjónarmaðurinn var herna hja mer. " Ég leit á hana. "Hann sagði mer frá þessu í garðin- um------óg er ekki að ásaka þig, þetta kom líka fyrir mig, en svona á ekki að fara að svertingjum. Það er eins og að rótta skrattanum litla fingurinn. Ef þeir komast einhverntíma upp á lagið að fá Frh. á bls. 190.

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.