SunnudagsMogginn - 20.02.2011, Page 4

SunnudagsMogginn - 20.02.2011, Page 4
4 20. febrúar 2011 Marina Berlusconi hefur varið föð- ur sinn með kjafti og klóm í póli- tískum erfiðleikum hans og segir herferðina gegn honum „óbæri- legar nornaveiðar“. Við Silvio Ber- lusconi, forsætisráðherra Ítalíu, blasa nú réttarhöld vegna ásak- ana um að hann hafi keypt sér blíðu ólögráða stúlku auk þess að misbeita valdi sínu á ráðherrastóli til að fá hana lausa úr fangelsi. Í 15 ár hafi andstæðingar föður hennar beitt öllum tiltækum með- ulum til að klekkja á honum, en á undanförnum mánuðum hafi árás- irnar ágerst og orðið verulega óheiðarlegar. „Reynt er að eyði- leggja hann sem manneskju með rógburði og sem kaupsýslumann með löglausum dómum.“ Roberto Saviano, höfundur bók- arinnar Gómorru, sem fjallar um mafíuna í Napolí og hefur selst í tveimur milljónum eintaka á Ítal- íu, hrósaði saksóknurunum, sem ákváðu að höfða mál gegn Berlus- coni. Athygli vakti að Marina veittist að honum og kallaði lof Savianos „hrylling“. Marina var ekki aðeins að gagnrýna einn af vinsælustu höfundum Ítalíu. Hann er á mála hjá Mondadori og hún er því útgefandinn hans. Óbærilegar nornaveiðar Roberto Saviano fékk að heyra það frá Marinu Berlusconi. Í talía er ekki konungdæmi, en þegar rætt er um hver muni taka við af hinum að- þrengda forsætisráðherra Ítalíu, Silvio Ber- lusconi, leita menn ekki langt yfir skammt, heldur horfa til elstu dóttur hans. Marina Ber- lusconi er 44 ára gömul og hefur þegar tekið við stjórn viðskiptaveldis föður síns. Viðskipta- tímaritið Forbes telur hana meðal 50 valdamestu kvenna heims eina ítalskra kvenna og setur hana í 48. sæti. Silvio Berlusconi hefur fleiri pólitísk líf en kötturinn og því er of snemmt að afskrifa hann nú, þótt aldrei hafi hann staðið jafn tæpt og nú. Enginn arftaki er í augsýn í flokki hans, Fólk frelsisins, eftir að Gianfranco Fini, sem nefndur hafði verið krónprinsinn, hvarf á braut. Flokk- urinn stendur því andspænis stórkostlegum vandræðum finnist ekki leiðtogi og þingmenn hans hafa tekið vangaveltum um að Marina taki við af honum fagnandi. Marina Berlusconi þykir á margan hátt lík föð- ur sínum og hún styður hann af krafti. Hún var aðeins þrítug þegar hún varð staðgengill föður síns í sæti formanns stjórnar eignarhaldsfélagsins Fininvest og hafði þá hætt laganámi í miðjum klíðum. Frá árinu 2005 hefur hún verið yfir veldinu. Meðal eignanna eru fjölmiðlafyrirtækið Mediaset, forlögin Mondadori og Einaudi, kvik- myndafyrirtækið Medusa, knattspyrnufélagið AC Mílanó og tryggingafyrirtækið Mediolanum. Þess utan situr hún í stjórn og er hluthafi í viðskipta- bankanum Mediobanca. Silvio Berlusconi hefur sagt að dóttir sín sé sérlega viljasterk. Því hefur verið haldið fram að starfsfélagar hennar kalli hana keisaraynjuna þegar hún heyri ekki til og ekki sé hyggilegt að ætla að standa í vegi fyrir henni. Marina er dótt- ir Berlusconis af fyrra hjónabandi. Sagt er að þegar Veronica, dóttir Berlusconis af seinna hjónabandi, gerði tilkall til þess að fá að stjórna forlaginu Mondadori hafi hún mætt harðri and- spyrnu systur sinnar. Þegar ágreiningur systr- anna virtist ætla að fara úr böndunum greip fað- irinn í taumanna og kvaddi fjölskylduna til sáttafundar á Sardiníu. Barbara, sem er með há- skólapróf í heimspeki, fékk stöðu hjá AC Milan. „Ákvarðanir um AC Milan eru ekki á mínu færi, en það mætti bæta fjárhagsstöðuna,“ sagði Mar- ina. Fjölmiðlar túlkuðu þetta þannig að á meðan faðirinn stjórnaði félaginu gæti hann eytt millj- ónum í knattspyrnumenn, en þar kæmi að hún myndi binda enda á bruðlið. Marina Berlusconi birtist iðulega í slúð- urblaðinu Chi, sem reyndar er í eigu fjölskyld- unnar. Í fyrra birti blaðið mynd af henni ber- brjósta á ströndinni. Þegar Chi birti jólamyndir af Berlusconi-fjölskyldunni sat Marina í heið- urssætinu gegnt föður sínum við fjörutíu manna borð. Marina er gift Maurizio Vanadia. Hann var áð- ur fyrsti dansari við ballettinn í Scala í Mílanó og heillaðist Marina af honum þegar hún sá hann á sviði. Hann er 49 ára og dansferillinn á enda. Þau eiga saman tvo syni, Gabriele, sem er átta ára, og Silvio, sem er sex ára. Nafn Marinu hefur oft verið nefnt þegar rætt hefur verið um arftaka Berlusconis. „Ég veit að nafn Marinu liggur í loftinu,“ sagði Stefania Prestigiacomo umhverfisráðherra sem um árabil hefur notið trausts forsætisráðherrans. „Og það er gott, hún er mjög hæf kona.“ Pierluigi Berlusconi, bróðir hennar, sem situr við stjórnvölinn í Mediaset, sló á þetta með orð- unum: „Við ætlum ekki að koma hér á kon- ungdæmi.“ Fjölskyldur geta verið lífseigar í póli- tík í lýðræðisríkjum, nægir að nefna nöfnin Kennedy og Bush. Þá var til þess tekið að í upp- hafi ársins dró Jean-Marie Le Pen, leiðtogi franska hægriflokksins Þjóðfylkingarinnar, sig í hlé og rétti Marine dóttur sinni stjórnartaumana. Orðrómurinn um Marinu Berlusconi lifir áfram góðu lífi og mun gera það á meðan Marina Ber- lusconi gerir ekki annað til að kveða hann niður en kalla hann vangaveltur. Fetar Marina í fót- spor föður síns? Marina Berlusconi er ein voldugasta kona Ítalíu Marina Berlusconi stýrir viðskiptaveldi föður síns. Er pólitíkin næst? AP Vikuspegill Karl Blöndal kbl@mbl.is „Marina yrði martröð vinstri manna,“ stóð í fyrirsögn hægra blaðsins El Tiempo í janúar. „Eftir 20 ár af Silvio nú 20 ár til við- bótar af Marinu í vændum?“ spurði vikublaðið Oggi, sem ekki telst á hægri vængnum. „Ef allt fer á versta veg hjá Berlusconi getur hann í raun aðeins treyst einhverjum úr fjölskyldunni,“ segir stjórnmálafræðingurinn Roberto D’Alimonte. „Af börn- unum hans fimm hefur hún ein kjarkinn til að vinna verkið. Hún hefur sömu þrjóskuna og pabbi hennar. Hún hefur kannski ekki hæfileika hans til að ná til fólks, en það má laga.“ Martröð fyrir vinstri menn ILVA Korputorgi, Blikastaðavegi 2-8, 112 Reykjavík, sími 522 4500 www.ilva.is mánudaga - föstudaga 11-18:30 laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18 einfaldlega betri kostur ELIZABETH. Junior stóll, glær. Ýmsir litir. H63 cm. 7.900,-/stk FYRIR BÖRNIN

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.