SunnudagsMogginn - 20.02.2011, Side 6

SunnudagsMogginn - 20.02.2011, Side 6
6 20. febrúar 2011 Hákarla-Jörundur í Hrísey er með merkari sægörpum Íslandssög- unnar. Hann aflaði manna mest og hirti mikinn hákarl, enda dró hann til sín í skiprúm valda hákarla- menn, á meðan hann var formaður. Á útmánuðum 1874 bar við að mörg hákarlaskip silgdu út af Eyja- firði, og tóku þau stefnuna vestur og fram á Skagagrunn. Getur nú ekki um ferð þessara skipa að öðru leyti en því, að þau lögðust öll við hákarl hingað og þangað á grunninu. Bar nú ekkert til tíðinda fyrr en allt í einu, að veður tók að breytast og gengur hann að með öskrandi stórhríð og mikið veður. Sáu þá há- karlamenn sér ekki annað fært en losa um stjóra og leita til lands í hríðinni. Lögðu menn skipin við í garðinn, – upp á Siglufjörð og inn á Eyjafjörð – allir nema Jörundur. „O, jæja, hróin mín og hróin mín,“ sagði hann þegar búið var að vinda inn stjórafærið og útbúa skipið, Hermóð, til ferðar í hríðinni. „O, já hróin mín – o – það er bezt að við snúum rassinum í veðrið.“ Með þessu átti hann við að hann slægi skipi sínu undan veðrinu, og hélt hann alla leið vestur fyrir Horn- strandir, og svo inn á Ísafjörð. Urðu allir hásetar Jörundar forviða yfir þessu uppátæki svo snemma vetr- ar. Liggur Jörundur nú inni á Ísafirði í marga daga. Fréttir hann ekkert til hinna hákarlaskipanna í langan tíma; og rekur nú hafís upp að Horni og fyllir allan Húnaflóa og Skagafjörð. Segir ekkert af há- karlaskipunum annað en það, að þau náðu öll landi í garðinum. Urðu þau innlukt af ís og komst ekkert þeirra út af Eyjafirði, fyrr en komið var fram á sumar. Engin spurði neitt til Jörundar við Eyjafjörð í langan tíma, og töldu allir hann af. En það er af Jör- undi að segja, að hann hélt skipi sínu út í hákarl eftir sem áður þar frá Ísafirði – einhverstaðar langt norður í hafi, líklega á Halamiðum. Heimild: Hákarlalegur og há- karlamenn. „O, jæja, hróin mín og hróin mín“ Kempan Hákarla-Jörundur á stalli sínum í Hrísey. Þ að var engu líkara en sjálfur Há- karla-Jörundur væri genginn aftur á San Siro-leikvanginum í Mílanó í vikunni. Gamli sægarpurinn úr Hrísey var á sinni tíð ekki þekktur fyrir að taka bráð sína neinum vettlingatökum, sneri hákarlana niður með berum höndum, væri sá gállinn á honum. Leitun er á slíkum köppum. Það var Gennaro Gattuso, miðvellingurinn knái í liði heimamanna, AC Milan, sem brá sér í gervi Jörundar. Eða var hann yfirhöfuð í gervi? Gennaro, Jörundur, er þetta ekki sama nafnið? Hákarlinn sem Gattuso lagði hendur á og stangaði í þokkabót var gamla kempan Joe Jordan, sem er í þjálfarateymi gesta þeirra Mílunga í Meistaradeild Evrópu, enska félags- ins Tottenham Hotspur. Þar hitti skrattinn sannarlega ömmu sína en Jordan, sem verður sextugur á árinu, þótti með allra hörðustu sparkendum á sinni tíð. Hefur raunar pappíra upp á það, hið virta dagblað The Times hafði hann í 34. sæti á lista sínum yfir mestu harð- jaxla sparksögunnar árið 2007. Efstur á þeim lista var enginn annar en Andoni Goikoetxea, Slátrarinn frá Bilbao. Fyrir ókunnuga er þessi hákarlalíking ekki úr lausu lofti gripin en Jordan hlaut ungur viðurnefnið „skolturinn“ ellegar „hákarlinn“. Bæði tók viðurnefnið mið af beinskeyttum leikstíl kappans en öðrum þræði var þetta þó kaldhæðni. Það vantaði nefnilega í Jordan framtennurnar á þessum árum. Ekki er ástæða til að fjölyrða um ágreining- inn sem reis Gattusos og Jordans í millum, um hann hefur verið ítarlega fjallað í vikunni. Sjaldgæft er að sjá menn umturnast á velli með þeim hætti sem Gattuso gerði, engu tauti varð við kappann komið. Hann hafði allt á hornum sér en vildi af einhverjum ástæðum ekki jafna sakirnar við leikmenn Tottenham, þess vegna sneri hann sér að aumingja Jor- dan. Ein skýringin er sú að báðir tala þeir „skosku“ en á því íðilfagra máli mun deilan hafa farið fram. Gattuso lék sem kunnugt er til skamms tíma með Rangers í Glasgow og á skoskættaða konu. Við skulum vona að hann ræði að jafnaði ekki við hana á þessum nót- um. „Á mér engar málsbætur“ Umboðsmaður Gattusos sagði í vikunni að Jordan hefði látið þung orð falla í garð skjól- stæðings síns, fyrir og eftir leikinn, en á föstudag vísaði Jordan þeim ásökunum á bug. Telja verður Gattuso til tekna að hann iðraðist gjörða sinna strax um kvöldið. „Ég missti stjórn á mér. Ég á mér engar málsbætur og mun taka refsingu minni möglunarlaust. Ég var spenntur á taugum, vildi ekki skattyrðast við leikmennina og þess vegna sneri ég mér að honum. Ég hefði betur látið það ógert.“ Merkilegt hvað aðstæður geta skipt miklu máli. Það þótti merki um hugrekki og hreysti þegar Jörundur gamli bauð hákörlunum byrginn norður í ballarhafi en þegar Gennaro frændi hans gerði slíkt hið sama á sparkvell- inum þar syðra, frammi fyrir fjölda mynda- véla, er það ótvírætt merki um heigulshátt. Hann er vandrataður meðalvegurinn í þessari tilveru! Aganefnd evrópska knattspyrnusambands- ins (UEFA) liggur nú undir feldi en Gattuso hefur verið kærður fyrir „grófa andíþrótta- mannslega hegðun“. Von er á úrskurði á morgun, mánudag. Lágmarksrefsing við broti af þessu tagi er þriggja leikja bann en flestir reikna með að bann Gattusos verði lengra, jafnvel á bilinu sex til átta leikir í mótum á vegum UEFA. Enda þótt tilefnið hefði mátt vera skemmti- legra er gaman að kastljós heimsins hafi að nýju beinst að Joe gamla Jordan. Hann var litríkur miðherji á sinni tíð. Fyrst kvað að honum í gullaldarliði Leeds United í upphafi áttunda áratugarins, þar sem hann barðist um sæti í liðinu við ekki ómerkari menn en Mick Jones og Allan Clarke. Hákarlinn lærði fyrir vikið snemma að bíta frá sér. Frá Elland Road lá leið hans á Old Trafford, þar sem hann lék við ágætan orðstír í þrjú ár með köppum á borð við Mickey Thomas, Lou Macari og Arthur Albiston. Af einhverjum ástæðum var lítið um liðið fjallað á síðum hins geðþekka tímarits Vogue. Frá United lá leið Jordans til Ítalíu, þar sem hann gekk einmitt til liðs við AC Milan. Hefur hann alla tíð borið félaginu og borginni vel söguna. Skyldi sú afstaða hafa breyst í vik- unni? Upprisa Hákarla- Jörundar Gattuso fór í vöðlur sægarps- ins úr Hrísey Gennaro Gattuso starir ofan í hákarlskjaftinn á San Siro í vikunni. Joe Jordan er ekki týpan sem lætur vaða yfir sig. ReutersVikuspegill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Joe Jordan hefur víða komið við á þjálf- araferli sínum. Hann vann fyrst með Harry Redknapp hjá Ports- mouth og ílentist þar eftir að Redknapp hvarf á braut í fyrra skiptið. Starfaði undir stjórn Velimirs Zajec og Alains Perrins og stjórnaði liðinu meira að segja í tveimur leikjum árið 2005 áð- ur en Redknapp sneri aftur. Jordan fylgdi Redknapp til Totten- ham 2008. Hollur Redknapp

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.