SunnudagsMogginn - 20.02.2011, Blaðsíða 13

SunnudagsMogginn - 20.02.2011, Blaðsíða 13
20. febrúar 2011 13 J ens Urup listmálari lést á heimili sínu í Danmörku 21. nóvember sl. Hann varð rúmlega níræður að aldri, fæddur 25. september 1920 nálægt Esbjerg á Jótlandi. Hann fluttist ungur til Kaupmannahafnar þar sem hann lagði stund á málaralist, fyrst í einkaskóla en síðan á Konunglegu listakademíunni í Kaupmannahöfn, þar sem hann lagði stund á málverkið meðal annars hjá Kræsten Iversen og freskó- málverk hjá Elof Risebye. Hann sýndi verk sín fyrst á Haustsýningunni í Kaup- mannahöfn 1945 og tók síðan þátt í ótal sýningum, meðal annars í Evrópu og Bandaríkjunum, og hélt fjölmargar einkasýningar, þá síðustu árið 2001 þeg- ar hann sýndi stór verk í tveimur sölum á Den Frie í Kaupmannahöfn. Á Íslandi hafa verk hans verið sýnd margoft, bæði á einkasýningum, til dæmis í Norræna húsinu 1975, gler- listaverk á Kjarvalsstöðum 1985 og á samsýningum, meðal annars í boði Sep- temhópsins. Á Akademíunni kynntist hann og lærði freskólistina og handverkið og vann á árunum 1949-1958 við endurgerð eða endursköpun Sonnes Frise sem prýðir veggi Thorvaldsenssafnsins á Slots- holmen í Kaupmannahöfn. Thorvald- senssafnið var byggt rúmri öld áður, 1839-48 eftir uppdráttum arkitektsins Bindesböll, sem nýtti sér Vagnaskála konungsins sem undirstöðu fyrir safna- húsið, heilsteypta byggingu sem umlyk- ur lokuð garðrými. Frísa Sonnes, sem sýnir heimkomu Thorvaldsens frá Róm með allar styttur sínar að gjöf til safns- ins, umlykur allan úthring bygging- arinnar. Hún hafði látið á sjá og verið endurgerð áður en var á þessum árum endurgerð á ný undir stjórn Axels Salto og við þetta verk vann Jens Urup og vann sér þar inn mikla reynslu við gerð slíkra verka. Ástæða þess að safni þessu og Thorvaldsen er gert svo hátt undir höfði hér er einföld. Við endurgerð frís- unnar var gerð prufa af andlitsmynd Thorvaldsens þar sem hann stendur í bátnum á leið til bryggjunnar við safnið. Þessa mynd vann Jens Urup og átti alla tíð síðan en færði hana árið 1990 Mikla- bæjarkirkju að gjöf frá þeim hjónum, honum og eiginkonu hans Guðrúnu Sig- urðardóttur listmálara, ættaðri úr Skagafirði. Thorvaldsen má því hitta fyr- ir í freskómálverki á þessum tveimur stöðum, á safnbyggingu hans á Slots- holmen í miðri Kaupmannahöfn og á vegg í kirkjuskipinu á Miklabæ í Skaga- firði. Annað verk Jens og Guðrúnar má sjá í Skagafirði í kirkjunni á Sauðárkróki en glugga hennar prýða glerlistaverk sem þau hjón unnu saman 1974 og 1985. Gluggarnir í kirkjuskipinu sjálfu sýna tímabil og hátíðir kirkjuársins og í nýja kórnum eru sakramentin teiknuð í gler- inu. Glerin í forstofunni tákna Lífsins tré og Lífsins vatn. Verk þeirra má því sjá hér heima á op- inberum stöðum, auk þess sem fjöldi verka er í einkaeign hér heima, en hér áttu þau og eiga enn stóran frændgarð, þar sem fleiri þekktir íslenskir listamenn koma við sögu. En starfsvettvangur Jens Urup var fyrst og fremst í Danmörku og kirkjur, opinberar byggingar, söfn og salir af ýmsu tagi, meðal annars á fljót- andi stórbyggingum, eins og stórum far- þegaskipum í millilandasiglingum, njóta verka hans sem alla tíð einkenndust af handverksþekkingu, hvort sem efnivið- urinn var málverk, gler eða góbelínvefn- aður, og ekki síður djúpri og einlægri til- finningu og skilningi fyrir lit og formum og því verki sem unnið var að á hverjum tíma, hverjum stað og hverri stundu. Honum auðnaðist löng starfsævi, farsælt hjónaband og hann naut hamingju í sínu einkalífi auk virðingar og vináttu í sam- félagi og félögum listamanna í sínu heimalandi. Hér heima eignaðist Jens Urup marga vini í hópi listvina, listamanna og fjöl- skyldu. Minningarnar sem hann skildi eftir munu lifa samhliða þeim verkum sem eftir hann liggja. Höfundur er arkitekt. Jens Urup minnst Thorvaldsen má því hitta fyrir í freskó- málverki á þessum tveimur stöðum, á Slotsholmen í Kaupmannahöfn og í kirkjuskipinu á Miklabæ í Skagafirði. Stefán Örn Stefánsson Hér heima eignaðist Jens Urup marga vini í hópi listvina, listamanna og fjölskyldu. Steindur gluggi í Hornborg-kirkju. JOB REFERENCE : 07/11 Start date: Summer 2011 Deadline for application: 13 March 2011 Interviews: March/April 2011 Job title : Officer Location: Brussels Type and duration of appointment: fixed-term contract of three years. If considered desirable, an additional fixed-term contract of three years may be offered. The successful candidate will carry out work and projects in the areas of Information Management, ICT systems and user support in particular. Role description: Administration is responsible for strategy, planning, procurement, implementation and maintenance of the complete Information and Communication tech- nology (ICT) infrastructure of the Authority. The main responsibility is day-to-day operations of our Information Management System (Hummingbird) as well as other ICT systems mainly based on Microsoft products. The successful applicant shall carry out work and projects in the areas of Information Management, ICT Systems and user support. For example: Monitor compliance with manuals and information management principles as well as fulfilling needs for statistical reporting, draft official documents (letters, decisions, contracts, tender documents etc) and manuals, backup for System Supervisor. Essential: l Relevant work experience with document manage- ment systems and administration in a Microsoft based environment. Experience with Hummingbird Document Management is an advantage l Relevant higher education in the field of ICT, com- puter sciences, information sciences or equivalent l Familiarity with the infrastructure used by the Authority, based on standard Microsoft products including Windows Server, Exchange Server, SQL Server, Windows 7 workstations and MS office 2007 l Efficiency, service attitude and reliability to match the multiple areas of function of the position, including ability to relate effectively with staff at all levels, will be required l Excellent command of written and spoken English (the working language of the Authority) l Good organisational and communication skills l Flexibility and ability to work both independently and in a team Desirable: l Knowledge of EFTA languages (Norwegian or Icelandic in particular) l Interest and experience in international affairs, especially European issues l Microsoft Office Specialist (MOS) l Experience in Net and Java environments Performance indicators: The performance indicators for this position include oral and written communication and presentation skills, analytical skills and problem-solving, quality and result orientation, compliance with internal rules, process- es and instructions, as well as sociability and team- work, autonomy, motivation to work, transfer of knowledge and advanced ICT skills. Conditions : The position is placed at grade A4/1 of the salary scale, starting at € 81.591,72 per year. Depending on, inter alia, the candidate’s family status, allowances and benefits may apply. Favorable tax conditions apply. Overview of conditions at http://www.eftasurv.int/ about-the-authority/ vacancies/recruitment- policy. While its staff members shall normally be nationals of one of the three EFTA States party to the EEA Agreement, the Authority will also consider other applications, primarily those of nationals of the other States that are party to the EEA Agreement. The applicants must be entitled to full citizen rights and be of good repute. Application must be filled in and sent online at the following address: https://jobs.eftasurv.int Questions regarding general information and/or the post may be posed to Mr Ólafur Aðalsteinsson, Deputy Director of Administration, tel +32 (0)2 286 18 95. Questions regarding the recruitment process may be posed to Mrs Sophie Jeannon, HR Assistant, on +32 (0)2 286 18 93. EFTA Surveillance Authority webpage: www.eftasurv.int The EFTA Surveillance Authority monitors compliance with European Economic Area rules in Iceland, Liechtenstein and Norway, enabling them to participate in the European internal market. In monitoring and enforcing the EEA Agreement, the Authority has powers that correspond to those of the European Commission. The Authority is based in Brussels and operates independently of the EFTA States. The Authority is led by a College which consists of three members appointed by the EEA EFTA States. ICT Officer

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.