SunnudagsMogginn - 20.02.2011, Side 18

SunnudagsMogginn - 20.02.2011, Side 18
18 20. febrúar 2011 Hjónin á Önundarhorni undir Eyjafjöllum, Sigurður Þór Þórhallsson og Poula Kristín Buch, glíma við náttúruna, stjórnvöld og banka í kjölfar hrunsins og eldgossins. Þ að er nánast ómerkjanlegt á vegskiltinu hvar Önundarhorn er staðsett, þar sem það er sand- blásið eftir öskufokið af Eyja- fjallajökli. En ef ekið er niður meðfram Svaðbælisá er það fyrsti bærinn sem verð- ur fyrir manni. Eins og vant er, er vel tekið á móti gestum í sveitinni, kaffi í bollum og sykraðar rúsínur í skál, en ekkert sykrað við umræðuna. „Við erum í sömu stöðu og þegar eld- gosið byrjaði,“ segir Sigurður Þór Þór- hallsson ómyrkur í máli. „Við erum í raun í biðstöðu – það er algjör óvissa um hvað verður um búskap á þessari jörð.“ Enn flæðir leirinn yfir Á Önundarhorni er stunduð naut- griparækt og mjólkurframleiðsla. En Svaðbælisá og Bakkakotsá eru stærsta vandamálið sem steðjar að búskapnum. „Nú hækkar og hækkar farvegurinn í þeim og það hefur áhrif á grunnvatnsstöðuna,“ segir Sigurður. „Eins og þú manst kom leirflóð í árnar og það flæddi yfir tún og fyllti skurði. Nú er sagan að endurtaka sig hægt og bítandi, því fokið sem gerði nokkra daga í desember skóf sandinum í efstu skurði, fyllti þá og svo berst hann áfram niður í túnin, þannig að fleiri hundruð metrar eru bara sandskaflar. Þetta er því að fyllast smám saman aftur út af framburði Svaðbælisár. Og við erum á nákvæmlega sama stað og í gosinu, ef eitt- hvað er, þá er óvissan meiri.“ Hann þagnar eitt augnablik. „En við getum víst ekki kennt bank- anum um það, þó að það væri nú gott,“ klykkir hann út með og hlær. „Þó að hann sé máttugur,“ skýtur Poula Kristín Buch inn í, eiginkona Sigurðar. „Flestir bændur eru að spekúlera í að kaupa áburð, en það er hægt að gleyma því á þessari jörð – í raun er allt að verða ein mýri,“ heldur Sigurður áfram. „Við getum því ekki tekið eina einustu ákvörð- un um nokkurn hlut. Maður kaupir ekki áburð fyrir fimm milljónir og svo eyði- leggst það. Auk þess er ekki hægt að keyra um efstu túnin, sem liggja næst ánni. Þau eru gegnsósa, í raun ónýt. Og búskap- urinn byggist á því að fá hey. Nágranni okkar endurræktaði eitt túnið, en bara á nokkrum dögum í desember, í roki með ösku, varð það ónýtt. Það þarf að vinna allt upp aftur.“ Hann bendir upp í fjallið. „Snjórinn er besti vinur okkar – og okkar helsta von að hann haldist fram yfir Jónsmessu.“ „Sumarið var svo gott,“ segir Poula, „að maður var orðinn bjartsýnn. Á meðan gróðurinn var urðum við lítið vör við öskuna. En fyrir jól og aftur í janúar vökn- uðum við upp við vondan draum, það sást varla á milli húsa í öskumistri. Þá áttuðum við okkur á að þetta var ekki nærri búið. Þegar ég keyrði heim úr vinnu varð ég að stoppa uppi á þjóðvegi, því ég lenti öskus- kafrenningi, svo það buldi á bílnum. Það stórsér á tækjum og húsum og traktorinn þurfti að fara í dýra viðgerð. Viðlagasjóður bætir hinsvegar aðeins tjón sem verður þegar askan fellur, en kallar það óbeint Ekkert dregið úr óvissu frá eldgosi Það mæðir ekki lítið á ábúendum á Önundar- horni undir Eyjafjöllum, fyrst kom bankahrun og svo eldgos. Tekið var hús á Sigurði Þór og Poulu, sem segjast enn búa við algjöra óvissu. Texti: Pétur Blöndal pebl@mbl.is Ljósmyndir: Ragnar Axelsson rax@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.