SunnudagsMogginn - 20.02.2011, Page 21
20. febrúar 2011 21
Staða margra bænda á Suðurlandi er alvarleg, en þó
ekkert mjög ólík því sem aðrar atvinnugreinar standa
frammi fyrir, að sögn Runólfs Sigursveinssonar, ráð-
gjafa hjá Búnaðarsambandi Suðurlands.
„Þetta gengur mjög hægt,“ segir hann. „Það eru að
verða tvö og hálft ár frá því ósköpin dundu yfir og því
miður eru búin mörg sem ekki hafa neina fótfestu
ennþá, hvernig málum þeirra reiði af í bönkunum. Það
hefur gengið hægt að fá varanlegar lausnir, sér-
staklega fyrir bændur.“
Þol fólks ekki endalaust
Þær lausnir sem hafa verið í boði eru að mati Run-
ólfs ekki ákjósanlegar. „Það sem er til dæmis í boði
hjá Arion banka gagnvart skuldsettum búum er eitt
rekstrarlán, sem miðast við hvað reksturinn getur tek-
ist á við af greiðslum, og síðan töluverður stabbi af
öðrum lánum, sem eru sett sem biðlán til þriggja ára,“
segir hann.
„Í raun og veru veit enginn hvað gerist eftir það. Það
er mjög erfitt fyrir þessar fjölskyldur að takast á við
stöðuna þegar óvissan er svona mikil um hvað fram-
tíðin ber í skauti sér. Það setur allar fjárfestingar og
uppbyggingu til framtíðar í uppnám. Og fólkið sem
lendir í þessu er kynslóðin sem ber framleiðsluna uppi
næstu áratugi, en það er ljóst að sum þessara búa
munu ekki gera það.“
Ef svo heldur áfram sem horfir er líklegt að einhver
bú muni leggjast af. „Þol fólks er ekki endalaust að
takast á við óvissu,“ segir Runólfur. „Ég hygg að ein-
hverjar fjölskyldur muni einfaldlega segja sem svo að
nú sé nóg komið og leita sér að öðrum störfum.“
Svo bættist eldgosið ofan á bankahrunið. „Áhrifa-
svæði eldgossins er ekki mjög stórt að umfangi, en
það hefur raunveruleg áhrif á allmörg bú á einn eða
annan hátt,“ segir Runólfur.
„Bjargráðasjóður hefur komið til móts við ákveðið
tjón sem varð, veitt aðstoð varðandi heykaup og í sum-
um tilvikum sinnt flutningum á gripum á önnur svæði.
En þessi fjárhagslegi skellur sem búin urðu fyrir er ekki
allur kominn fram og við vitum ekki hver hann verður.
Allvíða þarf að takast á við endurræktun túna, sem
vonandi fæst stuðningur til að takast á við í gegnum
Bjargráðasjóð.“
Gerist ekki á einu vori
– Eru til fjármunir þar?
„Það er rétt að taka fram, að stjórnvöld veittu fjár-
muni í Bjargráðasjóð sérstaklega út af gosinu. En það
er ljóst að sá tímarammi sem þar var miðað við teygir
sig yfir lengri tíma. Það var miðað við að tjónamati yrði
lokið á vordögum og bætur þá greiddar út, þ.e. reglu-
gerðin um Bjargráðasjóð rennur út í apríl. Ég vonast til
að hægt verði að ná fram breytingu á því og framlengja
tímann um eitt ár til viðbótar.“
– Í þessu sem öðru þarf fólk að búa við óvissu, t.d.
á Önundarhorni?
„Þetta er allt til bráðabirgða og þau þurfa að takast
á við endurræktun í heild sinni á jörðinni. Það gerist
ekki á einu vori.“
Óvissan mikil um framtíðina
að þetta gerist ekki árið 2011 – við höfum svo mikið af tækjum og tólum til að bjarga okkur,“ segir Sigurður. „En ég er orðinn hugsi yfir því, hvort það sé framkvæmanlegt.“