SunnudagsMogginn - 20.02.2011, Síða 31
20. febrúar 2011 31
E
dda Arnljótsdóttir leikkona fæddist 22. nóvember 1964. Hún er
dóttir hjónanna Lovísu Sigurðardóttur menntaskólakennara og
Arnljóts heitins Björnssonar hæstaréttadómara.
Edda ólst upp í Reykjavík og var æskuheimilið í Hjálmholti. Hún
er næstelst fjögurra systkina, en eldri systir hennar er Þórdís og yngri systk-
inin eru þau Sigurður og Ingibjörg.
Hún gekk í grunnskóla í Æfinga- og tilraunaskóla Kennaraháskóla Íslands
(ÆSKHÍ), sem flestir kölluðu einfaldlega Æfinga-
skólann. Að því loknu lá leiðin í Menntaskólann í
Reykjavík þaðan sem hún útskrifaðist árið 1984.
Tveimur árum síðar hóf Edda nám við Leik-
listarskóla Íslands þaðan sem hún útskrifaðist
1990 og hefur hún starfað hjá Þjóðleikhúsinu síðan.
Þar hefur hún leikið í fjölmörgum sýningum og er
meðal leikara í verki Arthurs Miller, Allir synir
mínir sem frumsýnt verður 4. mars næstkomandi,
auk þess sem hún leikur í Ballinu á Bessastöðum
og Íslandsklukkunni um þessar
mundir.
Eiginmaður Eddu er Ingvar E. Sig-
urðsson leikari og eiga þau börnin
Áslák sem er tvítugur, Snæfríði sem er
19 ára, Sigurð sem er á þrettánda ári og
Hring sem er að verða tólf.
Þriggja ára þokkadís brosir sínu
blíðasta hjá ljósmyndaranum.
Sjálfsmynd við Dettifoss árið 1991. „Við Ingvar fórum í frábæra brúð-
kaupsferð hringinn í kring um landið með frumburðinn Áslák.“
Systkinin. F.v. Þórdís, Edda, Ingibjörg og Sigurður. „Mamma
tekur alltaf myndir af okkur með stjörnuljós um áramót.“
Sigurður og Hringur, tveggja og eins árs, glaðhlakkalegir að
leika sér saman í rimlarúminu haustið 2000.
Alla tíð hjá
Þjóðleikhúsinu
Myndaalbúmið
Edda Arnljótsdóttir leikkona opnar
myndaalbúmið sitt að þessu sinni.
„Við Ingvar ásamt Snæfríði og Áslák í Herdísarvík 1995.
Við fórum oft þangað á sumrin þegar börnin voru lítil.“
„Við Guðrún Gísladóttir lékum í
Krabbasvölunum árið 1997. Það
tók tvo tíma að setja skallann á.“
„Úr Sjálfstæðu fólki en myndin er tekin þegar við fórum á
heimssýninguna í Hannover árið 2000.“ F.v. Arnar, Edda í
hlutverki Finnu, Bergur Þór, Herdís og Steinunn Ólína.
Átta ára í fjölskyldumyndatöku eftir að öll systkinin voru komin til sög-
unnar. F.v. Lovísa með Ingibjörgu, Edda, Þórdís og Arnljótur með Sigurð.
Nýstúdent með foreldrum sínum
úti í garði í Hjálmholtinu.
Ferming 9.
apríl 1978.
Í París 1982 ásamt Hörpu Arnardóttur. „Við vorum fjórar
vinkonur að vinna í Þýskalandi og skelltum okkur til Par-
ísar.“
Við útskriftina með vinkonunum úr menntaskólanum. F.v.
Edda, Birna, Ásta, Harpa og Halla Margrét.
Í Gróttuvitanum
árið sem frum-
burðurinn
fermdist, 2004.