SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 20.02.2011, Qupperneq 38

SunnudagsMogginn - 20.02.2011, Qupperneq 38
H ún ólst upp við kröpp kjör en giftist ung 89 ára gömlum millj- arðamæringi og lifði óhamingjusöm til æviloka. Líf Playboy- módelsins Önnu Nicole Smith var harmleikur frá upphafi til enda og dularfullur og ótímabær dauði hennar skók heimsbyggðina. Það kom því ekki á óvart að leikhúsmenn skyldu hafa löngun til að leggja út af lífi hennar enda þótt fæstir byggjust kannski við að það yrði efni í óperu. Tónskáldið Mark- Anthony Turnage og textahöfundurinn Richard Thomas voru á öðru máli og ópera þeirra, sem heitir einfaldlega Anna Nicole, var frumsýnd á fjölum Konunglegu óperunnar í Lundúnum fyrir helgina. Sýningin fær misjafna dóma. Gagnrýnandi The Independent er nokkuð hrifinn, gefur sýningunni þrjár stjörnur af fimm mögulegum. Hann er jákvæður í garð tónlistar og texta og segir sýninguna kraftmikla og sjónræna. Honum þykir Eva- Maria Westbroek fara vel með hina ungu og saklausu Önnu Nicole en hvetur hana til að sleppa betur fram af sér beisl- inu þegar líður á sýninguna. Hlut- verkið sé safaríkt og ef til vill taki það Westbroek tíma að vaxa inn í það. Gagnrýnand- anum þykir sagan á löngum köflum átakanleg, einkum lánist höfundum að draga upp dapurlega mynd af dauða sonar Önnu Nicole, Daniels. Harmakvein móðurinnar minna hann helst á Dídó Purcells. „Rétt efni á réttum tíma,“ segir í niðurlagi um- sagnarinnar. „Anna Nicole dregur Bandaríkin fyrir dóm: Verkið minnir okkur á að við höfðum allt, en köstuðum því á glæ. Hún er ekki bara tragísk kvenhetja: hún er ris og fall hins vestræna óhófs í sjálfu sér. Vandinn er bara sá að þessi ópera er fullmeðvituð um það.“ Óperurýnir The Guardian er ekki eins jákvæður. Gefur sýningunni aðeins tvær stjörnur. Hann býsnast yfir hamaganginum kringum uppfærsluna og þykir aðstand- Teitinni lýkur alltaf, segir móðir Önnu Nicole Smith í nýju óperunni sem frumsýnd var í Lundúnum fyrir helgi. Það voru svo sannarlega orð að sönnu. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Anna Nicole Smith heitin. Reuters Teitinni lýkur alltaf Eva-Maria Westbroek, sem fer með titilhlut- verk, leyst út með blómum í leikslok. 38 20. febrúar 2011 V erðbólgan var á yfirsnúningi og atvinnulíf nærri þroti þegar ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar tók við völdum vorið 1983. Strax var gripið til róttæktra ráðstafana, meðal annars setningar bráðabirgðalaga sem tóku launavísitölu úr sam- bandi. Hins vegar hækkuðu lánin og framfærsla áfram og var í því efni talað um misgengi. Fólk sem var að koma þaki yfir höfuðið taldi sig hlunnfarið og stofnaði Sigtúnshópinn, með Ögmund Jónasson í forystu. Lögum sem afnámu samningsrétt var mótmælt víða, meðal annars með undirskriftasöfnun á vegum launþegahreyfingarinnar sem 35 þús- und manns tóku þátt í. Fjölmennur útifundur var haldinn á Austurvelli þar sem listar söfnunarinnar voru afhentir. Er myndin hér til hliðar af þeim atburði. „Eru ekki heimilisföng þeirra sem skrifuðu undir með?“ voru við- brögð Steingríms Hermannssonar forsætisráðherra þegar hann tók við listunum. Í ævisögu ráðherrans og víðar hefur komið fram að ætlun Steingríms hafi verið að senda þeim sem skrifuðu nöfn sín á listann bréf, útskýra þar nauðsyn laganna og að tilgangurinn helgaði meðalið. „Átti að búa til svartan lista í stjórnarráðinu? Gera samræmda skrá yf-Steingrímur Hermannsson tekur við undirskriftalistanum úr hendi Ásmundar Stefánssonar. Morgunblaðið/Kristinn Myndasafnið 11.10. 1983 Hvar eru heimilisföngin? Frægð og furður

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.