SunnudagsMogginn - 20.02.2011, Page 41
20. febrúar 2011 41
LÁRÉTT
1. Fer lítillega upp hól vegna peninga. (9)
4. Flug jurta að lífverum. (10)
8. Belja í ofsa er að útskýra of mikið. (7)
9. Tap í skák í hluta skákborðs er mælitæki. (7)
10. Ílát með erlendum gögnum og línu er á lista yfir
fólk. (9)
13. Skemma bænahús með fræðigrein. (10)
14. Eftir umsagnir um verk drapst Mar. (8)
15. Rík af því að snúa baki við töframanni. (5)
16. Settu snauða í að láta í ljós á flóknari hátt. (7)
17. Söngur sveitar sem fjallar um sveit. (10)
20. Fimm eða herbergi þarf í stofnun. (10)
24. Seiði sem Lars fann við Glerá. (8)
25. Árar fá eitthvað frá ertum. (8)
27. Hefur fanginn kúrsinn? (8)
28. Hreyfi hljómsveitir með tækjum notuðum í verk-
smiðjum. (8)
30. Upp flokkur í fjarlægt hérað. (8)
32. Spilltust er ég þegar ég flækist í flötum. (13)
33. Klumpar eru ekki í krónu. (6)
34. Dreifa fyrir Elías og drepa í leiðinni. (9)
LÓÐRÉTT
1. Herma eftir fyndni? (9)
2. Pardusdýr missir saur fyrir skreytta. (5)
3. Hjali startar einhvern veginn vegna krydds. (11)
5. Erlendir skornir og settir saman aftur. (7)
6. Kvalin sat rugluð á svæði. (9)
7. Drykkur óþokka. (5)
9. Hey! Hefur ekki TM fundið konu. (7)
11. Samþykkt af einbeittu. (7)
12. Fíli tel ég aftur það að gera sem minnst. (7)
15. Sker fyrir slæmar. (6)
18. Gan með titla og mikilvægt tæki. (9)
19. Ger ofn og menn úr ónothæfum. (10)
20. Binda blautt og fullgilda. (9)
21. Hálfgerð unun með glingur hjá ungmennum. (9)
22. Besti hluti stórhýsis er sú sem er hvorki lóðrétt
né lárétt. (7)
23. LI-tákn er það sem gerir háan aldur sýnilegan.
(9)
26. Frekar sífelldur en hálfgerð frjáls dama. (8)
29. Peningalaus stólpi. (5)
31. Ræna úr „The Waste Land“ eftir T.S. Eliot. (5)
Verðlaun eru veitt fyrir rétta
lausn krossgátunnar. Senda
skal þátttökuseðilinn ásamt úr-
lausninni í umslagi merktu:
Krossgáta Morgunblaðsins,
Hádegismóum 2, 110 Reykja-
vík. Frestur til að skila úrlausn
krossgátu 20. febrúar rennur
út 24. febrúar. Nafn vinningshafans birtist í
blaðinu 27. febrúar. Heppinn þátttakandi hlýtur
bók í vinning. Vinningshafi krossgátunnar 13.
febrúar er Valdís Björgvinsdóttir, Lækjargötu 32,
Hafnarfirði. Hún hlýtur í verðlaun bókina Týnda
rósin eftir Serdar Özkan. Ugla gefur út.
Krossgátuverðlaun
26. Reykjavíkurskákmótið sem
hefst hinn 9. mars nk. er elsti
reglulegu alþjóðlegi viðburð-
urinn sem ber nafn höfuðborg-
arinnar. Mótið er fyrir löngu
orðið þekkt stærð í skákheim-
inum og er nú haldið ár hvert.
Það fór fyrst fram í Lídó árið 1964
og hálfrar aldar afmæli verður
því fagnað árið 2014. Aldamóta-
árið 2000 fór það í fyrsta sinn
fram í Ráðhúsi Reykjavíkur sem
verður vettvangur þess nú. Þátt-
takan virðist ætla að slá öll met;
170 skákmenn eru skráðir til
leiks, þar af 108 erlendir skák-
menn frá meira en 30 löndum.
Mótið er öllum opið og yngstu
íslensku þátttakendurnir eru sjö
og átta ára gamlir. Í framtíðinni
gætu Reykjavíkurskákmótin haft
burði til þess að keppa við sterk-
ustu opnu mótin þau sem fram
fara á Gíbraltar og í Moskvu.
Munurinn liggur helst í því að
mótshaldarar þar reisa alls kyns
stigagirðingar.
Í A-flokki Aeroflot-mótsins
sem lauk í Moskvu á miðviku-
daginn var gert ráð fyrir að þátt-
takendur hefðu a.m.k. 2.550 elo-
stig. Mótið hefur verið kjörinn
vettvangur fyrir unga og metn-
aðarfulla skákmenn. Að þessu
sinni létu ýmsir fastagestir sig þó
vanta. Þekktasti keppandinn var
Gata Kamsky, sem eins og skák-
unnendur vita gerðist banda-
rískur ríkisborgari eftir opna
New York-mótið 1989 og tefldi
um FIDE – heimsmeistaratit-
ilinn við Karpov sjö árum síðar.
Á síðasta ári vöktu tveir
skákmenn frá Víetnam mikla
athygli og annar þeirra, Le
Quang, sigurvegarinn frá því í
fyrra var aftur mættur til leiks
og aftur hafði hann sigur en
þurfti þó að deila 1. verðlaunum
eftir að hafa náð vinningsfor-
ystu þegar skammt var til loka:
1.-3. Le Quang, Vitiugov og
Tomashevsky báðir frá Rúss-
landi 6½ v.(af 9) 4. – 10.
Khismatullin, Yangvi, Rods-
htein, Kasimdzhanov, Kamsky,
Mamedov og Cheparinov 6 v.
Keppendur voru 86 talsins.
Gata Kamsky byrjaði vel en í
5. umferð var hann bókstaflega
skotinn í kaf af áðurnefndum Le
Quang og í sjöttu umferð biðu
hans sömu örlög er hann mætti
lítt þekktum kínverskum skák-
manni sem vann þar einn
glæsilegasta sigur þessa öfluga
móts. Nafn hans tónar ágætlega
við þá bráðsnjöllu leiki sem
hann finnur eftir að byrjuninni
sleppir:
Aeroflot open 2011;
Gata Kamsky – Liren Ding
Frönsk vörn
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Rf6 4.
e5 Rfd7 5. f4 c5 6. Rf3 Rc6 7. Re2
Be7 8. c3
Heimsmeistarinn Anand
byggði stöðu sína upp svipað í
nokkrum þekktum skákum við
Alexei Shirov.
8. … 0-0 9. Be3 f6 10. g3 Db6
11. Dd2 fxe5 12. dxe5 Hd8 13. Bh3
d4! Upphafið að snarpri atlögu.
14. Bf2 d3! 15. Rc1
15. Dxd3 má svara með 15. …
Rdxe5! o.s.frv.
Rf8 16. b3 Da6 17. a4 b5 18. 0-0
Bb7 19. Ha2 b4 20. c4 Ra5 21. Be3
Rxc4!
Hárrétt fórn því að svartur
getur myndað öflugan peðaher á
drottningarvængnum.
22. bxc4 Dxc4 23. f5 exf5 24.
Bxf5 Dd5 25. Bxd3 c4 26. Bb1 Dc6
27. De1 Rg6 28. Haf2 Rxe5 29.
Re2
29. … Hd3!
Annar glæsilegur leikur.
Rybka „mælir með“ 29. … Rxf3+
ásamt 30. … Dxa4. 30. Red4 Dd5
31. Bxd3 Rxd3 32. Dd2 Rxf2 33.
Hxf2 Hf8 34. h4 c3 35. Dd3 Bc5!
Hvítur getur sig hvergi hrært
þó hann sé manni yfir. Leppunin
eftir skálínunni a7-g1 ræður úr-
slitum.
36. Bf4 Hd8 37. Be5 He8 38.
Bf4 He1+! 39. Hf1 Dxf3! 40. Dxf3
Bxd4+
– og Kamsky gafst upp. Hann
gaf sig ekki og vann þrjár síðustu
skákirnar.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Stóru opnu mótin
í Moskvu, Gíbraltar
og Reykjavík
Skák
Nafn
Heimilisfang
Póstfang
Krossgáta