SunnudagsMogginn - 20.02.2011, Page 44

SunnudagsMogginn - 20.02.2011, Page 44
44 20. febrúar 2011 The Good Psychologist – Noam Shpancer bbbnn Þessi bók segir frá góðum sálfræðingi, eins og heiti hennar ber með sér, ónefndum sálfræðingi sem hefur komið líf- inu í fastar rökréttar skorður og beitir fræðunum við dagleg samskipti hvort sem það er við sjúk- lingana á sófanum, nemendurna í kvöldskól- anum eða konuna í lífi sínu. Á daginn kemur að það er ekki hægt að skipa málum á svo einfaldan hátt, mannleg samskipti eru nefnilega ekki rök- rétt og fyrirsjáanleg og sá sem maður áttar sig síst á er maður sjálfur. Smám saman molnar undan heimsmynd sálfræðingsins góða og fljót- lega eftir að hann tekur að sér nektardansmey sem getur ekki dansað nakin verður ljóst að framundan er árekstur milli sálfræðingsins og einstaklingsins sem er á bak við fræðin. Shpancer er sjálfur sálfræðingur og fyrir vikið er fullmikið af sál- greiningu í bókinni og persónur klisjukenndar. Að því sögðu er þetta forvitnileg bók og siðferðisglíma söguhetjunnar trúverðug. The Imperfectionists – Tom Rachman bbbmn The Imperfectionists segir sögu dagblaðs í and- arslitrunum og um leið sögu fólksins sem vinnur á því blaði eða vann eitt sinn á því. Bókinni er skipt í kafla sem hver um sig er eins og smásaga, en saga blaðsins, sem bandarískur auðkýfingur stofnsetti í Rómarborg (blaðið er gefið út á ensku), hnýtir kaflana saman, aukinheldur sem persónur í bókunum skarast. Öll eru þau óham- ingjusöm, hvert á sinn hátt, og setur svip sinn á frásögnina að þau lifa að meira og minna leyti á óhamingju annarra, á að skrifa frásagnir af harmleikjum eins og Rachman rekur svo snyrtilega – þegar árásin á tvíturnana er gerð kemur það sér vel að ritstjórnin er fullmönnuð vegna fréttar af fjöldamorði í menntaskóla. Sú frásögn undirstrikar hve Rachman þekkir vel til blaðamennskunnar þar sem hryllingur er daglegt braut og hótfyndni skjól þeirra sem um þurfa að véla. Bókin er hugvitssamlega saman súrruð, skipan hverrar frásagnar úthugsuð og fléttan raknar upp á skemmtilega hátt undir það síðasta þegar það rennur upp fyrir lesandanum hvers vegna blaðið varð til á sínum tíma – sprottið úr óhamingju nema hvað. Árni Matthíasson arnim@mbl.is Erlendar bækur 30. janúar – 12. febrúar 1. Candida sveppasýk- ing – Hall- grímur Þor- steinn Magnússon / Salka 2. Máttur viljans – Guðni Gunnarsson / Salka 3. Léttir réttir Hagkaups – Frið- rika Hjördís Geirsdóttir / Hagkaup 4. Utangarðsbörn – Kristina Ohlsson / JPV útgáfa 5. Prjónaklúbburinn – Kate Ja- cobs / JPV útgáfa 6. Svar við bréfi Helgu – Berg- sveinn Birgisson / Bjartur 7. Detox – Helen Foster / Vaka-Helgafell 8. Skólaljóð – Ýmsir höfundar / Námsgagnastofnun 9. Blóðhófnir – Gerður Kristný / Mál og menning 10. Danskennarinn snýr aftur – Henning Mankell / Mál og menning Frá áramótum 1. Léttir réttir Hagkaups – Friðrika Hjör- dís Geirs- dóttir / Hag- kaup 2. Almanak Há- skóla Íslands 2011 – Þor- steinn Sæmundsson / Há- skóli Íslands 3. Candida sveppasýking – Hallgrímur Þorsteinn Magn- ússon / Salka 4. Svar við bréfi Helgu – Berg- sveinn Birgisson / Bjartur 5. Utangarðsbörn – Kristina Ohlsson / JPV útgáfa 6. Konur eiga orðið allan ársins hring – Kristín Birgisdóttir / Salka 7. Prjónaklúbburinn – Kate Ja- cobs / JPV útgáfa 8. Furðustrandir – Arnaldur Indriðason / Vaka-Helgafell 9. Ég man þig – Yrsa Sigurð- ardóttir / Veröld 10. Jónína Ben – Sölvi Tryggva- son / Sena Listinn er byggður á upplýsingum frá Bókabúð Máls og menningar, Bókabúðinni Eskju, Bókabúðinni Hamraborg, Bókabúðinni Iðu, Bókabúðinni við höfnina Stykkishólmi, Bóksölu stúdenta, Bónus, Hagkaupi, Kaupási, N1, Office 1, Pennanum-Eymundssyni og Sam- kaupum. Rannsóknasetur verslunarinnar annast söfnun upplýsinga fyrir hönd Félags íslenskra bókaútgefenda. Bóksölulisti Lesbókbækur Þ að má merkilegt teljast að ekki skuli fleiri þekkja til frönsku skáldkonunnar Önnu Gavalda hér á landi; hún nýtur gríðarlegra vinsælda í heimalandi sínu og er heimsþekkt fyrir bækur sínar, aukinheldur sem vinsæl mynd var gerð eftir einni bóka hennar með stórleikkonunni Audrey Tautou, Ensemble, c’est tout. Aðeins ein bóka hennar hefur verið gef- in út á íslensku, smásagnasafnið Ég vildi óska að einhvers staðar biði einhver eftir mér kom út í Handtöskuseríu Stílbrots fyrir tveimur árum. Heimsmynd Önnu Gavalda er ekki flókin og eflaust finnst einhverjum hún ómerkileg. Í sem stystu máli má orða hana svo: Ástin sigrar, enda segja bækur hennar alla jafna frá ólánsömu fólki sem frelsast frá sinni óhamingju þegar það upp- götvar ástina. Gott dæmi um það er Ensemble, c’est tout, sem heitir Hunting and Gathering upp á ensku – sú bók Gavalda sem selst hefur best í heimalandi hennar og sú sem var kvikmynduð. Í henni segir frá þremur einstaklingum á jaðri sam- félagsins; Camille, sem þjáist vegna erfiðrar æsku og af lystarstoli, Philibert, fátækum aðalsmanni sem þjáist af félagsfælni, og Franck, sem er reynd- ar með vinnu en þjáist af samviskubiti og ofsa- reiði. Öll ná þau saman að lokum, frelsast fyrir ástina. Aðrar bækur Gavalda eru áþekkar, til að mynda La Consolante, sem kom út á ensku sem Consolation 1. janúar síðastliðinn. Hún segir sögu arkitekts sem er ástlausu sambandi við ótrúa sam- býliskonu. Hann drekkir sér í vinnu til að forðast sársaukafullar æskuminningar, en kemst ekki undan því að taka á málunum; það er ekki fyrr en hann gerir upp við fortíðina að hann getur tekist á við framtíðina. Líklega er best að lýsa bókum Önnu Gavalda sem ástarævintýrum, því þó á þeim séu skugga- hliðar og í þeim utangarðsfólk sem oft hlýtur grimmileg örlög þá getum við treyst því að hinar góðu aðalpersónur finni hamingjuna og hinar illu fái makleg málagjöld. Fyrsta bók hennar var smá- sagnasafnið sem getið er í upphafi, Je voudrais que quelqu’un m’attende quelque part, og því var geysivel tekið, seldist metsölu í Frakklandi og hlaut bókmenntaverðlaun þar í landi. Það safn hefur verið gefið út í 27 löndum. Næsta bók henn- ar, skáldsagan Je l’aimais, vakti ekki minni at- hygli, en í þeirri bók fjallar hún beint og óbeint um hjónaband sitt sem lauk með sársaukafullum skilnaði. Sú bók hefur einnig verið kvikmynduð. Næst þar á eftir kom stutt unglingasaga, 5 kilos d’espoir, og síðan Ensemble c’est tout, La Con- solante og síðast L’Échappée belle. Fyrstu fimm bækurnar eru fáanlegar á ensku og eflaust er verið að þýða þá sjöttu. Ástin sigrar Franska skáldkonan Anna Gavalda skrifar ekki flóknar bækur en það kemur ekki að sök – hún nýtur gríðarlegra vinsælda í heimalandi sínu og víða um heim. Fáir virðast þó þekkja hana hér á landi af einhverjum sökum. Árni Matthíasson arnim@mbl.is Bækur Önnu Ga- valda seljast í millj- ónavís í heimalandi hennar Frakklandi.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.