SunnudagsMogginn - 31.07.2011, Page 15
Hörmungarástand ríkir á Horni Afríku eða í
Norðaustur-Afríku og nær það fyrst og fremst til
Sómalíu, Kenía, Eþíópíu og Djíbútí. Þar hafa ver-
ið mestu þurrkar í sextíu ár og er
ekki búist við rigningu fyrr en í
október, þannig að búast má við
að ástandið versni enn frekar.
Afleiðingarnar eru þær að upp-
skeran bregst, búfénaður drepst
og matvælaverð rýkur upp úr
öllu valdi. Ástandið er alvarleg-
ast í Sómalíu, þar sem geisað
hefur borgarastyrjöld í tæpa tvo
áratugi. Íslömsku öfgasamtökin El-Shabab, sem
styðja Al Queda, hafa náð valdi á stærstum hluta
Suður-Sómalíu, þar sem ástandið er sýnu verst,
og neita tilvist vandans. Hafa samtökin lagt stein
í götu sumra hjálparstofnana og torveldað hjálp-
arstarf. 3,7 milljónir eru í hættu vegna matvæla-
skorts á því svæði og hafa tvær milljónir ekki
fengið neina aðstoð, samkvæmt fréttastofunni
Reuters. Alls hafa þurrkarnir veruleg áhrif á líf
rúmlega ellefu milljóna manna. Yfir hálf milljón
barna er í lífshættu vegna alvarlegrar vannær-
ingar, 1,6 milljónir til viðbótar eru vannærð og
mikil sjúkdómahætta er á öllu svæðinu. Örygg-
isleysi, matvælaskortur og þurrkar valda því að
þúsundir leita betri lífsskilyrða í Mogadishu,
höfuðborginni sem enn er barist um, en tugir
þúsunda flýja til Kenía og Eþíópíu. Til þess þurfa
margir að ferðast hundruð kílómetra fótgang-
andi við erfið skilyrði, eins og Christopher Tidey,
starfsmaður UNICEF, lýsir í meðfylgjandi grein
undir yfirskriftinni Vegurinn til Dadaab.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Milljónir í
skugga átaka
og þurrka