Morgunblaðið - 06.05.2010, Síða 1

Morgunblaðið - 06.05.2010, Síða 1
F I M M T U D A G U R 6. M A Í 2 0 1 0 STOFNAÐ 1913 104. tölublað 98. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is –– Meira fyrir lesendur fylgir m eð Morgun blaðinu í dag DAGLEGT LÍF»10 BRYNJA STENDUR Á GÖMLUM MERG MENNING27 SINFÓNÍAN EFNIR AFTUR TIL VEISLU 6 Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is ÍBÚAR í miðborginni eru að missa þolinmæðina vegna ófremdarástands sem myndast þar um helgar. „Þetta vandræðaástand hefur bara verið framlengt, ofbeldisglæpir verða harð- ari þegar líður á nóttina, fyrir utan auðvitað ónæðið fyrir íbúa og lækkun á fasteignaverði. Þetta er að gera suma íbúa snældubrjálaða,“ segir Magnús Skúlason, formaður íbúa- samtaka miðborgar Reykjavíkur. Það sé alveg ljóst að afgreiðslutími veitingastaða hafi verið til bölvunar. Samtökin gagnrýna aðgerðarleysi vegna ástands miðborgarinnar að næturlagi um helgar í opnu bréfi til borgarstjóra. Í bréfinu segir að sam- þjöppun veitingastaða hafi haft í för með sér „subbuskap, aukna glæpi og drykkjulæti að ógleymdum hávaða frá „tónlist“ veitingahúsanna þar sem megináhersla er lögð á mikla bassa- tóna.“ Rúmt ár er síðan samtökin kröfð- ust þess að ástandið sem íbúar mið- borgarinnar mega búa við yrði tekið upp í borgarstjórn. Magnús vísar í mat lögreglunnar á ástandinu í mið- borginni í nóvember 2008, þar sem fram kom að með því að dreifa skemmtistöðum, færa þá úr íbúða- byggð og stytta afgreiðslutíma mætti draga úr afbrotum og ónæði. Allir búi við frið á heimilum Stefán Eiríksson lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins segir afstöðu lögreglunnar ekki hafa breyst, of- beldisbrot í borginni séu mikið til bundin við skemmtanalífið og tryggja eigi að borgarbúar geti búið við heim- ilisfrið í öllum hverfum. Hávaði um nætur er að gera íbúa „snældubrjálaða“ GRIKKLAND stendur á „barmi hyl- dýpisins“, sagði Carolos Papoulias, forseti Grikklands, í gær eftir að tvær konur og einn karl létu lífið þegar eld- sprengju var varpað á banka í Aþenu. Allsherjarverkfall var í gær og voru haldnir fjöldafundir til að mótmæla niðurskurði og skattahækkunum, sem ætlað er að koma í veg fyrir gjaldþrot Grikklands. Til harðra átaka kom milli mótmælenda og lög- reglu og hentu mótmælendur með hettur á höfði bensínsprengjum í verslanir og fyrirtæki. „Enginn hefur rétt til að beita of- beldi, að ekki sé talað um ofbeldi sem leiðir til morðs,“ sagði Papandreou. Grikkland stendur nú „á barmi hyldýpisins“ Alelda Lögreglumaður dettur þeg- ar hann fær í sig Molotov-kokkteil. BÆJARINS bestu og Árbæjarsafnið voru viðkomustaðir nemenda í leik- skólanum Sjálandi í Garðabæ sem fóru í útskriftarferð til Reykjavíkur í gær. „Pylsuvagninn er vinsæll, að vera með klink og kaupa pylsur er nokk- uð sem krakkarnir muna lengi eftir,“ sagði Ida Jensdóttir leikskólastjóri. BÆJARINS BESTU Í ÚTSKRIFTARFERÐ Morgunblaðið/Golli  Breski Íhaldsflokkurinn hafði mest fylgi samkvæmt skoðanakönn- unum, sem birtar voru í Bretlandi í gær, en allt benti þó til að hann næði ekki hreinum meirihluta í kosning- unum í dag. Verkamannaflokkurinn sótti í sig veðrið í gær og virðist ætla að fá ívið meira fylgi en Frjálslyndir demókratar. Allt að fjórir af hverj- um tíu kjósendum hafa ekki gert upp hug sinn. »15 Íhaldsflokkurinn leiðir en nær tæplega meirihluta Reuters Keppinautarnir Andlit leiðtoganna á bjórdælum á krá í London.  Samkvæmt sameiginlegu mati á umhverfis- áhrifum vegna ál- vers á Bakka við Húsavík kemur fram að talið sé að 650-900 störf gætu skapast í tengslum við fram- kvæmdirnar, beint og óbeint. Um- hverfismatið tekur til áhrifa þess að reisa allt að 346 þúsund tonna álver. Í Peningamálum Seðlabankans kemur fram að frá miðju ári 2008 hafa um 28.000 störf tapast. Þar seg- ir einnig að samdrátturinn hér á landi verði meiri en víðast hvar ann- ars staðar. »14 og Viðskipti Framkvæmdir á Bakka gætu skapað 650-900 störf  Gosmökkurinn frá Eyjafjallajökli reis hátt í gærkvöldi, fór í 8 kíló- metra hæð og jafnvel í 10 km um tíma. Vindáttir virðast hagstæðar fyrir flugið, mökkurinn stefndi vestur fyrir Bretlandseyjar og ekki var útlit fyrir lokun valla. Þó gæti þurft að breyta flugleiðum. » 4 Gosmökkurinn stígur hærra Fulltrúar þýsku bankanna Bayern Landesbank og Landesbank Baden- Württemberg gengu af fundi ís- lenska ríkisins með kröfuhöfum Sparisjóðsins Byrs í London. Viðskipti Kröfuhafar gengu fúlir af fundi Alþjóðlegi áhættufjárfestirinn Auro Investment Partners hefur ákveðið að kaupa fjórðungshlut í ís- lenska hátæknisprotafyrirtækinu CLARA, fyrir eina milljón dollara. Fjárfesting fyrir milljón dollara Fyrir ári skipaði borgarstjórn stýrihóp sem átti að koma með tillögur í miðborgarmálum. Hópurinn mun skila borgarráði upplýsingum fyrir kosningar en hann hefur ekki ákvörð- unarvald. Júlíus Vífill Ingvars- son, formaður skipulagsráðs, segir skoðanir veitingamanna og íbúa mjög skiptar. | 2 Skilar upplýsingum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.