Morgunblaðið - 06.05.2010, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 06.05.2010, Blaðsíða 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2010 RÚMLEGA tvítugur karlmaður, Ív- ar Anton Jónsson, var í gær dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir kyn- ferðisbrot gegn fjórum barnungum stúlkum, vörslu á grófu barnaklámi og fjölmörg auðgunarbrot. Hann var dæmdur í fimm ára fangelsi og gert að greiða fórnarlömbum sínum alls 3,5 milljónir í miskabætur. Ívar Anton var sakfelldur fyrir nauðgun og frelsissviptingu með því að hafa aðfaranótt 15. nóvember sl. haft kynferðismök við sextán ára stúlku, þröngvað henni til áfram- haldandi kynmaka með ofbeldi og ólögmætri nauðung. Stúlkan hlaut meðal annars áverka í andliti og tognaði í mjóbaki. Henni voru dæmdar 1,5 milljónir kr. í miskabæt- ur. Hann var einnig sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn barni og nauðg- un. Hann hafði kynferðismök við fjórtán ára stúlku í desember sl. Komst hann í samband við stúlkuna á netinu og fékk hana heim til sín. Þar notfærði hann sér yfirburði gagnvart stúlkunni vegna aldurs- og aflsmunar og hafði við hana sam- ræði. Stúlkunni voru dæmdar 800 þúsund kr. í bætur. Ennfremur var Ívar Anton sak- felldur fyrir kynferðisafbrot gegn börnum, fyrir að hafa í eitt skipti í maí á síðasta ári haft samfarir við tvær stúlkur, þrettán og fjórtán ára. Hvor stúlkan fékk dæmdar 600 þús- und kr. í bætur. Neitaði sök Ívar Anton neitaði sök í ákærum vegna kynferðisbrotanna og vörslu barnakláms sem fannst á fartölvu hans við húsleit. Fullyrti hann að klámefnið hefði komið sjálfkrafa og án hans vitundar inn á tölvuna. Sér- fræðingur sem leiddur var fyrir rétt- inn sagði að miðað við hvar skrárnar fundust hefði notandi tölvunnar þurft að færa þær til. Maðurinn játaði hins vegar sök varðandi tíu auðgunarbrot, tvö fíkni- efnabrot og akstur undir áhrifum. Arngrímur Ísberg héraðsdómari kvað upp dóminn. Fangelsi í fimm ár fyrir brot gegn barnungum stúlkum Í HNOTSKURN »Lögreglan gerði húsleithjá 22 ára karlmanni í nóv- ember sl. eftir að stúlka lagði fram kæru vegna nauðgunar. Þá fannst gróft barnaklám í tölvu hans. »Kæra og húsleit stöðvaðimanninn ekki. Hann fann sér annað og yngra fórn- arlamb á netinu innan við mánuði síðar. *E in un gi s er gr ei tt up ph af gj al d 6 kr .a fh ve rj u sí m ta li. M án .v er ð 1. 76 5 kr . E N N E M M / S ÍA / N M 4 18 6 8 ERFITT getur verið að veita mönn- um sem afplána dóma fyrir kynferð- isbrot gegn börnum viðeigandi með- ferð þegar þeir neita stöðugt að hafa brotið af sér. Erlendur Baldursson, afbrotafræðingur hjá Fangels- ismálastofnun, telur að neitunin kunni að vera vörn manna gegn þeirri miklu fordæmingu sem þeir hljóta vegna brota sinna. Hann tekur fram að stundum greiðist úr málum síðar. Erlendur segir reynt að vista menn sem dæmdir eru fyrir kynferðisbrot gegn börnum sér og veita þeim með- ferð. Hjá Fangelsismálastofnun starfa tveir sálfræðingar og tveir félagsráðgjafar auk geðlæknis í hlutastarfi sem sinna þessum málum eftir bestu getu. „Það er staðreynd að þessir menn eru í þeim hópi sem sjaldnast kemur aft- ur í fangelsi,“ segir Erlendur um árangurinn af meðferð- inni. Hann segir fleira hafa þar áhrif. Mennirnir sitji oft inni í langan tíma og tíminn geti breytt ýmsu. Þá fari menn sem dæmdir hafa verið fyrir að misnota eigin börn oft ekki inn í sama umhverfi og þeir verði sjaldnast upp- vísir að brotum gegn börnum annarra. Fangelsi landsins eru yfirfull en Erlendur segir að menn sem dæmdir hafa verið fyrir kynferðisbrot séu hafðir í forgangi. Hann vekur athygli á því að þeir séu oft í gæsluvarðhaldi þar til lokadómur fellur í máli þeirra og fari þá beint í afplánum. Tekur Erlendur þó fram að dæmi séu um að kynferðisbrotamenn hafi verið á boðunarlista og ekki verið hægt að láta þá afplána dóma sína strax. helgi@mbl.is Erlendur Baldursson Meðferð erfið þegar menn neita SKIPTUM er lokið í þrotabúi Styrks Invest ehf., til heimilis að Túngötu 6 í Reykjavík. Kröfur í búið reyndust vera rúmir 47 millj- arðar króna eða nákvæmlega 47.503.401.182,00 krónur. Er þetta með stærstu gjaldþrotum sög- unnar, a.m.k. hingað til. Styrkur Invest ehf. var tekið til gjaldþrotaskipta 6. október 2009. Fram kemur í tilkynningu skipta- stjórans Magnúsar Guðlaugssonar hrl. í Lögbirtingablaðinu að engar eignir hafi fundist í þrotabúinu. Fyrirtækið var stofnað í apríl 2008, þegar eignum Baugs Group var skipt upp. Fram kom í fréttum á þessum tíma að Baugur Group hefði rennt sínum eignarhluta í FL Group, eða tæplega 40% í félaginu, inn í Styrk. Áttu helstu hluthafar Baugs 37% í fyrirtækinu og Kald- bakur 34%. Stærsti kröfuhafinn í þrotabú Styrks var Íslandsbanki með 17 milljarða kröfu. Þá gerði Landsbankinn tæplega 13 millj- arða króna kröfu og þrotabú Baugs lýsti kröfu upp á tæpar 10 millj- arða. Þegar Glitnir fór í þrot haustið 2008 fór FL Group í greiðslu- stöðvun og hlutabréfin í félaginu urðu verðlaus. Þar sem einu eignir Styrks voru bréf í FL Group var ekkert til skiptanna þegar félagið var gert upp. Tilkynningum um skiptalok í þrotabúum fer stöðugt fjölgandi í Lögbirtingablaðinu. Á þriðjudag- inn birtust 32 slíkar tilkynningar um lok skipta í þrotabúum fyr- irtækja og einstaklinga. sisi@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Forystan Breytingar hjá FL Group kynntar á blaðamannafundi árið 2007. Hannes Smárason, Jón Ásgeir Jóhannesson og Jón Sigurðsson. 47 milljarða króna gjaldþrot Styrks

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.