Morgunblaðið - 06.05.2010, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 06.05.2010, Blaðsíða 12
12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2010 UMHVERFISVOTTUÐ PRENTSMIÐJA Margrét S. Valgarðsdóttir nemi í fatahönnun 500 bæklingar með nýju sniði. Oddi fyrir þig, þegar hentar, eins og þér hentar. Prentun frá A til Ö. Oddi – umhverfisvottuð prentsmiðja. Höfðabakka 7, 110 Reykjavík, sími 515 5000, www.oddi.is FRÉTTASKÝRING Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is ENDURSKOÐENDUR Reykjavík- urborgar telja að bókfært verð var- anlegra rekstrarfjármuna Orkuveitu Reykjavíkur sé ofmetið um 1,6 millj- arða. Fyrirtækið þarf á árunum 2010-2013 að endurfjármagna lán um 78 milljarða þegar búið er að taka tillit til áætlana um handbært fé frá rekstri. Ársreikningur Reykjavík- urborgar og fyrirtækja hennar sýnir að þó að borgarsjóður standi þokka- lega eru mikil vandræði í rekstri Orkuveitunnar og Félagsbústaða. Vandi OR er mestur því mestur hluti lána fyrirtækisins er í erlendri mynt, en tekjur eru í krónum. Fyrirtækið skuldaði um síðustu áramót 241 milljarð og jukust skuldir um 30 milljarða á árinu. Skuldsetning- arhlutfall fyrirtækisins var 88,8% árið 2006, en var komið upp í 545,5% í fyrra. Eiginfjárhlutfall er komið niður í 14,4% en var 49,5% árið 2006. Athygli vekur að endurskoðendur borgarinnar benda á að það sé skoð- un þeirra að bókfært verð fram- leiðslukerfis rafmagns „standist ekki virðisrýrnunarpróf miðað við raunhæfar forsendur og að um of- mat upp á 1,6 milljarða kr. sé að ræða.“ Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2009 reiknaði borgin með því að gengi krónunnar myndi styrkjast á árinu sem hefði haft jákvæð áhrif á fjármagnskostnað. Reyndin varð hins vegar sú að gengið veiktist um 7,6% á árinu. Það sem af er þessu ári hefur gengið hins vegar heldur styrkst. Fjárhagsstaða Félagsbústaða er litlu betri en OR. Fyrirtækið skuldar 25 milljarða, en verðmæti bókfærðra eigna nam 20 milljörðum. Gangverð fasteigna félagsins er hins vegar tal- ið vera 32 milljarðar, en fjár- málaskrifstofa borgarinnar bendir á að framundan kunni að vera frekari lækkanir á fasteignaverði. Fyr- irtækið þarf á þessu ári að greiða 1,4 milljarða í afborganir lána sem er mikil aukning frá fyrri árum. Skýr- ingin á þessu er að á árinu þarf fé- lagið að greiða einn milljarð vegna gengisbundins láns í Íslandsbanka. Eins og fram hefur komið tókst að reka borgarsjóð með 3,2 milljarða hagnaði á síðasta ári. Þetta er betri árangur en gert var ráð fyrir í fjár- hagsáætlun. Skýringin á betri af- komu en áætlanir gerðu ráð fyrir eru fyrst og fremst tvær. Annars vegar voru skatttekjur borgarinnar 3,5 milljörðum hærri en gert var ráð fyrir, m.a. vegna þess að margir tóku út séreignasparnað og greiddu skatt af honum. Hins vegar lækkuðu lífeyrisskuldbindingar borgarinnar milli ára um 1,5 milljarða, en í áætl- un var gert ráð fyrir að hún hækkaði um 2,1 milljarð. Þetta bætti stöðuna um 3,6 milljarða frá áætlun. Fram kemur í skýrslu fjármálaskrifstofu borgarinnar að stefnt hafi verið að því að spara 2,4 milljarða í rekstri. Þetta sparnaðarátak hafi skilað góð- um árangri. Eitt af því sem kemur til með að hafa áhrif á fjárhagsstöðu borg- arinnar er hversu margir búa í henni. Í fyrra fækkaði íbúum borg- arinnar um 1%. Íbúum hefur ekki fækkað síðan á árunum 1976-78. Frá 2006 hefur nemendum í skólum borgarinnar fækkað um 6,4%. Eignir ofmetnar  Skuldsetningarhlutfall Orkuveitunnar hækkaði á þremur árum úr 89% í 545%  Eiginfjárhlutfall komið niður í 14,4% Í fyrra fengu 3.292 heimili í Reykjavík fjárhagsaðstoð sem er 18% aukning frá árinu á undan. Mest var aukningin í fjárhagsaðstoð til framfærslu en meðalfjöldi notenda á mánuði jókst um 50% árið 2009 miðað við árið 2008. Kostnaður vegna fjárhagsaðstoðar var um 1.582 milljónir sem er aukning um 27%. Sveitarfélögum er skylt að veita fjárhagsaðstoð til framfærslu ein- staklinga og fjölskyldna sem ekki geta séð sér og sínum farborða án að- stoðar. Fjárhagsaðstoð til einstaklings getur verið allt að kr. 125.540 á mánuði og kr. 200.864 á mánuði til hjóna eða fólks í sambúð. 3.292 heimili fengu fjárhagsaðstoð Morgunblaðið/Kristinn Skuldir Orkuveitan er í alvarlegum vanda vegna mikilla skulda, en þær jukust um 30 milljarða í fyrra. Þó að afkoma borgarsjóðs hafi verið góð á síðasta ári eru miklir veikleikar í rekstri borgarinnar. Mestir erfiðleikar steðja að Orku- veitunni og Félagsbústöðum. Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is MARGIR háskólanemendur eru áhyggjufullir vegna komandi sumars og vita ekki hvernig þeir eiga að sjá fyrir sér. Þetta segir Jens Fjalar Skaptason, formaður stúdentaráðs. Segir hann vonbrigði að menntamála- ráðherra skuli ekki ætla að standa við fyrri fyrirheit um að 150-200 sumar- próf verði í boði við HÍ þetta sumarið, en framboð sumarnámskeiða verður mun minna en ráðherra hafði gefið út á málþingi í mars sl. „Það er auðvitað afar jákvætt að framlagið hafi verið aukið í nýsköp- unarsjóði, sem skilar um 400 sumar- störfum, og að Vinnumálastofnun hyggist fara í átaksverkefni sem skili um 700 sumarstörfum fyrir náms- menn. Hins vegar er þetta bara dropi í hafið,“ segir Jens. Bendir hann á að aðeins við Háskóla Íslands séu um 14 þúsund nemendur skráðir, en þá séu ótaldir háskólanemar í öðrum skólum landsins sem og framhaldsskólanem- ar sem keppi líka um sumarstörfin. Tekur hann fram að þeir sem hvorki geti stundað lánshæft nám í sumar né fundið sér sumarvinnu hafi engin önnur úrræði en að leita fjárhags- stuðnings hjá sínu sveitarfélagi. Telja sig anna eftirspurn Að sögn Karls Sigurðssonar, for- stöðumanns vinnumálasviðs Vinnu- málastofnunar, voru um þúsund stúd- entar á háskóla- og framhaldsskóla- stigi á atvinnuleysisbótum síðasta sumar. Um síðustu áramót var lögum hins vegar breytt á þá leið að réttur námsmanna til greiðslu atvinnuleys- isbóta á milli anna í námi og skóla- stiga var felldur niður. Segir hann það mat manna að átaksverkefnið, sem hefur nú þegar skilað hátt í 800 störf- um, muni anna þeirri þörf sem fyrir hendi sé. Bendir hann á að hægt verði að skoða starfsúrvalið á vef Vinnu- málastofnunar frá og með næstu helgi, en ekki verður byrjað að taka við umsóknum fyrr en í næstu viku. Spurður hvers konar störf um sé að ræða nefnir Karl störf við garðyrkju, göngustígagerð á hálendinu og gagn- aúrvinnslu, en störfin eru hjá opin- berum stofnunum. Við þetta bætast síðan mörg hundruð störf á vegum sveitarfélaga. Hjá Rebekku Sigurðardóttur, upp- lýsingafulltrúa Félagsstofnunar stúd- enta, fengust þær upplýsingar að skráning sumarstarfa færi jafnhægt af stað þetta árið og í fyrra. „Líkt og síðasta sumar höfum við boðið at- vinnurekendum að auglýsa sumar- störf sér að kostnaðarlausu á vef okk- ar studentamidlun.is,“ segir Rebekka. Tekur hún fram að hún vonist til þess að það boð skili fleiri störfum á næstu vikum, en í gær voru aðeins 11 auglýsingar um störf í boði á vef Stúdentamiðlunarinnar á sama tíma og um 200 námsmenn voru á skrá hjá miðluninni í leit að störfum. Stúdentar hafa áhyggjur af sumarvinnunni  Tæplega 800 störf kynnt um helgina Morgunblaðið/Ásdís Vinna Garðyrkjustörf eru meðal þeirra starfa sem verða í boði. Í HNOTSKURN »Alls voru 18.226 há-skólanemar skráðir í námi hérlendis haustið 2009. »Á sama tíma voru 30.480framhaldsskólanemar á landinu öllu. »Framlag til Nýsköp-unarsjóðs námsmanna var hækkað úr 20 í 110 milljónir en við það sköpuðust um 400 störf. TALSVERT gekk af loðnu inn í Borgarfjörð í byrjun apr- ílmánaðar. Á heimasíðu Veiðimálastofnunar segir að um sé að ræða mjög óvenjulegan atburð við Hvítárósa, en heimildir eru þó fyrir því að á árunum um og eftir 1950 hafi verið algengt að finna dauða loðnu við Borgarnes. Á heimasíðunni segir að skömmu eftir páska hafi orðið vart við óvenjulega mikið fuglalíf við ósa Hvítár í Borg- arfirði og langt út með Borgarfirði. Einkum hafi ýmsar mávategundir verið áberandi og mikið af fugli í nokkrar vikur á svæðinu. „Í tengslum við rannsóknir á fæðu bleikju á ósasvæði Hvítár voru net lögð fyrir neðan Borgarfjarðarbrúna þann 9. apríl. Í ljós kom að mikil loðna var gengin inn í Borgarfjörð og var um að ræða hrygningarloðnu á bilinu 13-16 cm að lengd,“ segir á veidimal.is aij@mbl.is Loðna gekk inn í Borgarfjörð MATÍS leitar eftir samstarfi við aðila sem framleiða skyr á hefðbundinn hátt. Á heimasíðu Matís segir að skyr sé hefðbundin íslensk afurð sem virðist hafa verið gerð hér frá landnámi. Mjólkurafurð undir þessu sama heiti hafi verið þekkt alls staðar á Norðurlöndum, en skyrgerð virðist þó eingöngu hafa varðveist á Íslandi. Ýmsar útgáfur séu nú fáanlegar af verksmiðjufram- leiddu skyri, en þær eigi það þó allar sammerkt að vera töluvert frábrugðnar því heimagerða. Fáar rannsóknir hafi verið gerðar á hefðbundnu skyri og fjölbreytileika þess. Matís ætli að rannsaka samsetningu og eiginleika hefðbundins skyrs og leiti því eftir samstarfi við aðila sem stundi ennþá skyrgerð á þann hátt. aij@mbl.is Skyrgerð á hefðbundinn hátt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.