Morgunblaðið - 06.05.2010, Blaðsíða 27
Menning 27FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2010
VINAFÉLAG Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands heldur
tónleikakynningu á undan tón-
leikum Sinfóníuhljómsveitar
Íslands í kvöld. Árni Heimir
Ingólfsson, tónlistarstjóri Sin-
fóníuhljómsveitarinnar, fjallar
um fyrstu sinfóníu Roberts
Schumanns, eða Vorsinfón-
íuna, og píanókonsert nr. 1 eft-
ir Johannes Brahms. Einnig
mun hann segja frá því sem
hæst ber á næsta starfsári hljómsveitarinnar.
Kynningin fer fram í safnaðarheimili Neskirkju
og hefst kl. 18:00.
Aðalfundur Vinafélags SÍ verður haldinn fyrir
kynninguna og hefst hann kl. 17:30.
Tónlist
Tónleikakynning
Vinafélags Sinfó
Árni Heimir
Ingólfsson
TENÓRINN Vígþór Sjafnar
Zophoníasson heldur sína
fyrstu opinberu tónleika í Saln-
um á sunnudag kl. 20:00. Jónas
Ingimundarson leikur undir á
píanó. Vígþór Sjafnar lýkur
meistaragráðu frá University
of Missouri nú í vor. Á tónleik-
unum verða flutt sönglög eftir
R. Quilter, E. Grieg, J.
Brahms, J. Sibelius, C. L. Sjö-
berg, Sigvalda. S. Kaldalóns,
Eyþór Stefánsson og Sigfús Halldórsson ásamt
nokkrum óperuaríum. Tónleikarnir eru hluti af
Kópavogsdögum 2010 og eru haldnir í samstarfi
við Kópavogsbæ. Vígþór Sjafnar var valinn fram-
úrskarandi listnemi Kópavogs árið 2009.
Tónlist
Vígþór Sjafnar
þreytir frumraun
Vígþór Sjafnar
Zophoníasson
SKÁLDSAGA Yrsu Sigurð-
ardóttur, Sér grefur gröf, kom
út á Bretlandseyjum fyrir
stuttu og hefur fengið mjög
góða dóma. Gagnrýnandi
breska blaðsins Guardian segir
að Yrsu takist frábærlega að
„galdra fram andrúmsloft
hrollvekjandi ógnar og ímynd-
unar“. Þessi umsögn er um
kiljuútgáfu bókarinnar og ann-
ar dómurinn sem birtist í Gu-
ardian um sögu Yrsu. Þegar hún var gefin út inn-
bundin á síðasta ári sagði gagnrýnandi sama blaðs
skáldsöguna vel skrifaða glæpasögu með hraða
atburðarás og frábært andrúmsloft.
Bókin heitir My Soul to Take í enskri þýðingu.
Reyfarar
Yrsa fær góða
dóma í Guardian
Kápa My
Soul to Take.
Ég vorkenni ofsa-
lega fólki sem lang-
ar að berja listamenn í
hausinn... 31
»
YFIRLITSSÝNING á verkum Haf-
steins Austmann verður opnuð í
Gerðarsafni á laugardag. Sýningin,
sem er liður í Kópavogsdögum, er í
tilefni af 75 ára afmæli hans.
Hafsteinn Austmann er fæddur á
Vopnafirði 1934, en ólst að mestu
upp í Reykjavík. Hann stundaði
nám í Myndlistarskólanum í
Reykjavík og Handíða- og mynd-
listarskóla Íslands og sótti tíma í
Academié de la Grande Chaumire í
París.
Hafsteinn hefur haldið um 30
einkasýningar og tekið þátt í mikl-
um fjölda samsýninga um allan
heim. Verk hans er að finna í öll-
um helstu listasöfnum Norð-
urlanda og hafa hlotið ýmsar við-
urkenningar.
Í tengslum við sýninguna verður
gefin út bókin Kvika: Hafsteinn
Austmann, Myndverk 1950-2010,
sem Aðalsteinn Ingólfsson hefur
tekið saman.
Aðalsteinn Ingólfsson verður
með leiðsögn um sýninguna á
sunnudag kl. 15:00. Ásdís Arn-
ardóttir og Jón B.K. Ransu verða
einnig með leiðsögn um sýninguna,
Ásdís 16. maí og Jón 30. maí.
Sýningin er liður í Kópavogs-
dögum og stendur til 20. júní.
Yfirlit Verk Hafsteins Austmanns
verða sýnd í Gerðarsafni.
Sýning
Hafsteins
Austmanns
Yfirlitssýning opnuð
í Gerðarsafni
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
SÖNGSVEITIN Fílharmónía held-
ur upp á hálfrar aldar afmæli sitt á
árinu og af því tilefni verður hátíð-
ardagskrá flutt í Langholtskirkju
næstkomandi sunnudag og endur-
tekin á þriðjudag. Á þeim tónleikum
verður frumflutt nýtt verk eftir
Tryggva M. Baldvinsson, sem hann
samdi sérstaklega fyrir Söngsveit-
ina.
Eins og fram kom í viðtali við
stjórnanda söngsveitarinnar, Magn-
ús Ragnarsson, fékk Tryggvi frjáls-
ar hendur við samningu verksins og
úr varð sálumessa sem Magnús kall-
ar mannlega sálumessu, en hún
byggist á texta úr Heimsljósi Hall-
dórs Laxness.
Eitt það fegursta sem ritað
hefur verið á íslenska tungu
Tryggvi segist hafa lesið Heims-
ljós í fyrsta sinn sautján ára gamall
og fallið gersamlega fyrir verkinu
enda hefði hann aldrei lesið texta
sem hrifið hefði hann jafn sterkt.
Spurður um hvað það hafi verið sem
hafi heillað hann svo svarar hann því
til að hafi verið lýríkin, „þessi ljóð-
ræni og prósakenndi texti; ég held
að Heimsljós sé eitt það fegursta
sem ritað hefur verið á íslenska
tungu.“
Ekki kirkjulegt verk, en þó
sterk trúarskírskotun í því
Þegar Tryggva var falið að semja
tónverk fyrir hátíðartónleika Söng-
sveitarinnar ákvað hann að nota
texta úr Heimsljósi, en þó ekki gera
tilraun til að segja söguna. „Ég
ákvað að nota staka texta og þær
myndir sem þeir bregða upp, oft í
annari röð en gerist í bókinni, þetta
er því ekki saga Ólafs Kárasonar.“
Verkið vann Tryggvi á þann hátt
að hann las bókina nokkrum sinnum
og valdi þá staði sem honum fannst
koma til greina, þá staði sem hann
heyrði músík við og hann segir að
það hafi verið fullt af slíkum stöðum.
„Síðan setti ég það þannig upp að
hver kafli passaði inn í hefðbundna
uppbyggingu sálumessu, ákall - upp-
gjör - friðþæging. Þetta er ekki
kirkjulegt verk. Það er þó sterk
trúarskírskotun í verkinu, skír-
skotun til náttúruvitundar og auð-
mýktar gagnvart, sem passar ágæt-
lega við trúarvitund Íslendinga sem
eru ef til vill ekki alltof kirkjurækin
þjóð en trúrækin á sinn hátt. Flestir
bera djúpa virðingu fyrir náttúrunni
og landinu og finna sinn guð kannski
þar.“
Þegar Tryggvi var búinn að velja
texta úr Heimsljósi til að nota í sálu-
messuna segist hann hafa átt eftir
mikið af texta sem hann hefði langað
til að semja tónlist við, en það verði
að bíða betri tíma. „Kannski nota ég
þá í Heimsljós II,“ segir hann og
hlær við.
Söngsveitin Fílharmónía fagnar afmæli
Morgunblaðið/Golli
Trúarskírskotun Tryggvi M. Baldvinsson samdi sálumessu fyrir Söngsveit-
ina Fílharmóníu upp úr Heimsljósi Halldórs Laxness.
Í HNOTSKURN
» Heimsljós kom út í fjórumhlutum á árunum 1937-40.
» Ljós heimsins, sem síðarhlaut nafnið
Kraftbirtíngarhljómur guð-
dómsins, kom fyrst, síðan Höll
sumarlandsins, þá Hús skálds-
ins og loks Fegurð himinsins.
» Söngsveitin Fílharmóníavar stofnuð árið 1960, ári
eftir að hópur áhugafólks um
flutning kórverka með hljóm-
sveit stofnaði samnefnt félag.
Sálumessan
Heimsljós
Í NÆSTA mánuði eru liðin 200 ár
frá fæðingu Roberts Schumanns og
fyrir vikið eru verk hans víðar spil-
uð en jafnan. Sinfónían efndi til
þess sem kalla má Schumann- og
Brahms-veislu í nóvember síðast-
liðnum og nú er veislunni haldið
áfram því í kvöld er leikinn Píanó-
konsert nr. 1 eftir Johannes
Brahms og fyrsta sinfónía Roberts
Schumanns sem gjarnan er kölluð
„Vorsinfónían“. Einleikari á tón-
leikunum er kanadíski píanóleik-
arinn Jon Kimura Parker.
Parker nam við Juilliard-skólann
í New York, þaðan sem hann lauk
doktorsprófi, og vakti heimsathygli
þegar hann hreppti gullverðlaun í
Leeds-píanókeppninni árið 1984,
þar sem hann lék einmitt píanó-
konsertinn eftir Brahms í loka-
umferðinni.
Píanókonsertinn samdi Jóhannes
Brahms bráðungur; rétt orðinn
tuttugu og eins árs í júní 1954 þeg-
ar hann skráði fyrstu skissur að því
sem varð að pínaókonsertinum.
Hann lauk svo við verkið 1858 og
það var frumflutt 1859. Áheyrendur
tóku því illa, hvæstu og hrópuðu á
meðan verkið var flutt, en með tím-
anum hefur það orðið að einu
helsta verki píanóbókmenntanna.
Fyrsti píanókonsert Brahms og fyrsta sinfónía Schumanns
Schumann- og Brahms-
veisla, seinni hluti
Lykilverk Jon Kimura Parker leikur Píanókonsert nr. 1 eftir Johannes
Brahms á tónleikum Sinfóníunnar í Háskólabíói í kvöld.
JÓHANN Smári Sævarsson syngur
aríur eftir Verdi, Mozart og Boito á
hádegistónleikum í Hafnarborg í
dag kl. 12:00. Með honum leikur
Antonía Hevesi píanóleikari, en hún
er listrænn stjórnandi hádegistón-
leika í Hafnarborg. Tónleikarnir
standa yfir í um hálfa klukkustund
og eru öllum opnir.
Jóhann Smári Sævarsson hefur
sungið víða um heim og starfað með
ýmsum hljómsveitarstjórum.
Antonía Hevesi er fædd í Ung-
verjalandi og fluttist til Íslands árið
1992. Frá því í ágúst 2003 hefur hún
verið listrænn stjórnandi og píanó-
leikari hádegistónleikaraðar Hafn-
arborgar. Antonía starfar nú sem
orgel- og píanómeðleikari og æfing-
arpíanisti við Íslensku óperuna.
Ástin og aldurinn
Aríur eftir Verdi, Mozart og Boito á
hádegistónleikum í Hafnarborg
Morgunblaðið/Eggert
Hádegistónleikar Antonía Hevesi og Jóhann Smári Sævarsson.