Morgunblaðið - 06.05.2010, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 06.05.2010, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2010 Sími 462 3500 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Sími 551 9000 The Back-Up Plan kl. 5:40 - 8 - 10:20 LEYFÐ Crazy Heart kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ Loftkastalinn sem hrundi kl. 6 - 9 B.i.14 ára I Love you Phillip Morris kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i.12 ára She‘s out of my league kl. 6 - 8 B.i. 12 ára The spy next door kl. 6 LEYFÐ The Crazies kl. 8 B.i. 16 ára Legion kl. 10 B.i. 16 ára Daybreakers kl. 10 B.i. 16 ára The Last Station enskt tal kl. 5:45 LEYFÐ Fantastic Mr. Fox ísl. texti kl. 6 LEYFÐ Nowhere Boy ísl. texti kl. 6 B.i.10 ára Rudo Y Cursi ísl. texti kl. 6 B.i.12 ára Moon ísl. texti kl. 8 B.i.10 ára The Messenger ísl. texti kl. 8 B.i.12 ára Imaginarium of Dr. P ísl. texti kl. 8 B.i.12 ára Videocracy ísl. texti kl. 8 B.i.12 ára Until the lights takes us ísl. texti kl. 10 B.i.14 ára Trash Humpers ísl. texti kl. 10 B.i.18 ára Ondine ísl. texti kl. 10:15 B.i.12 ára Un Prophéte enskur texti kl. 10:15 B.i.16 ára HHHHH - SV, Mbl HHHHH - SV, Mbl HHH - HS, Mbl SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI 13 myndir sýndar í dag síðasti dagur! HHHH - ÞÞ, Fbl SÝND BORGARBÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI sum stefnumót enda með hvelli SÝND Í SMÁRABÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓ Bráðske mmtileg gaman mynd í anda A merican Pie. SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI HHH - TV, Kvikmyndir.is Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann m Fyrir stuttu lýsti StephenHawking ótta sínum um aðgeimverurnar sem við myndum hugsanlega hitta yrðu ekki endilega vinsamlegar heldur væri eins líklegt að þær myndu líta á okkur eins og eitthvað sem nytja mætti til fæðu eða orku- framleiðslu. Hann var semsé að segja að vel mætti vera að þær væru svo illar að þær myndu líta á okkur sem dýr.    Til dýranna sækjum við ekkibara fæðu, klæði og orku, heldur líka hugmyndir; slægur eins og refur, sterkur eins og uxi, hugrakkur eins og ljón, þver eins og asni. Svo manngerum við eig- inleika sem við þykjumst sjá í dýr- um um leið og við teljum okkur ekki til dýra – við erum menn. Það er því varla nema von að menn ói við því hvað gerist þegar hér birtast geimverur sem átta sig ekki á því að við erum ekki skepn- ur.    Einhversstaðar las ég aðómálga börn dreymdi gjarn- an dýr og víst eru barnabækur uppfullar með dýrum ýmiss konar, mörg sem eru býsna mannleg, tala og ganga um á afturfótunum, klæða sig eins og menn. Barnasög- ur hafa líka verið dýrasögur allt frá örófi, enda gott að geta sett dýr í ómögulega stöðu, láta þau hrapa fyrir björg, lenda í úlfs- kjafti eða vera rifin á hol af ljón- um til þess að kenna börnum hvað eigi að varast eða að hverju eigi að hyggja.    Þegar maður flettir gömlummyndabókum er gaman að skoða myndir af dýrum, teikn- ingar, og sjá hvernig menn gæða þau mannlegum eiginleikum, setja á þau svip sem kalla má mann- legan, undirstrika það sem menn telja sig vita um eðli þeirra og eiginleika, en er oftar en ekki ósk- hyggja okkar. Sjá til að mynda teikningu Albrechts Dürers af nas- hyrningi sem gerð er árið 1515 – í raun ekki mynd af nashyrningi heldur mynd af hugmynd okkar um það hvernig nashyrningur ætti að vera.    Ljósmyndatæknin leiddi okkurúr öllum vafa um það, dýr eru ekki með mannlega eiginleika, þau eru bara dýr, en barnabæk- urnar eru samar við sig, þar eru dýrin mannleg að sjá og eins mannleg í hegðun. Í nýrri mynda- bók, Upp í sveit, eftir Halldór Á. Elvarsson, ber svo við að dýrin eru ekki mannleg lengur og reyndar ekki dýrsleg heldur, ef svo má segja; þau er geimverur.    Það er líka við hæfi að teiknadýr sem geimverur, því fyrir okkur eru þau geimverur, lífverur sem við náum ekki sambandi við, getum ekki skilið til hlítar þó við getum giskað á hvað þau vilji, hvort það sé steinvala í hóf, vanti vatn í dallinn eða þurfi að klóra á kviðnum. Allt tal um að menn geti talað við dýr eða þau svarað fyrir sig er tóm þvæla; þau eru frá ann- arri plánetu og við munum aldrei skilja þau og þau aldrei okkur, ekki frekar en músin skilur valinn eða við geimverurnar þegar þær birtast. arnim@mbl.is Dýr á braut » Í nýrri myndabók,Upp í sveit, eftirHalldór Á. Elvarsson, ber svo við að dýrin eru ekki mannleg lengur og reyndar ekki dýrsleg heldur, ef svo má segja; þau er geimverur. Geimvera Ein af myndunum í bókinni Upp í sveit eftir Halldór Á. Elvars- son. Þetta mun vera kýr. Fyrir okkur mönnunum eru dýrin geimverur. AF LISTUM Árni Matthíasson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.