Morgunblaðið - 06.05.2010, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 06.05.2010, Blaðsíða 15
Fréttir 15ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2010 Eftir Karl Blöndal kbl@mbl.is FORYSTUMENN bresku stjórn- málaflokkanna komu víða við í gær á síðasta degi kosningabaráttunnar og gerðu allt sem þeir gátu til að höfða til kjósenda. Síðustu skoðanakannanir fyrir kosningar sýndu að í raun getur allt gerst þegar kjósendur ganga til atkvæða í dag. Samkvæmt einni þeirra höfðu um 40% kjósenda ekki enn gert upp hug sinn. Langt er síðan jafnmikil óvissa hefur ríkt um úrslit kosninga á Bretlandi. Síðasta könnunin, sem var birt, var gerð af Populus fyrir dagblaðið The Times og benti hún til þess að Íhalds- flokkurinn hefði níu prósentustiga forskot á Verkamannaflokkinn. Sam- kvæmt henni er Íhaldsflokkurinn með 37% fylgi, Verkamannaflokkur- inn með 28% og Frjálslyndir demó- kratar með 27%. Samkvæmt könnun ComRes fyrir fréttastofuna ITV og dagblaðið The Independent er Íhaldsflokkurinn með 37%, Verkamannaflokkurinn 29% og Frjálslyndir demókratar með 26%. Gengi þetta eftir fengi Íhalds- flokkurinn 289 sæti á þingi, Verka- mannaflokkurinn 258, en Frjálslyndi flokkurinn aðeins 75. Samkvæmt þessari könnun eru 40% kjósenda óákveðin, en frammámenn í Verka- mannaflokknum sögðu að rannsóknir flokksins bentu til þess að aðeins 20% væru óákveðin og héldu þeir því fram að helmingur þeirra, sem segðust ætla að kjósa frjálslynda, hefðu enn ekki fyllilega gert upp hug sinn. Ekki eru neinar ákveðnar reglur til um það hvað skuli gera nái enginn flokkur meirihluta í kosningunum. Undir venjulegum kringumstæðum færu stjórnarskipti fram um leið og úrslitin eru ljós, en þurfi að mynda samsteypustjórn mun Gordon Brown sitja áfram þar til hún hefur verið mynduð. Mikil umræða hefur verið um kosn- ingafyrirkomulagið í Bretlandi fyrir þessar kosningar og er ljóst að henni mun ekki linna að þeim loknum. Í Bretlandi eru einmenningskjördæmi og sætafjöldi flokka á þingi er því iðu- lega ekki í neinu samhengi við fylgi þeirra. Þetta hefur sérstaklega átt við um Frjálslynda demókrata. Þá er algengt að Verkamanna- flokkurinn vinni nauma sigra, en Íhaldsflokkurinn með miklum mun. Íhaldsflokkurinn gæti því hæglega fengið mun meira fylgi en Verka- mannaflokkurinn, en færri sæti á þingi. Frjálslyndir virðast víða munu verða í öðru sæti þannig að mikill fjöldi þeirra atkvæða mun ekki nýt- ast. Hvort þessi staða mun leiða til þess að breytingar verði gerðar á breska kosningakerfinu er annað mál, en líklegt er að frjálslyndir verði í lyk- ilstöðu til að knýja fram uppstokkun á því. Óvissa á lokasprettinum  Allt bendir til þess að enginn flokkur nái meirihluta þegar Bretar ganga að kjörborðinu í dag  Einmenningskjördæmi gera það að verkum að fylgi flokkanna og fjöldi þingsæta fara ekki saman Reuters Hreinsað til Götusópari var að störfum fyrir utan bústað breska forsætisráðherrans að Downing-stræti 10 í gær. Bretar ákveða í dag hver mun búa þar næsta kjörtímabil og er langt síðan jafn óvíst hefur verið um úrslit. Í HNOTSKURN » Íhaldsflokkurinn gætifengið hreinan meirihluta. Til þess þarf hann 326 sæti í neðri deild þingsins og er ólík- legt að hann nái því. »Nái Íhaldsflokkurinn 310sætum gæti hann myndað stjórn án þess að leita til Frjálslyndra demókrata. » Íhaldsflokkurinn gætifengið meira fylgi en færri þingsæti en Verkamanna- flokkurinn. Í gær sýndu kann- anir að Íhaldsflokkurinn fengi 35% atkvæða og 270 sæti, en Verkamannaflokkurinn 29% atkvæða og 272 sæti. Íhalds- flokkurinn gæti þó myndað stjórn með frjálslyndum. »Fengi Verkamannaflokk-urinn mest fylgi án þess að ná meirihluta gæti hann reynt að mynda stjórn með Frjáls- lyndum demókrötum og halda völdum fjórða tímabilið. Það gæti þó kostað Gordon Brown forsætisráðherrastólinn því að Nick Clegg, leiðtogi frjáls- lyndra, hefur sagt að það sé skilyrði fyrir samstarfi að Brown fari frá. GORDON Brown forsætisráðherra gerði í gær úrslita- tilraun til að telja kjósendur á að tryggja sér áframhald- andi völd með því að kjósa Verkamannaflokkinn. Hann sagði í viðtali við BBC síðdegis í gær að hann hefði „dómgreindina og gildin“ til að taka erfiðar og mik- ilvægar ákvarðanir. Á kosningafundi í Bradford sagði Brown að stjórn Íhaldsflokksins myndi steypa Bretlandi í kreppu með loforðum um mikinn niðurskurð. „Ég er baráttumaður, ég gefst ekki upp,“ sagði Brown. „Ég er ekki að berjast fyrir mig, heldur framtíð Bretlands,“ sagði hann. Tveir ráðherrar úr Verkamannaflokknum hafa skor- að á stuðningsmenn flokksins að sýna kænsku í þeim kjördæmum þar sem þeirra frambjóðendur eiga ekki möguleika og greiða atkvæði sitt frekar Frjálslyndum demókrötum til að koma í veg fyrir að Íhaldsflokkurinn næði meirihluta. Brown játti því í gær að sums staðar væri slagurinn á milli frjálslyndra og íhaldsmanna, en sagði að hann vildi að allir stuðningsmenn Verkamannaflokksins kysu flokkinn. Úrslitatilraun Browns Úrslitastund Gordon Brown í Bradford. DAVID Cameron, leiðtogi Íhaldsflokksins, unni sér ekki hvíldar síðasta sólarhring kosningabaráttunnar. Hann var á þönum alla aðfaranótt miðvikudagsins og talaði við fólk á næturvaktinni í Lancashire, Yorkshire og víð- ar. Hann sagði í gær að í hönd færu „mikilvægustu kosn- ingarnar í heila kynslóð“. Cameron var spurður um hið nauma forskot, sem Íhaldsflokkurinn hefur samkvæmt skoðanakönnunum. „Ég sagði aldrei að þessar kosningar yrðu auðveldar,“ svaraði hann. „Kosningar eiga að vera ögrun. Breska þjóðin færir þér ekki stjórnartaumana á fati, hún lætur okkur með réttu vinna fyrir þeim.“ Íhaldsflokkurinn reyndi í fyrradag að höfða til stuðn- ingsmanna Frjálslyndra demókrata með því að birta myndband þar sem minnt var á að Tony Blair hefði dregið bresku þjóðina í Íraksstríðið. Frjáls- lyndir demókratar hafa reynt að slá sér upp á því að þeir lögðust gegn inn- rásinni í Írak. Íhaldsflokkurinn gagnrýnir Verkmannaflokkinn í mynd- bandinu fyrir að hafa beitt blekkingum í aðdraganda Íraksstríðsins. Kosningabarátta án hvíldar Næturvakt Came- ron á fiskmarkaði í Grimsby. NICK Clegg, leiðtogi Frjálslyndra demókrata, skoraði í gær á kjósendur að treysta „sinni betri vitund“ og kjósa flokk sinn, kosningarnar í dag væru „okkar tækifæri“. Stjarna Cleggs reis á einni nóttu í bresku kosninga- baráttunni eftir frammistöðu hans í fyrstu sjónvarps- kappræðum leiðtoga stóru flokkanna þriggja í breskri pólitík af þremur. Clegg sagði í ávarpi í Eastbourne að kjósendur gætu valið á milli hinna „gömlu stjórnmála fortíðarinnar og nýrra, öðruvísi stjórnmála framtíðarinnar“. Hann bætti við að veittu kjósendur honum stuðning sinn myndi hann „vinna þrotlaust að því að efla sanngirni“ í bresku sam- félagi. Allt útlit er fyrir að flokkur Cleggs vinni sinn stærsta sigur frá upphafi í kosningunum í dag. Fari svo að enginn flokkur fái meirihluta verða frjálsir demókratar í lykilstöðu. Clegg hét því í gær þegar hann var spurður hvort hann myndi berjast fyrir hlutfallskosningu að hvernig sem kosningarnar færu myndi hann leggja áherslu á sanngjarnara kosningakerfi. Kjósendur treysti betri vitund Lokasprettur Nick Clegg í Sheffield. FRAKKAR og Spánverjar eru komnir í hár sam- an um framtíð- arfiskveiðistefnu Evrópusam- bandsins. Spán- verjar, sem eru með stærsta fisk- veiðiflota Evr- ópu, styðja það að komið verði á fót markaði í Evrópu með fiskveiðirétt- indi á óformlegum fundi sjáv- arútvegsráðherra ESB í Vigo á Spáni í gær. Slíkt kerfi myndi opna fyrir kvótaviðskipti. „Í dag eru fiskveiðar einn þeirra geira, sem ekki lúta öllum reglum innri markaðarins,“ sagði Javier Ga- rat, forsprakki samtaka spænskra sjómanna, í gær. Frakkar leiða þær þjóðir, sem eru á móti framseljanlegum kvóta á vettvangi Evrópusambandsins. Þeirra á meðal eru meira að segja þjóðir á borð við Hollendinga, Dani og Eista, sem þeg- ar hafa komið slíku kerfi á heima fyrir. Fulltrúar þeirra telja að yrði slíku kerfi komið á í Evrópu- sambandinu myndi það leiða til þess að kvóti þeirra lenti í höndum erlendra út- gerða auk þess sem búast mætti við óæskilegri samþjöppun. Kvótakerfið í Danmörku hefur leitt til þess að á þremur árum hefur fiskveiðiflotinn minnkað um þriðj- ung. Það hefur einnig haft góð áhrif í Eistlandi og Hollandi. Sjávarútvegsstefna Evrópusam- bandsins er endurskoðuð á tíu ára fresti og á þessari endurskoðun að ljúka á næsta ári. Deilt um framselj- anlegan kvóta Ósætti Hugmyndir um framselj- anlegan kvóta valda deilum í ESB. Rannís boðar til kynningar á Rannsóknasjóði í tengslum við næsta umsóknarfrest 1. júní 2010. Farið verður yfir hlutverk sjóðsins, þá styrkmöguleika sem eru í boði auk þess sem fjallað verður um umsóknir og mat þeirra. Í lokin verða fyrirspurnir og umræður. Hlutverk Rannsóknasjóðs er að styrkja vísindarannsóknir á Íslandi. Sjóðurinn styrkir skilgreind rannsóknaverkefni einstaklinga, rannsóknahópa, háskóla, rannsóknastofnana og fyrirtækja. Kynningin fer fram á Grand Hótel Reykjavík 4. hæð og hefst kl. 9:00. Léttur morgunverður í boði fyrir fundargesti frá 8:30. Skráning á rannis@rannis.is Rannsóknasjóður Kynningarfundur 7. maí kl. 9:00-11:00 Laugavegi 13, 101 Reykjavík sími 515 5800, rannis@rannis.is www.rannis.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.