Morgunblaðið - 06.05.2010, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 06.05.2010, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2010 Ísem stystu máli segir TheImaginarium of Doctor Par-nassus frá baráttunni milligóðs og ills. Í aðeins lengra máli þá segir hún frá gömlum drykkjubolta, Doctor Parnassus (Christopher Plummer), sem ferðast um Lundúnir með dvergvöxnum að- stoðarmanni sem heitir Percy (Verne Troyer), Valentinu dóttur sinni (Lily Cole) og liðléttingnum Anton (Andrew Garfield). Íveru- staður þeirra er hestvagn mikill sem þau breyta í svið og setja upp sýn- ingu sem felst í því að tæla fólk inn í spegil þar sem það stígur inn í æv- intýraheim, höfuð Doctors Parnas- sus, og stendur síðan frammi fyrir vali á milli góðs og ills – velji það rétt skrifast sálin í registur Parnassus, en ef viðkomandi velur syndina fær skrattinn sálina. Smám saman kemur nefnilega í ljós að fyrir langa löngu gerði Par- nassus samning við skrattann (Tom Waits) um eilíft líf og lofaði að láta af hendi frumburð sinn er hann yrði fullveðja. Líður nú að því að stúlkan verði sextán ára og ljóst að sá ljóti fær fínan bita, eða hvað? Þegar þau finna mann hangandi undir brú, Tony (Heath Ledger), fer ýmislegt á annan veg. Þessi mynd er meðal annars fræg fyrir það að vera síðasta myndin sem Heath Ledger lék í, en þess ber að geta að hann náði ekki að ljúka við myndina; það átti eftir að taka upp ævintýratriði hans í myndinni. Það er leyst býsna vel, því þeir hlaupa í skarðið Johnny Depp, Jude Law og Colin Farrell sem passar prýðilega við söguþráðinn þar sem þeir sýna hver sína mynd af viðkomandi. Líkt og vill vera með myndir eftir Terry Gilliam ber andinn efnið stundum ofurliði og innan um snilld- aratriði koma sérkennilegir sprettir sem maður þarf eiginlega að sjá aft- ur til að grípa. Að því leyti er myndin vonbrigði, framvindan er ekki nógu hnitmiðuð, en í henni eru samt slíkir snilldarkaflar að maður stendur nánast á öndinni. Miklu skiptir með myndina hvað Lily Cole stendur sig vel í henni, nær að vera í senn sak- laust barn og svo óforvarandis orðin óforbetranleg daðurdrós, og eins stendur Tom Waits sig frábærlega sem djöfullinn. Christopher Plum- mer á sína spretti en er kannski heldur klisjukenndur á köflum. The Imaginarium of Doctor Par- nassus er semsé góð skemmtun, en skilur eftir sig fullmargar spurn- ingar. Saklaus Lily Cole á stjörnuleik sem Valentina í kvikmyndinni The Imaginarium of Doctor Parnassus. Baráttan milli góðs og ills The Imaginarium of Doctor Parnassus bbbnn Leikstjóri og handritshöfundur Terry Gilliam. Aðalhlutverk Heath Ledger, Christopher Plummer, Verne Troyer, Lily Cole, Andrew Garfield, Tom Waits, Johnny Depp, Colin Farrell og Jude Law. Bretland 2010. Árni Matthíasson KVIKMYND SÖNGKONAN Madonna segist ætla að taka sér hlé frá tónlistinni til þess að einbeita sér að fjölskyldunni og nýjustu mynd sinni, W.E. „Ég hef í rauninni ekkert einbeitt mér að tónlistinni í langan tíma því myndin á hug minn allan. Ég á fjögur börn og hef bara enga orku í neitt annað,“ sagði poppdrottningin í samtali við Interview Magazine. „Þetta er svolítið skrýtið því ég er ekki einu sinni með útgáfusamning. Ef ég geri tónlist á næstunni, þá veit ég ekki einu sinni hvernig ég ætti að gefa hana út.“ Madonna mun leikstýra myndinni W.E. en hún er einnig einn af handritshöfundum myndarinnar. Meðal leikara er elsta dóttir Madonnu, Lola Leon, og leik- ararnir Ewan McGregor, Vera Far- miga og Abbie Cornish. Madonna tekur sér hlé frá poppinu Madonna Með ættleiddri dóttur sinni Mercy James í Malaví fyrir skömmu. Reuters LEIKARINN Charlie Sheen hefur veitt móður tveggja barna sinna, Denise Richards, fullt forræði yfir þeim. Saman eiga þau sex ára strák, Sam, og fjögurra ára stúlku, Lolu. Richards fór fram á fullt forræði yfir börnunum og er ástæðan talin sú að Sheen hefur oftar en einu sinni kom- ist í kast við lögin, síðast fyrir að hafa ráðist að eiginkonu sinni. Reuters Richards Fékk fullt forræði. Fær fullt forræði RÝMINGARÚTSALA hefst í dag í verslun Skífunnar við Laugaveg en stefnt er að því að loka versluninni fyrir ágúst, að sögn Magnúsar Jónssonar, fjár- málastjóra Skífunnar. Magnús segir ástæðuna fyrir lokun verslunarinnar rekstrarörðugleika, húsnæðið sé of stórt og salan of lít- il til að reksturinn standi undir leigunni á því og öðrum kostnaði. Rýmingarútsalan mun standa yfir svo lengi sem birgðir endast, að sögn Magnúsar. Reksturinn gangi betur í verslanamiðstöðvum en á Laugaveginum og því verði að loka versluninni. Skífunni lokað Morgunblaðið/G.Rúnar Skífan Yfirgefur Laugaveginn í sumar. 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is Gauragangur (Stóra svið) Fös 7/5 kl. 20:00 Fös 21/5 kl. 20:00 Fös 4/6 kl. 20:00 Lau 8/5 kl. 20:00 Lau 22/5 kl. 20:00 Lau 5/6 kl. 20:00 Sun 9/5 kl. 20:00 Ný auka Fös 28/5 kl. 20:00 Fös 11/6 kl. 20:00 Mið 12/5 kl. 20:00 Sun 30/5 kl. 20:00 Lau 12/6 kl. 20:00 Eftir Ólaf Hauk Símonarson - tónlist Nýdönsk Faust (Stóra svið) Fim 6/5 kl. 20:00 Ný auka Fim 20/5 kl. 20:00 Fim 27/5 kl. 20:00 síð sýn í samvinnu Borgarleikhússins og Vesturports. Sýningum líkur 27. maí Skoppa og Skrítla á tímaflakki (Litla svið) Lau 8/5 kl. 14:00 Lau 15/5 kl. 12:00 Sun 16/5 kl. 12:00 Sun 9/5 kl. 14:00 Lau 15/5 kl. 14:00 Sun 16/5 kl. 14:00 Dúfurnar (Nýja sviðið) Fös 7/5 kl. 19:00 k.11. Fim 13/5 kl. 20:00 k.15. Fös 21/5 kl. 20:00 Fös 7/5 kl. 22:00 Fös 14/5 kl. 19:00 k.16. Lau 22/5 kl. 20:00 Lau 8/5 kl. 19:00 k.12. Fös 14/5 kl. 22:00 Fös 28/5 kl. 20:00 Sun 9/5 kl. 20:00 k.13. Lau 15/5 kl. 19:00 k.17. Sun 30/5 kl. 20:00 Mið 12/5 kl. 20:00 k.14. Lau 15/5 kl. 22:00 Rómeó og Júlía í leikstjórn Oskaras Korsunovas (Stóra svið) Fös 14/5 kl. 20:00 Lau 15/5 kl. 20:00 Í samvinnu við Listahátíð í Reykjavík Rómeó og Júlía Vesturports (Stóra svið ) Þri 11/5 kl. 20:00 k.1. Mið 26/5 kl. 20:00 k.4. Mið 9/6 kl. 20:00 aukas Sun 16/5 kl. 20:00 k.2. Mið 2/6 kl. 20:00 k.5. Sun 13/6 kl. 20:00 aukas Þri 18/5 kl. 20:00 aukas Sun 6/6 kl. 20:00 k.6. Mán 24/5 kl. 20:00 k.3. Þri 8/6 kl. 20:00 aukas Í samvinnu Borgarleikhússins og Vesturports. Eilíf óhamingja (Litli salur) Sun 16/5 kl. 18:00 síðasta sýn Fyrir þá sem þora að horfa í spegil. Snarpur sýningartími Villidýr / Pólitík eftir Ricky Gervais (Litla svið) Fös 7/5 kl. 20:00 Fös 14/5 kl. 20:00 Uppsetning Bravó - aðeins 4 sýningar. Athugið: Óheflað orðbragð Dúfurnar HHHH IÞ, MBL ÞJÓÐLEIKHÚSI SÍMI: 551 1200 • WWW.LEIKHUSID.IS Ð Gerpla (Stóra sviðið) Fim 6/5 kl. 20:00 Lau 15/5 kl. 20:00 Sýningar hefjast aftur í haust! Fíasól (Kúlan) Lau 8/5 kl. 13:00 Lau 15/5 kl. 13:00 Lau 12/6 kl. 13:00 Lau 8/5 kl. 15:00 Lau 15/5 kl. 15:00 Lau 12/6 kl. 15:00 Sun 9/5 kl. 13:00 Sun 16/5 kl. 13:00 Sun 13/6 kl. 13:00 Sun 9/5 kl. 15:00 Sun 16/5 kl. 15:00 Sun 13/6 kl. 15:00 Fim 13/5 kl. 13:00 Aukas. Lau 22/5 kl. 13:00 Fim 13/5 kl. 15:00 Aukas. Lau 22/5 kl. 15:00 Aukasýningar 13. maí komnar í sölu! Hænuungarnir (Kassinn) Fös 10/9 kl. 20:00 Fös 17/9 kl. 20:00 Fös 24/9 kl. 20:00 Lau 11/9 kl. 20:00 Lau 18/9 kl. 20:00 Lau 25/9 kl. 20:00 Sun 12/9 kl. 20:00 Sun 19/9 kl. 20:00 Sun 26/9 kl. 20:00 Fim 16/9 kl. 20:00 Fim 23/9 kl. 20:00 Uppselt út leikárið - haustsýningar komnar í sölu! Íslandsklukkan (Stóra sviðið) Fös 7/5 kl. 19:00 5.k Mið 19/5 kl. 19:00 Aukas. Fös 4/6 kl. 19:00 Lau 8/5 kl. 19:00 6.k Fös 21/5 kl. 19:00 Lau 5/6 kl. 19:00 Mið 12/5 kl. 19:00 7.k Lau 22/5 kl. 19:00 Fös 11/6 kl. 19:00 Aukas. Fim 13/5 kl. 19:00 Aukas. Sun 30/5 kl. 19:00 Lau 12/6 kl. 19:00 Aukas. Fös 14/5 kl. 19:00 8.k Fim 3/6 kl. 19:00 Aukas. Ath. sýningarnar hefjast kl. 19:00 Af ástum manns og hrærivélar (Kassinn) Fim 20/5 kl. 20:00 Frums. Fim 27/5 kl. 20:00 Fös 4/6 kl. 20:00 Fös 21/5 kl. 20:00 Fös 28/5 kl. 20:00 Lau 5/6 kl. 20:00 Lau 22/5 kl. 20:00 Fim 3/6 kl. 20:00 Sýningin er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og Listahátíðar í Reykjavík Bræður (Stóra sviðið) Fim 27/5 kl. 20:00 Fös 28/5 kl. 20:00 Sýningin er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík. Herra Pottur og ungfrú Lok (Kúlan) Lau 29/5 kl. 13:00 Sun 30/5 kl. 13:00 Lau 5/6 kl. 15:00 Lau 29/5 kl. 15:00 Fim 3/6 kl. 17:00 á frönsku Sun 6/6 kl. 13:00 Sun 30/5 kl. 13:00 Lau 5/6 kl. 13:00 Sun 6/6 kl. 15:00 Sýningin er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík Miðasala í Háskólabíói » Sími 545 2500 » www.sinfonia.is Sinfóníuhljómsveit Íslands Í kvöld kl. 19.30 Schumann & Brahms II Hljómsveitarstjóri: Arild Remmereit Einleikari: Jon Kimura Parker Johannes Brahms: Píanókonsert nr. 1 Robert Schumann: Sinfónía nr. 1 „Vorsinfónían“ Munið Vinafélagskynningu í kvöld kl. 18.00 í Neskirkju Árni Heimir Ingólfsson tónlistarstjóri SÍ fjallar verkin á tónleikunum. Kynningin fer fram á kaffitorginu í Neskirkju og hægt er að kaupa ljúffenga súpu á 1500 kr. Allir eru velkomnir. Aðalfundur Vinafélags SÍ verður haldinn fyrir kynninguna og hefst hann kl. 17.30.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.