Morgunblaðið - 06.05.2010, Side 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2010
Icesave gægist stundum upp úr ösk-unni af Eyjafjallajökli og ótrú-
verðugum umræðum um prófkjörs-
styrki.
Fréttamenn spyrja Steingrímáhyggjufullir hvort eitthvað sé
að „frétta af viðræðunum“. Stein-
grímur segist jafnvel hafa séð tölvu-
póst „síðast í gær“ sem sýni að enn sé
líf í viðræðunum.
Hann lætur jafn-
vel vera að hreyta
skít í fjarstadda
menn í leiðinni.
En það er von aðSteingrímur
sé spurður því
hann hefur ótal
sinnum í heilt ár sagt að dragist
„samningar“ um Icesave lengur en
tvo til þrjá daga sé allt í voða.
Ríkissjónvarpið hefur haft fjórarfréttir á síðustu sjö dögum með
sínum áhyggjum af því hvenær við
getum aftur farið að ræða um hvern-
ig við ætlum að greiða „Icesave-
skuldirnar(!)“ eða ganga frá „Ice-
save-skuldbindingunum(!)“
Með leyfi að spyrja: Hver hefursagt RÚV að halda því fram að
Íslendingar skuldi útlendingum pen-
inga sem þeir lögðu inn fúsir hjá
einkafyrirtæki sem bauð hærri vexti
en aðrir?
Rannsóknarskýrslan, sem er fróð-leg um margt, fjallar mikið um
þessar ætluðu skuldbindingar.
Og það má vera augljóst öllum semþann texta lesa að nefndin lítur
ekki svo á að ríkið, þ.e. íslenskir
skattgreiðendur, beri neina ábyrgð á
þeim „skuldbindingum“.
Af hverju vill RÚV ekki trúa þess-um upplýsingum úr hinni góðu
skýrslu eins vel og öðru?
Skuldaviðurkenning RÚV
ODDVITAR átta framboða fyrir borgarstjórnar-
kosningar í Reykjavík tókust á í hádeginu í gær
á opnum fundi sem Háskólinn í Reykjavík stóð
fyrir í salarkynnum sínum, í beinni útsendingu á
mbl.is. Meðal þess sem kom fram á fjölsóttum
fundinum var að Hanna Birna Kristjánsdóttir
borgarstjóri ítrekaði hugmynd sína um að allir
flokkar tækju sig saman að loknum kosningum
og störfuðu saman í „þjóðstjórn“. Borgarfull-
trúarnir 15 ættu allir að vera í vinnu fyrir borg-
arbúa. Sjö menn í minnihluta ættu ekki bara að
vinna við það að gagnrýna hina átta í meirihlut-
anum, sem myndu svo sjá um allt. Ekkert væri í
lögum um að þannig ætti að vinna hlutina. Einar
Skúlason, oddviti framsóknarmanna, sagði
Hönnu Birnu hafa staðið sig vel sem borg-
arstjóra en ef mynduð yrði „þjóðstjórn“ yrði
borgarstjórinn að vera ópólitískur.
ODDVITAR Í BORGINNI TÓKUST Á Á OPNUM FUNDI
Morgunblaðið/Golli
Veður víða um heim 5.5., kl. 18.00
Reykjavík 7 súld
Bolungarvík 10 þoka
Akureyri 11 alskýjað
Egilsstaðir 7 skýjað
Kirkjubæjarkl. 16 skýjað
Nuuk 2 léttskýjað
Þórshöfn 10 skýjað
Ósló 10 heiðskírt
Kaupmannahöfn 10 léttskýjað
Stokkhólmur 9 heiðskírt
Helsinki 8 léttskýjað
Lúxemborg 12 heiðskírt
Brussel 11 léttskýjað
Dublin 16 skýjað
Glasgow 18 léttskýjað
London 14 skýjað
París 11 skýjað
Amsterdam 12 léttskýjað
Hamborg 12 skýjað
Berlín 13 heiðskírt
Vín 12 skúrir
Moskva 24 heiðskírt
Algarve 20 heiðskírt
Madríd 16 skýjað
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Róm 17 léttskýjað
Aþena 22 skýjað
Winnipeg 4 skúrir
Montreal 15 alskýjað
New York 25 heiðskírt
Chicago 18 skýjað
Orlando 29 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
STAKSTEINAR
VEÐUR
6. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:43 22:07
ÍSAFJÖRÐUR 4:29 22:31
SIGLUFJÖRÐUR 4:11 22:15
DJÚPIVOGUR 4:07 21:41
„ALMENNT er ég ekki á móti því að upplýs-
ingar um mál séu gerðar opinberar. Hér er hins
vegar nauðsynlegt að fara fram af gát, því hvað
beingreiðslurnar varðar er í raun um að ræða
viðkvæmar upplýsingar um tekjur og fjárhags-
stöðu bænda í landinu,“ segir Haraldur Bene-
diktsson, formaður Bændasamtaka Íslands.
Í núverandi formi uppfyllir íslenska bein-
greiðslukerfið ekki reglur
ESB, segir í frétt á vefsetr-
inu Evrópuvaktinni. Fram
kemur að beingreiðslur séu
tengdar framleiðslu en sú
tilhögun er í andstöðu við
sameiginlega landbún-
aðarstefnu ESB. Ísland þarf,
samkvæmt reglum ESB, að
setja á laggirnar upplýs-
ingakerfi varðandi styrk-
þega, sem fá greiðslur samkvæmt landbún-
aðarstefnuninni, og gefa á út lista yfir nöfn
styrkþega árlega.
Haraldur Benediktsson segir að hafa verði í
huga að styrkjakerfi íslensks landbúnaðar sé
allt annað en gerist innan ESB. Hér skyldi
samningar handhafa beingreiðslna til að stunda
matvælaframleiðslu en ytra séu mun fleiri þætt-
ir teknir með í dæmið og krafan um framleiðslu
á mat sé ekki ráðandi. „En ef þetta kerfi á að
verða raunin vildi ég sjá fleiri atriði jafn-
gegnsæ, til dæmis almennt verð á landbúnaðar-
afurðum,“ segir formaður BÍ. sbs@mbl.is
ESB vill breytingar í
landbúnaðarmálum
Haraldur
Benediktsson
Nöfn styrkþega verði birt
FISKISTOFA hafði um miðjan dag í
gær fengið um 330 umsóknir um
leyfi til strandveiða, sólarhring eftir
að móttaka umsókna hófst. Þetta er
meiri ásókn en á fyrstu dögum um-
sókna fyrir veiðitímabilið síðasta
sumar, en þá höfðu 250 umsóknir
borist fyrsta sólarhringinn. Alls voru
gefin út 560 veiðileyfi í fyrra en
strandveiðar hófust þá í júnímánuði.
Langflestar umsóknir höfðu í gær
borist í strandveiðar á svæði A, sem
nær frá Eyja- og Miklaholtshreppi á
Snæfellsnesi sunnanverðu og til
Súðavíkurhrepps, eða um 180 um-
sóknir.
Næstflestar umsóknir hafa verið á
svæði D, eða 72 eins og staðan var í
gær. Það svæði nær frá Hornafirði
suður með landinu og að Borgar-
byggð. Á svæði C, frá Þingeyjarsveit
til Djúpavogshrepps, höfðu 54 um-
sóknir komið og 26 umsóknir á svæði
B, sem nær frá Strandabyggð að
Grýtubakkahreppi.
Úrvinnslu 66 umsókna lauk strax
á þriðjudag og verða leyfin gefin út
þegar greitt hefur verið fyrir þau.
Á vef Fiskistofu kemur fram að
reynt verði að afgreiða allar um-
sóknir eins hratt og auðið er. Vakin
er athygli á því að afgreiðsluferlið
geti tekið nokkra daga og að veiði-
leyfin taki ekki gildi fyrr en greitt
hefur verið fyrir þau.
Hvetur Fiskistofa þá sem ætla sér
á veiðar fyrstu daga strandveiði-
tímabilsins að drífa í að sækja um.
Ekki er heimilt að hefja veiðar fyrr
en 10. maí nk. bjb@mbl.is
Meiri áhugi nú á
strandveiðunum
Yfir 300 umsóknir fyrsta sólarhring
Strandveiðar Meiri áhugi á þeim
nú en á síðasta veiðitímabili.
Morgunblaðið/Heiddi
Matreiðslunámskeið að hætti Lindu
Heilnæmt, grænt
og gómsætt !
Hér er á ferð eitt eftirsóttasta matreiðslunámskeið
Lindu, sem hún hefur haldið um árabil í USA.
Á námskeiðinu kennir hún skemmtilegar leiðir til að nota
heilkorn og grænt grænmeti í girnilega rétti sem koma
braðlaukunum á óvart.
www.madurlifandi.is
Linda Pétursdóttir,
Certified Holistic Health Counsellor
kemur til Íslands og heldur námskeiðið
í Maður Lifandi Borgartúni þann 15. Maí
kl. 12:00 – 15:00. Verð: 6500 kr.
Skráning stendur yfir núna
í síma 585-8700
eða gg@madurlifandi.is
Ath. það eru aðeins 20 sæti
á þessu námskeiði.
MAÍ
515