Morgunblaðið - 06.05.2010, Síða 13
Fréttir 13INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2010
Á LAUGARDAG nk. kl. 14.00
verður opinn íbúafundur í Þjórs-
árveri í Flóahreppi. Á fundinum
verður fjallað um umhverfis- og
skipulagsmál, öflun neysluvatns
fyrir Flóann og náttúruvernd.
Framsögu á fundinum flytur
Svandís Svavarsdóttir, umhverf-
isráðherra, en eins og kunnugt er
hefur sveitarstjórn kært
umhverfisráðherra fyrir að sam-
þykkja ekki aðalskipulag gamla
Villingaholtshrepps. Þá mun Árni
Hjartarson frá ÍSOR fjalla um
neysluvatnsmál og Bergur Sig-
urðsson, fulltrúi Náttúruvernd-
arsamtaka Suðurlands, fjallar um
náttúruverndarmál og orkunýt-
ingu.
Að loknum framsöguerindum og
kaffihléi munu svo frummælendur
sitja fyrir svörum og taka þátt í
umræðum um málefni fundarins.
Fundur Umhverfis- og skipulagsmál
verða í brennidepli á íbúafundi.
Opinn fundur
um náttúruvernd
Í DAG, fimmtudag, er alþjóðlegi
megrunarlausi dagurinn (Int-
ernational No Diet Day) sem er al-
þjóðlegur baráttudagur gegn
megrun, átröskunum og fordómum
vegna holdafars.
Mary Evans Young stofnaði til
megrunarlausa dagsins árið 1992
til þess að vekja athygli á skaðleg-
um áhrifum útlitsdýrkunar og mis-
munun í garð þeirra sem falla utan
hins viðurkennda ramma um æski-
legan líkamsvöxt. Megrunarlausi
dagurinn var fyrst haldinn á Íslandi
árið 2006 til að vekja athygli á mál-
staðnum og hvetja til viðhorfs-
breytinga gagnvart líkamsvexti,
fegurð og hreysti.
Megrunarlausi
dagurinn
NÚ styttist í að frestur renni út
fyrir flokka og framboð til að til-
kynna þátttöku fyrir kosning-
arnar 29. maí. Framboðslistum
þarf að skila til yfirkjörstjórnar í
viðkomandi sveitarfélagi í síðasta
lagi kl. 12 á hádegi á laugardag,
8. maí. Sveitarstjórnarmenn sem
hyggjast skorast undan endur-
kjöri þurfa að tilkynna þá ákvörð-
un til yfirkjörstjórnar fyrir lok
framboðsfrests.
Framboðsfrestur
að renna út
STUTT
KRISTÍN Benediktsdóttir, dokt-
orsnemi við lagadeild Háskóla Ís-
lands, hlaut styrk að fjárhæð ein
milljón kr. úr sjóðnum „Rann-
sóknastyrkir Bjarna Benedikts-
sonar“. Veittir voru þrír styrkir á
sviði lögfræði og sagnfræði.
Kristín fær styrkinn til rann-
sóknar á réttarstöðu aldraðra.
Þór Whitehead sagnfræðingur
hlaut 500 þúsund kr. styrk til rann-
sóknar á Íslandi í síðari heimsstyrj-
öldinni. Þá hlaut Sigríður Matthías-
dóttir, Hugvísindastofnun Háskóla
Íslands, 500 þúsund kr. til að rann-
saka hugmyndir og viðhorf í stjórn-
arstefnu Viðreisnarstjórnarinnar á
sviði velferðar- og menntamála.
Árlegir rannsóknarstyrkir
Úthlutunin var kynnt við athöfn í
Norræna húsinu í gær en Rann-
sóknastyrkir Bjarna Benedikts-
sonar eru veittir árlega. Þriggja
manna úthlutunarnefnd á sviði lög-
fræði og sagnfræði ákvarðar hvaða
rannsóknarverkefni skuli hljóta
styrki.
Morgunblaðið/Eggert
Úthlutun Kristín Benediktsdóttir tekur við styrk sínum úr hendi Bjargar
Thorarensen úr dómnefnd við athöfn í Norræna húsinu í gær.
Rannsakar réttar-
stöðu aldraðraHRÖÐ aukning umferðar sem varðá vegum landsins á árunum 2005 til
2007 er hætt og samdráttar tekið
að gæta. Kemur það fram í saman-
tekt Vegagerðarinnar á sextán
völdum talningarstöðum á hring-
veginum.
Umferðin dróst saman um 3,2%
fyrstu fjóra mánuði ársins. Þetta er
mesti samdráttur í langan tíma.
Mesti samdrátturinn kom fram í
aprílmánuði, tæp 8%.
Samdráttur er á öllum svæðum,
nema Norðurlandi þar sem örlítil
aukning kemur fram. Vegagerðin
veltir því upp hvort mikil sókn
skíðafólks til Akureyrar valdi því.
8% minni umferð
á hringveginum