Morgunblaðið - 11.05.2010, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 11.05.2010, Qupperneq 1
Ólafur Þór segir að með ákvörð- un sinni hafi dómurinn tekið undir þau rök sem færð hafi ver- ið af hálfu ákæruvaldsins, fyrir því að úrskurða bæri þá Hreiðar Má Sigurðs- son og Magnús Guð- mundsson í varðhald. Rökin héldu ÓLAFUR ÞÓR HAUKSSON Þ R I Ð J U D A G U R 1 1. M A Í 2 0 1 0  Stofnað 1913  107. tölublað  98. árgangur  Önundur Páll Ragnarsson onundur@mbl.is Hæstiréttur Íslands staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðs- dóms Reykjavíkur yfir þeim Hreiðari Má Sigurðssyni, fyrrver- andi forstjóra Kaupþings, og Magn- úsi Guðmundssyni, fyrrverandi for- stjóra Kaupþings í Lúxemborg, síðar Banque Havilland. Þetta stað- festir Ólafur Þór Hauksson, sérstak- ur saksóknari vegna efnahagshruns- ins. Þau Hjördís Hákonardóttir, Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson kváðu upp úr- skurðinn. Einn dómari, Jón Steinar Gunnlaugsson, skilaði sératkvæði. Ólafur Þór Hauksson, sem staddur er í Svíþjóð þar til annað kvöld, sagð- ist í gær ekki hafa séð úrskurðinn eða forsendur hans. Hann sagði þó að með ákvörðun sinni hefði dómurinn tekið undir þau rök sem færð hefðu verið af hálfu ákæruvaldsins, fyrir því að úrskurða bæri þá Hreiðar Má og Magnús í gæsluvarðhald. Á föstudag var Hreiðar Már úr- skurðaður í gæsluvarðhald í tólf daga og Magnús í viku, að beiðni sér- staks saksóknara. Ólafur Þór vildi ekkert tjá sig um það hvort Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarfor- maður Kaupþings, hefði beðið sér griða fyrir embættinu og sett skilyrði fyrir því að koma í yfirheyrslur. Ólafur sagði það ekki undir fólki sjálfu komið hvort það mætti í yfirheyrslur hjá sak- sóknara eða ekki væri það á annað borð boð- að.  Hreiðar Már Sigurðsson og Magnús Guðmundsson áfram í gæsluvarðhaldi Hæstiréttur staðfesti varðhaldið Héraðsráðunautar hvaðanæva af landinu munu í dag og á morgun heimsækja bæi á öskufallssvæðinu undir Eyjafjallajökli og meta þörf bænda fyrir að- stoð vegna fóðuröflunar og beitar í sumar. Ætlunin er að eftir heimsóknirnar liggi fyrir gögn sem gefi raungóða mynd af ástandinu í landbúnaðinum. »6 Morgunblaðið/Júlíus Askan vofir yfir grænum túnum Una Sighvatsdóttir una@mbl.is Landsbankinn hefur í hyggju að bjóða ein- staklingum og fyrirtækjum í viðskiptum við bankann 25% lækkun á höfuðstól erlendra lána gegn því að þeim verði breytt í verð- tryggð eða óverðtryggð lán í íslenskum krónum. Lækkunin á við um öll lán í erlend- um myntum, ekki bara íbúðalán, og viðskiptavinum bankans stendur til boða að sækja um þessa lausn. Að sögn Krist- jáns Kristjánssonar, upplýsingafulltrúa Landsbankans, er stefna bankans sú að einfalda kerfið til muna þannig að bæði einstaklingar og fyrirtæki fái mun hraðari úrlausn sinna mála. Þannig verði skilyrði fyrir höfuðstólslækkun almennari en tíðkast hef- ur. Til samanburðar hefur Landsbankinn hingað til boðið einstaklingum höfuðstóls- lækkun íbúðalána og var lækkunin breyti- leg eftir myntsamsetningu lánsins og því hversu langur tími var eftir af umsömdum lánstíma. „Nú geta allir viðskiptavinir bankans sótt um þessa lækkun og fengið þá einhverjar aðrar lausnir í kjölfarið ef í ljós kemur að þessi leið dugar ekki til eða hent- ar ekki,“ segir Kristján. Til viðbótar verður boðið upp á aftur- virka leiðréttingu fyrir þá viðskiptavini sem greiddu upp lán sín eftir hrun eða fengu lægri höfuðstólslækkun eftir að hún tók fyrst gildi í nóvember á síðasta ári. Lands- bankinn mun kynna höfuðstólslækkun lána nánar í dag og opna fyrir umsóknir. Bjóða 25% lækkun  Landsbanki lækkar höfuðstól erlendra lána Lántakendur » 10.000 einstaklingar eru með íbúða- lán hjá Lands- bankanum. » Um 30% þeirra hafa leit- að úrræða vegna greiðslu- erfiðleika. SEXTÍU SAMAN Í KAPPHLAUPI Á KRÓKNUM ALNÆMI OG BÖRN Í AFRÍKU STJÖRNUSKIN Á PRINSINUM FRÁ PERSÍU FÓLK Í FRÉTTUM 32 Ekki tæki til að fjármagna ríkið  Lífeyrissjóðirnir eiga ekki að vera tæki fyrir stjórnvöld til að ná í fjármagn. Kom þetta fram í máli Gunnars Andersen, forstjóra Fjár- málaeftirlitsins, á ráðstefnu aðila vinnumarkaðarins um lífeyris- kerfið í gær. Vék hann að reynslu sinni þegar hann vann fyrir lífeyrissjóð hjá Sameinuðu þjóðunum. Þar hefðu þrjú markmið verið ráðandi í fjár- festingarstefnu. Fjárfestingar þurftu að vera arðbærar, öruggar og auðseljanlegar. Hann sagði að sjóðurinn hefði oft þurft að verjast ásókn einstakra ríkja, sem vildu fá sjóðinn til að fjárfesta í opinberum framkvæmdum. Lausnin sem notuð var fólst í því að sjóðurinn fjárfesti ekki beint í opinberum framkvæmdum, heldur keypti skuldabréf af þróunar- bönkum, sem aftur fjárfestu í fram- kvæmdunum. »14 Byggt Rætt er um að lífeyrissjóðir komi að opinberum framkvæmdum.  Gordon Brown, forsætis- ráðherra Bret- lands, hyggst hætta sem leið- togi Verka- mannaflokksins í haust. Ákvörð- unin er sögð til- raun til að greiða fyrir stjórnar- myndunarviðræðum við Frjáls- lynda demókrata. Ljóst þykir að frjálslyndir ætla sér að mynda samsteypustjórn með íhaldsmönnum eða Verka- mannaflokknum en samningar hafa ekki tekist enn. Brown hættir sem leiðtogi flokksins Gordon Brown  Óvissa er um veiðar á hval í sumar, vegna frumvarpsins um hvalveiðar sem liggur fyrir Al- þingi, að mati forráðamanna Hvals hf. Verði það að lögum á næstunni fari í gang ferli um- sagna og ákvarð- anatöku, sem Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals, segir geta tekið tvo mánuði. Til stóð að ráða um 150 manns. „Staðan er hins vegar svo óljós að ég get ekki gefið fólki ákveðin svör og hef frestað því að setja skipin í slipp.“ »12 Lagafrumvarp setur veiðarnar í uppnám Margir hafa falast eftir vinnu í Hval- stöðinni. FRÉTTASKÝRING EFTIR KRISTJÁN JÓNSSON 15HREYFING OG ÚTIVIST 10

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.