Morgunblaðið - 11.05.2010, Síða 2

Morgunblaðið - 11.05.2010, Síða 2
FRÉTTASKÝRING Egill Ólafsson egol@mbl.is Ekki liggur fyrir hvort meirihluti er á Alþingi fyrir breytingum á stjórnarráðinu. Efasemdir eru um málið meðal þingmanna VG á lands- byggðinni, en þingmenn flokksins á höfuðborgarsvæðinu styðja flestir tillögurnar. Jóhanna Sigurðardóttir for- sætisráðherra leggur mikla áherslu á að klára þetta mál á þessu ári þannig að ný ráðuneyti taki til starfa í haust eða í síðasta lagi um áramót. Þingflokkur Samfylkingarinnar styður hana í þessu máli. Málið var rætt á löngum fundi ríkisstjórn- arinnar í fyrrakvöld. Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráð- herra, lýsti á fundinum skýrri and- stöðu við fyrirliggjandi tillögur um sameiningu landbúnaðar- og sjáv- arútvegsráðuneytis og iðnaðarráðu- neytis í eitt atvinnuvegaráðuneyti. Aðrir ráðherrar VG eru hins vegar jákvæðir í garð tillagnanna. Stein- grímur J. Sigfússon fjármálaráð- herra tók fram að ekkert lægi fyrir um hvenær endanleg afstaða yrði tekin til málsins. Hann sagði jafn- framt að hugsanlega yrði farið í mál- ið sem hluta af víðtækum aðgerðum í ríkisfjármálum. Búið er að ræða málið í þing- flokki VG oftar en einu sinni, en endanleg afstaða flokksins liggur ekki fyrir. Jón Bjarnason og Ás- mundur Einar Daðason eru eindreg- ið á móti þessum tillögum. Efasemd- ir eru meðal fleiri þingmanna flokksins á landsbyggðinni. Það er því ekki víst að meirihluti sé á Al- þingi fyrir tillögunum. Þingmenn flokksins á höfuðborgarsvæðinu eru hins vegar almennt fylgjandi tillög- unum og sumir telja raunar að þær feli í sér sigur fyrir flokkinn. Með þeim sé verið að efla umhverfisráðu- neytið, en flokkurinn hefur lengi haft það á stefnuskrá sinni að koma á fót umhverfis- og auðlindaráðu- neyti. Í stjórnarsáttmálanum lýsa flokkarnir breytingum á stjórn- arráðinu sem þeir séu sammála um. Þar kemur hins vegar ekki fram hversu hratt eigi að ráðast í málið og innan þingflokks VG eru þau sjónar- mið að ekki þurfi að klára málið strax, sérstaklega í ljósi þess að Ís- land hafi sótt um aðild að ESB og líklegt sé að það komi til með að mæða mest á sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu í þessum viðræðum. Með því að gera breyt- ingar núna sé verið að veikja þennan málaflokk innan stjórnkerfisins. Þingflokkur VG ræddi málið í gær og ætlar að fjalla frekar um málið á næstunni. Ekkert liggur fyr- ir um hvenær niðurstöðu er að vænta. Er meirihluti fyrir breytingum?  Óljóst er hvort meirihluti er fyrir tillögum um breytingar á stjórnarráðinu innan stjórnarflokkanna  Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar ræddi málið í gær og ætlar að skoða það betur næstu daga Jón Bjarnason Ásmundur Einar Daðason Stjórnkerfisbreytingar » Í drögum að frumvarpi um breytingar á stjórnarráðinu er gert ráð fyrir að ný ráðu- neyti taki til starfa 1. sept- ember. » Frumvarpið gerir ráð fyrir að sjávarútvegs- og landbún- aðarráðuneytið og iðnaðar- ráðuneyti sameinist í eitt at- vinnuvegaráðuneyti. » Að mati fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytisins leiðir frumvarpið til 360 milljóna beins sparnaðar á ári þegar áhrifin eru að fullu komin fram. Helgi Sigurðsson og Kristinn Páls- son báru sigur úr býtum í sam- keppni Morgunblaðsins um skop- teikningar, sem staðið hefur yfir síðustu vikur. Þátttaka í keppninni var vonum framar, en 25 manns tóku þátt og sendi hver teiknari nokkrar myndir. Þær eru enn til sýnis á fréttavefnum mbl.is. Margir þátt- takendur voru mjög hæfileikaríkir og reyndist vandasamt verk að velja sigurvegara. Helgi ríður á vaðið í blaðinu í dag, á hefðbundnum stað skopteikninga í blaðinu, við hlið Staksteina á blað- síðu átta. Myndir hans munu fram- vegis birtast á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum. Helgi er reynslumikill og hefur um árabil starfað sem teiknari og hönnuður. Hann hefur áður getið sér gott orð fyrir teikningar í dagblöð. Hann sendi níu myndir inn í sam- keppnina á mbl.is Kristinn er ungur að árum, 18 ára gamall nemandi við Verzlunarskóla Íslands og teiknar nú í fyrsta sinn fyrir dagblað. Hans myndir munu birtast á mánudögum, mið- vikudögum og föstudögum. Hann sendi tíu myndir í keppnina. Sigurlaunin eru 500.000 krónur sem skiptast jafnt á milli þeirra Helga og Kristins, en þar að auki hefur verið samið við þá um að halda áfram að sýna frammámenn sam- félagsins í spéspeglum sínum og kitla hláturtaugar lesenda Morg- unblaðsins út ágústmánuð hið minnsta. Að þeim tíma liðnum verð- ur áframhaldandi ráðning tekin til skoðunar. Hinum teiknurunum tuttugu og þremur er þakkað fyrir þátttökuna og þeir Helgi og Kristinn boðnir vel- komnir til starfa. Reynslumikill Helgi Sigurðsson hefur um árabil starfað sem teiknari og hönnuður. Tveir teikna skopmyndir Morgunblaðsins Helgi Sigurðsson Kristinn Pálsson Þátttaka í samkeppni um skopteikningar í Morgunblaðinu var vonum framar Ferskur byrjandi Kristinn Pálsson hefur feril sinn sem skopmyndateiknari á síðum Morgunblaðsins. Mhttp://mbl.is/skopteiknari 2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 2010 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Fullt hús var á listmunauppboði Gallerís Foldar í gærkvöldi. Tryggvi Páll Friðriksson listmuna- sali segir að áhugi á myndlist sé alltaf mikill en hins vegar sé gjarnan eitthvað sem komi á óvart það slegið á 2,8 milljónir króna. Tryggvi segir að sala listmuna sé nú á svipuðu róli og hún var um áramótin 2005-2006 en í millitíðinni rauk verðið upp úr öllu valdi og náði hápunkti árið 2007. í sölunni. Í gær fékkst t.a.m. ekki viðunandi boð í málverk af bátum eftir Svavar Guðnason og seldist það því ekki. Dýrasta verkið sem seldist í gær var verkið Álfheimar eftir Kjarval og var Morgunblaðið/Golli Kjarval var sleginn en Svavar ekki Karlmaður lést síðdegis í gær þegar hann bar af leið í sviffallhlíf og skall utan í hamravegg vestan í Ingólfs- fjalli. Maðurinn lagði upp af fjallinu en vindar báru hann af leið. Félagi hans tilkynnti slysið en þegar björg- unarsveitir komu á vettvang var maðurinn látinn. Lögreglan á Selfossi fer með rannsókn málsins og við frumrann- sókn var einnig leitað til Rannsókn- arnefnda flugslysa. Hinn látni er af erlendu bergi brotinn og var búsett- ur á höfuðborgarsvæðinu. Ekki er unnt að gefa upp nafn hans á þessari stundu. una@mbl.is Banaslys á Ingólfsfjalli Maðurinn sem fannst látinn fyrir ut- an íbúðarhús við Eyjabyggð í Kefla- vík á laugardagsmorgun hét Haukur Sigurðsson, fæddur 24. október 1957. Haukur var búsettur í Sandgerði. Hann lætur eftir sig eiginkonu og þrjú uppkomin börn. Liðlega þrítugur maður er í haldi lögreglunnar á Suðurnesjum, grun- aður um að hafa valdið dauða Hauks. Lögreglan vinnur að rannsókn máls- ins. Fannst látinn í Keflavík

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.