Morgunblaðið - 11.05.2010, Page 6

Morgunblaðið - 11.05.2010, Page 6
Búið er að kyrrsetja 100 milljóna króna hús- eign Jóns Ásgeirs, 10 milljóna króna sum- arhús, 14 milljóna króna jörð, þrjá jeppa og tvo fólksbíla, samtals upp á 24 milljónir króna og bankainnstæður sem nema 3,6 milljónum. Alls 151,6 milljónir. Af eignum Hannesar hafa tveir jeppar, sem hvor um sig kostar fjórar milljónir og bankainnstæður upp á 3,4 milljónir króna, verið kyrrsettar. Samtals 11,4 milljónir króna. Hús, jeppar og jörð FRYSTAR EIGNIR 6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 2010 Sumar bomburnar sem Eyjafjallajökull sendi út í loftið í gær voru engin smásmíði. Að sögn Ómars Ragnarssonar, sem flaug framhjá toppgígnum í gær, voru sumar þeirra á stærð við jeppa og var gígurinn farinn að þrengjast talsvert að sögn hans. „Ég tel að viðbúnaði hafi verið öfugt hátt- að hvað varðar breytingar á gosinu fram að þessu. Hingað til hafa allir farið á límingunum þegar byrjað hefur að gjósa á nýjum stað með stórauknum boðum og bönnum en ég tel hins vegar að hættulegasta stigið sé þegar gos er að deyja út eins og gerðist á Fimmvörðuhálsi. Þá eiga menn fyrst og fremst að vera á tánum og hafa á sér djúpan vara,“ skrifaði Ómar á blogg- síðu sína í gær. Ljósmynd/Ómar Ragnarsson Gígurinn tekinn að þrengjast og þeytir hraunbjörgum Gosvirknin í Eyjafjallajökli hefur gengið í bylgjum og bendir enn ekkert til þess að gosinu sé að ljúka. Í gærmorgun varð jarðskjálftahrina undir jöklinum sem bendir til þes að kvika sé enn að koma úr möttlinum. Samkvæmt athugunum Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnunar nær gosmökkurinn að jafnaði 5 km hæð yfir sjávarmáli en fer stundum upp í 6 km. Hraunrennsli er í lágmarki og óróinn stöðugur. Keflavíkurflugvöllur var opnaður aft- ur í gær eftir þriggja sólarhringa lokun. Flug verður skv. áætlun í dag enda gefa öskuspár ekki tilefni til annars. Farþeg- ar eru þó beðnir að fylgjast vel með því áætlanir geta breyst. Gosinu ekki að ljúka en virknin gengur í bylgjum  Flogið verður frá Keflavík í dag að öllu óbreyttu Gefinút kl. 18.00 í gær.Gildir til kl. 12.00 í dag.Flug óheimilt og flugvöllum lokað. Flug heimilt með sérstökum undan- þágum og eftirliti. Spá um öskudreifingu Flugfélög og flugvélafram- leiðendur eru mikið farnir að setja sig í sam- band við íslenska jarðvísindamenn, til þess að óska eftir öskusýnum og upplýsingum um öskuna úr Eyjafjallajökli. Að sögn Ármanns Höskuldssonar eldfjallafræðings eru fyrirtækin að gera rannsóknir á öskunni og jafn- vel prófanir með því að keyra hana í gegnum þotuhreyfla. Sum hafa eingöngu beðið um nokkur grömm af ösku en Ármann segir nokkur fyrirtæki hafa beðið um allnokkur kíló. Gosgígurinn í toppi Eyjafjalla- jökuls er nú tekinn að þrengjast en hleðst áfram upp. Í gær var mökk- urinn heldur heitari en áður þar sem hann kom upp úr gígnum, sam- kvæmt hitamyndavélinni uppi á Þórólfsfelli. Það þýðir að hann þeytist hraðar upp úr gígnum en áður og sprengivirknin er enn mik- il. Nú er vatn hætt að komast að kvikunni og sprengivirknin er al- farið vegna gassins í henni. Spreng- ingarnar eru með öðrum orðum ekki lengur gufusprengingar held- ur gassprengingar. Senda öskusýni til flugfélaga og framleiðenda Ármann Höskuldsson fyrir heimilið Ariel Regular þvottaefni, 45 þvottar 2869kr.pk. Eignir Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Hannesar Smárasonar, Jóns Sigurðssonar og Skarphéðins Berg Steinarssonar á Íslandi hafa verið kyrrsettar, að beiðni skattrannsóknarstjóra, vegna mála sem tengjast skattskilum FL Group, síðar Stoða, á ár- unum 2006 til 2007. Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær. Kom fram að enn eigi eftir að þinglýsa kyrrsetn- ingarbeiðnunum á Skarphéðin Berg og Jón Sig- urðsson, en búið er að því þegar kemur að eignum Jóns Ásgeirs og Hannesar. Unnið sé að skýrslu um málið hjá skattrannsóknarstjóra, þar sem menn- irnir hafi andmælarétt. Skýrslan fari síðan til Rík- isskattstjóra sem endurákvarði opinber gjöld þyki ástæða til þess. Um leið og andmæli berist skatt- rannsóknarstjóra verði tekin ákvörðun um hvort málin verði send til efnahagsbrotadeildar Ríkislög- reglustjóra. Greiðist sektin ekki að fullu geti gerða- þoli þurft að afplána fangelsisvist, allt að einu ári. Ekki náðist í Jón Ásgeir í gær en haft var eftir honum í frétt Stöðvar 2 að eignirnar hefðu verið kyrrsettar. Málið stæðist ekki skoðun. Hann skildi ekki hvernig hann ætti að bera refsiábyrgð á virð- isaukaskilum FL Group. Stoðir hefðu lagt fram tryggingu fyrir skattgreiðslunni. Öll skattskil FL Group hefðu verið unnin af fagmönnum undir eftirliti hæfustu endur- skoðenda. Þetta hefði ekki verið á hans borði og hann hefði enga hugmynd haft um þau ágreiningsmál sem deilt væri um. Refsiábyrgð yrði ekki lögð á stjórnarmann vegna skattskila hlutafélags, nema hann hefði sýnt af sér stórkostlegt gáleysi eða ásetning. Eignir Jóns Ásgeirs og Hann- esar hafa verið kyrrsettar  Jón Ásgeir segist ekkert hafa vitað um bókhaldsatriðin sem deilt er um í málinu Leiðtogar Evr- ópusambands- ríkjanna munu jafnvel taka að- ildarumsókn Ís- lands fyrir á fundi sínum í júní og ákveða hvort formlegar við- ræður verða teknar upp, sam- kvæmt upplýs- ingum frá spænskum stjórnvöldum sem fara með forsæti í fram- kvæmdastjórn ESB. Miguel Angel Moratinos, utanrík- isráðherra Spánar, sagðist á fundi með blaðamönnum í gær telja fátt standa í vegi fyrir því að aðild- arviðræður við Ísland gætu hafist í júní. Maros Sefcovic, sem sér um mál- efni stofnana ESB, sagðist finna fyr- ir traustum stuðningi við umsókn Ís- lands. Öll aðildarríkin 27 verða að samþykkja að hefja viðræðurnar. Umsókn Íslands jafnvel tekin fyrir hjá ESB í júní Miguel Angel Moratinos

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.