Morgunblaðið - 11.05.2010, Side 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 2010
Gordon Brown veitti hefðbundinnivinaþjóð í Atlantshafsbandalag-
inu óvenjulegar trakteringar. Sú
var þess utan hin fámennasta og
eina vopnlausa í varnarbandalag-
inu.
Hún var sett á fámennan lista yfirhryðjuverkamenn. Var þar ein
af topp tíu á eftir Osama Bin Laden.
Jóhanna ogSteingrímur
hafa viljað borga
honum nokkur
hundruð millj-
arða króna um-
fram lagaskyldu
fyrir vikið.
Gordon þessihefur átt svefnlausar nætur í
Downingstræti 10 undanfarið eftir
kosningaafhroð sitt.
Þessi hundrað metra botnlangi rísnaumast undir strætisnafninu,
en húsið númer 10 er þó eftirsótt
heimilisfang, þótt uppsagnarfrestur
íbúanna geti verið skammur.
Nú hefur Brown varpað út líflínu.Björgunarmenn hugsa slíkar
líflínur fyrir þá sem eru á hinum
enda þeirra.
Lína Browns er hugsuð eingönguhanda honum. Að hann fái hang-
ið í húsinu góða fram á haust. Og þá
taki við einhver annar sem enginn
hefur kosið.
Stjórnmál hafa verið kölluð listhins mögulega. Gordon Brown
hefur reynt að gera þau að list hins
ómögulega. Kannski tekst það.
Manni sem „heppnaðist“ að setjaÍsland á lista yfir 10 hættuleg-
ustu glæpamenn veraldarinnar gæti
jafnvel „heppnast“ þetta.
Gordon Brown
Líflína um eigin háls
Veður víða um heim 10.5., kl. 18.00
Reykjavík 9 heiðskírt
Bolungarvík 8 heiðskírt
Akureyri 4 heiðskírt
Egilsstaðir 2 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 10 léttskýjað
Nuuk 10 skúrir
Þórshöfn 3 súld
Ósló 3 skúrir
Kaupmannahöfn 11 skýjað
Stokkhólmur 7 skýjað
Helsinki 6 skýjað
Lúxemborg 14 heiðskírt
Brussel 10 skýjað
Dublin 8 skýjað
Glasgow 10 léttskýjað
London 11 skýjað
París 14 skúrir
Amsterdam 9 léttskýjað
Hamborg 9 skýjað
Berlín 10 skúrir
Vín 20 skýjað
Moskva 21 heiðskírt
Algarve 20 skýjað
Madríd 16 léttskýjað
Barcelona 20 léttskýjað
Mallorca 20 léttskýjað
Róm 18 skúrir
Aþena 24 heiðskírt
Winnipeg 8 alskýjað
Montreal 7 léttskýjað
New York 13 heiðskírt
Chicago 14 skýjað
Orlando 26 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
STAKSTEINAR
VEÐUR
11. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:26 22:24
ÍSAFJÖRÐUR 4:09 22:50
SIGLUFJÖRÐUR 3:51 22:34
DJÚPIVOGUR 3:50 21:58
ÁRSFUNDUR KJALAR
LÍFEYRISSJÓÐS
Kjölur lífeyrissjóður boðar hér með til ársfundar
sjóðsins. Fundurinn verður haldinn á Grand Hótel,
Sigtúni 38 í Reykjavík, þriðjudaginn 25. maí 2010
kl. 17.00.
Allir sjóðfélagar og rétthafar eiga rétt á setu á
ársfundinum.
Á dagskrá fundarins eru almenn ársfundarstörf
samkvæmt samþykktum sjóðsins og 30. gr. laga
nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda
og starfsemi lífeyrissjóða.
Ársfundargögn er hægt að nálgast á heimasíðu
sjóðsins, www.landsbankinn.is/ls/kjolur og hjá
Fjármálaráðgjöf Landsbankans, Austurstræti 11.
Reykjavík, 10. maí 2010
Virðingafyllst,
stjórn Kjalar lífeyrissjóðs
Una Sighvatsdóttir
una@mbl.is
Ríkissaksóknari hefur gefið út ákær-
ur á hendur ellefu karlmönnum sem
grunaðir eru um að hafa keypt
vændisþjónustu af Catalinu Mikue
Ncogo eða konum í hennar þjónustu
á síðasta ári.
Vændismál tengd Catalinu hafa
verið í rannsókn lögreglu um nokkra
hríð og hefur lögregla alls sent 17
mál áfram til embættis ríkissaksókn-
ara. Sex þeirra voru látin niður falla
þar sem saksóknari taldi ekki nægar
sannanir fyrir hendi til að ákæra
mennina en hinum 11 hefur verið
birt kæra og eru nokkrir þeirra
ákærðir fyrir að greiða fyrir vændi
oftar en einu sinni.
Grunur um tengsl við mansal
Þetta er í fyrsta skipti sem
ákært er fyrir vændiskaup hér á
landi eftir að Alþingi samþykkti lög
sem gerði þau ólögleg árið 2009.
Öll málin sem nú hefur verið
ákært fyrir tengjast Catalinu Ncogo,
sem er íslenskur ríkisborgari af er-
lendum uppruna. Hún situr sjálf í
gæsluvarðhaldi til 5. júní, en hún
áfrýjaði dómi héraðsdóms frá 1. des-
ember þar sem hún var dæmd í 2½
árs fangelsi fyrir innflutning fíkni-
efna og hagnýtingu vændis. Tveimur
dögum eftir að sá dómur féll var Ca-
talina handtekin vegna gruns um
mansal en lögreglan taldi sig hafa
rökstuddan grun um að hún flytti
stúlkur til landsins, gerði þær út til
vændis og tæki a.m.k. helming hagn-
aðarins af þeim. Karlarnir sem
ákærðir eru fyrir að eiga vændisvið-
skipti við Catalinu eru á fertugs-,
fimmtugs- og sextugsaldri. Þar sem
vændiskaup hafa ekki verið refsiverð
áður verða dómar sem nú munu falla
fordæmisgefandi, en brot á lögum
um vændiskaup varða sektum eða
fangelsi allt að einu ári.
11 karlar ákærðir
fyrir kaup á vændi
Fyrstu ákærur vegna vændiskaupa
Í hnotskurn
» Ákæra verður opinber
þremur dögum eftir birtingu
nema sakborningur óski eftir
því að þinghald verði lokað.
» Heimilt er að gera kröfu
um lokað þinghald í málum sem
þessum, m.a. til hlífðar sak-
borningi eða fjölskyldu hans,
s.s. börnum.
» Nokkrir mannanna hafa
játað vændiskaupin.
Sambandsstjórn Rafiðnaðarsambandsins (RSÍ)
samþykkti harðorða ályktun um mismuninn á líf-
eyrisréttindum á almenna markaðinum og hjá
hinu opinbera, á fundi sem stjórnin hélt á Egils-
stöðum.
Krefst RSÍ þess að í komandi kjarasamn-
ingum í haust verði þessi mál leidd til lykta „og
launamenn beiti öllu sínu afli til þess að þrýsta á
stjórnvöld um viðunandi lausn,“ eins og segir í
ályktuninni.
„Sá mikli munur sem er á lífeyrisréttindum á
almennum vinnumarkaði og hjá hinu opinbera
fær ekki staðist, á næstu árum munu stóru ár-
gangarnir skella á lífeyrissjóðunum og þá verður
ríkissjóður að reiða fram þau hundruð milljarða
sem inn í kerfið vantar,“ segir í ályktun RSÍ.
Bent er á að á almennum vinnumarkaði þurfi líf-
eyrissjóðir að rísa undir skuldbindingum sínum
og skerða réttindi þegar illa árar en opinberu
sjóðirnir séu með ótakmarkaða ábyrgð launa-
greiðenda og þar með skattgreiðenda. „Launa-
maður á almenna vinnumarkaðinum þarf að taka
á sig tvöfalt högg vegna fjármálakreppunnar.
Annars vegar rýrnun lífeyrisréttinda og hins
vegar stórauknar skattaálögur til að standa und-
ir ósjálfbæru lífeyriskerfi opinberra starfs-
manna. Að óbreyttu verður reikningurinn fyrir
þessu sendur til skattgreiðenda. Halli b- deildar
og a-deildar er á sjötta hundrað milljarða. Það
þýðir að það þurfi að hækka skatta um 4 prósent
til að standa undir þessu. Á þessu verður að taka
og beita öllu afli innan verkalýðshreyfingarinnar
í komandi kjarasamningum.“ omfr@mbl.is
„Launamenn beiti öllu sínu afli“
RSÍ gagnrýnir ójafnrétti í lífeyrismálum Verði leitt til lykta í haust