Morgunblaðið - 11.05.2010, Síða 11
Morgunblaðið/Kristinn
Mjóir Svokallaðir 2+1 stígar eru víða á höfuðborgarsvæðinu. Þeir duga í
mesta lagi fyrir eitt hjól í einu en alls ekki fyrir þrjá hjólreiðamenn.
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Umferð um hjóla- og göngustíga á
höfuðborgarsvæðinu hefur þyngst
til mikilla muna undanfarna daga,
ekki síst fyrir tilstilli átaksins Hjólað
í vinnuna. Eftir því sem næst verður
komist hefur umferðin gengið að
mestu stóráfallalaust þrátt fyrir að
hjólafólki sem ferðast oft á 30-40 km
hraða sé víðast ætlað að fara um
sömu stíga og gangandi vegfar-
endum. Mörgum hefur þó eflaust
reynst erfitt að átta sig á því hvaða
umferðarreglur gilda á stígunum.
Fjölnir Björgvinsson, formaður
Fjallahjólaklúbbsins, segir alls ekki
skýrt hvaða reglur gildi á þeim stíg-
um þar sem göngustígnum er skipt á
milli hjólastíga og göngustíga með
heilli línu (2+1). Ljóst sé að hjóla-
stígurinn sé alltof mjór til að hjól
geti mæst á honum en þar sem línan
sé heil megi, samkvæmt umferð-
arlögum, ekki fara yfir hana.
Borgin hafi reyndar heitið því
árið 2007 að afmá þessa skiptingu en
tafir hafi orðið því. „Það hefur mjög
oft legið við slysum þegar tveir hjól-
reiðamenn geta ekki mæst á stígn-
um,“ segir Fjölnir. Hættan eykst til
muna þegar gangandi vegfarandi
bætist í spilið. Fjölnir tekur dæmi
um hjólreiðamann A sem víkur til
hægri og inn á göngustíg vegna hjól-
reiðamanns B sem kemur á móti.
Um leið kemur gangandi vegfarandi
á móti hjólreiðamanni A og sá gang-
andi telur sig þurfa að víkja fyrir
hjólreiðamanni A með því að fara inn
á hjólreiðastíginn og þar með í veg
fyrir hjólreiðamann B. Fjölnir segir
að sökum þess hve hjólreiðareinin sé
mjó sé hún í raun ónothæf.
2+1 er hálfgerður bastarður
Stefán Agnar Finnsson, yf-
irverkfræðingur hjá umhverfis- og
samgöngusviði Reykjavíkurborgar,
segir að 2+1 skiptingin sé hálf-
gerður bastarður og hætt sé að
merkja göngustíga með þeim hætti.
Þegar engin hjólarein er á stígunum
teljist þeir einfaldlega vera göngu-
stígar og hjólreiðamönnum sé heim-
ilt að hjóla þar um. Þeir verði þó að
hafa í huga að skv. umferðarlögum
séu hjólreiðamenn einskonar gestir
á göngustígum og verði að taka fullt
tillit til gangandi vegfarenda.
Merktir hjólastígar séu á hinn bóg-
inn ætlaðir hjólreiðamönnum og þar
séu gangandi vegfarendur gestir.
Einar Guðmundsson, sérfræð-
ingur á forvarnarsviði Sjóvár, hvet-
ur hjólreiðamenn til að nota bjölluna
til að vara gangandi vegfarendur við.
Hann bendir á að ef hjólreiðamaður
hjólar eftir göngustíg og gangandi
vegfarandi stígur í veg fyrir hjólið,
sé ábyrgðin á tjóni á herðum hjól-
reiðamannsins. Fjölnir Björg-
vinsson hvetur hjólreiðamenn sömu-
leiðis til að nota bjöllu en bætir við
að þar sem margir hlusti á útvarp
eða ipod, sé best að gera ráð fyrir að
göngufólkið hafi ekki heyrt í henni.
Notið bjölluna en reiknið
ekki með að nokkur heyri
Morgunblaðið/Kristinn
Dularfullt Sums staðar eru hjólastígar til hægri á stígum, miðað við
gönguátt en stundum eru þeir vinstra megin. Stundum gufa þeir alveg upp.
Flókin sambúð gangandi vegfarenda og hjólandi á hjólastígum í höfuðborginni
Daglegt líf 11
Morgunblaðið/Björn
.
sem sjálfur hljóp maraþon 1999 og
2000. Síðan þá hefur hann látið styttri
vegalengdir duga. „Ég er eiginlega
búinn með minn hlaupaferil,“ segir
hann og útskýrir að hnén séu ekki
góð.
Líka árshátíðir og fjallgöngur
Hópurinn lætur sér þó ekki duga
að hlaupa saman því fólk hittist einn-
ig við önnur tilefni. „Við höldum
t.a.m. árshátíð og förum í fjallgöngur.
Þá höfum við líka verið mjög dugleg
að sækja hlaup innanlands og jafnvel
búið til okkar eigin.“
Hópurinn fór t.a.m. á Borgar-
fjörð eystri þar sem hlaupið var og
gengið á fjöll í þrjá daga. „Síðan höf-
um við hlaupið Vesturgötuna á Vest-
fjörðum og stefnum á að gera það
aftur í sumar.“ Stór hópur tekur
líka jafnan þátt í Reykjavík-
urmaraþoninu og eru menn þá að
hlaupa allar vegalengdir.
Yfir vetrartímann leggst
hlaupastarfið á Sauðárkróki hins
vegar í svolítinn dvala. „Þá hlaup-
um við bara reglubundið á
laugardögum, þótt einhverjir æfi
þess utan.“ Sumardagskrá
hlaupahópsins hefst hins vegar
af alvöru innan skamms og er
blaðamaður ræddi við Árna var
stefnan tekin á Hofsós af því til-
efni. „Við ætlum okkur að
hlaupa út frá Hofsósi, vígja síð-
an nýju laugina og borða á veit-
ingastaðnum Sólvík.“
Hópurinn lætur sér þó
ekki duga að hlaupa
saman því fólk hittist
einnig við önnur tilefni.
Frumkvöðull Árni Stef-
ánsson hefur smitað
margan á Króknum af
hlaupabakteríunni.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 2010
n o a t u n . i s
ÓDÝRT
Ódýrt
og gott í
Nóatúni
MEÐ HEIM
HEITT
ELDAÐUR
LAMBABÓGUR
KR./STK.
1498
PASSIONATA
PIZZA
PROSCIUTTO
KR./STK.
199
3 RÚLLUR
GOTT MEÐ
KAFFINU
500 G
KELLOGG’S
CORN FLAKES
398
KR./PK.
MEISTARA
MÖNDLUKAKA
489
KR./STK.
SHOP RITE
ELDHÚSRÚLLUR
729
KR./PK.
BBESTIR
Í KJÖTI
ÚRKJÖTBOR
ÐI
ÚR
KJÖTBORÐI
Óhætt er að mæla með nýjasta ein-
taki Hjólhestsins, tímarits Fjalla-
hjólaklúbbins, sem kom út á netinu í
byrjun mánaðarins. Flestar greinar í
blaðinu eru miðaðar við fólk sem er
að byrja að nota hjól sem samgöngu-
tæki eða er tiltölulega stutt á veg
komið í þeirri vegferð. Sérstaklega
má benda á grein um samgöngu-
hjólreiðar sem fjallar um hvernig
best er að hjóla úti í umferðinni, þ.e.
á akbrautum en ekki á göngustígum.
Tímaritið er hægt að lesa ókeypis á
vef klúbbsins, www.fjallahjolaklubb-
urinn.is.
Hjólhesturinn
Öflugt og
gott málgagn