Morgunblaðið - 11.05.2010, Qupperneq 15
venjuleg daglaun þeirra. En hvað
hefur gerst? Þótt lyfjaverðið hafi
lækkað kostar að sögn heimildar-
manna um 11.500 dollara að veita
einum alnæmissjúkum Úganda
nægilega umönnun út ævina. Gef-
endur hafa komist að þeirri niður-
stöðu að þetta sé of dýrt, menn verði
að forgangsraða.
Nýjar áherslur
Meiri árangri sé hægt að ná
með því að einbeita sér gegn and-
vana fæðingum, lungnabólgu, niður-
gangspest, malaríu og mislingum.
Oft kostar aðeins einn til 10 dollara
að útvega moskítónet, sýklalyf eða
vatnssíur sem geta ráðið úrslitum.
Stjórn Baracks Obama í Banda-
ríkjunum hefur kynnt áætlun um að
leggja framvegis meiri áherslu á
heilsugæslu fyrir verðandi mæður
og börn. Breska stjórnin og styrkt-
arsjóður Bills og Melindu Gates hafa
skýrt frá sams konar áformum.
Fleira veldur minni áhuga á al-
næmi. Fulltrúi bandaríska sendi-
ráðsins í Úganda benti á að ráð-
herrar hefðu verið staðnir að því að
stinga í eigin vasa peningum frá gef-
endum. Þeir hefðu að vísu verið látn-
ir borga til baka en sloppið við fang-
elsisvist. Einnig má nefna að olía
hefur fundist við Albertsvatn en
ekki er ætlunin að verja neinu af
tekjunum í baráttuna gegn alnæmi.
Minnkandi áhersla á
baráttu gegn alnæmi
Kreppan veldur því að frekar er reynt að kveða niður sjúk-
dóma sem hægt er að fyrirbyggja með ódýrum ráðum
Reynt er nú að bregðast við olíu-
menguninni frá borholunni á Mexíkó-
flóa út af strönd Louisiana með því að
koma fyrir nælonsokkum, úttroðnum
af hári, í fjörum þar sem olían berst á
land, að sögn breska ríkisútvarpsins,
BBC. Hárið drekkur í sig gríðarmik-
ið af þykkri olíunni og er þannig hægt
að koma í veg fyrir að hún valdi miklu
tjóni á lífríkinu.
Samtökin Matter of Trust standa
fyrir hársöfnun að miklu leyti með
hjálp Fésbókarinnar vegna átaksins
og hafa fengið í lið með sér hársnyrti-
stofur, einnig stofur sem klippa gælu-
dýr og auk þess allmargir bændur
leggja til ull. Munu um 370.000 hár-
snyrtistofur um allan heim taka þátt í
átakinu.
Sjálfboðaliðar vinna nú hörðum
höndum í 15 vöruskemmum í grennd
við mengunarsvæðið við að troða
hárinu í sokkana og búa þannig til
stóra sekki, að sögn Lisu Gautier,
eins stofnenda Matter of Trust.
Að sögn Gautier er hár sérstaklega
hentugt í baráttunni gegn mengun-
inni vegna þess að yfirborð hvers
hárs er gríðarlega stórt sem veldur
því að mikið af olíu loðir við það.
Applied Fabric Technologies, næst-
stærsti framleiðandi heims á sviði
rekgirðinga, sem notaðar eru til að
stöðva útbreiðslu olíuflekkja, mælir
með aðferðinni.
Talið er að um 200 tonn af hári og
ull berist á staðinn dag hvern og nýir
sjálfboðaliðar bætast stöðugt í hóp-
inn í skemmunum. kjon@mbl.is
Hár notað gegn olíumengun
Sjálfboðaliðar í Louisiana troða hárinu í nælonsokka og sekkirnir soga í sig olíuna
Sökkviker brást
» Tilraun BP til að stöðva lek-
ann úr borholunni með sökkvi-
keri mistókst á laugardag.
» Hugsanlegt er að reynt verði
að loka holunni með því að
dæla í hana úrgangi eins og
ónýtum hjólbörðum.
Spurt&Svarað
Hvað eru margir með HIV-smit?
Talið er að nú séu um 33 milljónir smitaðra í heiminum með HIV-veiruna í
sér. En þeir eru ekki endilega komnir með sjálfan sjúkdóminn, alnæmi. Þeg-
ar er farið að bera á lyfjaskorti í nokkrum Afríkulöndum.
Hvað deyja margir úr alnæmi?
Áætlað er að um tvær milljónir manna deyi árlega. Börn
smitast oft í móðurkviði en reyndin er að þau lifa mörg
af, komast frekar yfir sjúkdóminn en fullorðnir.
Er að draga úr smitinu?
Tölur benda ekki til þess. Að sögn Sameinuðu þjóð-
anna bætast nær þrjár milljónir barna og fullorð-
inna í hópinn ár hvert. Fyrir hverja 100 sem fá með-
höndlun bætast við 250 sem hafa sýkst.
Er nóg að dreifa lyfjum í Afríku?
Nei, þá deila sýktir oft lyfjaskammtinum með ætt-
ingjum og enginn í fjölskyldunni fær því nóg til
að halda sjúkdómnum í skefjum.
Fréttir 15ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 2010
Forsetakosningar voru á Filipps-
eyjum í gær en tæknibilun á kjör-
stöðum vegna nýrra og sjálfvirkra
talningavéla olli miklum töfum, hér
bíða þreyttir en þolinmóðir kjós-
endur í Manila eftir að geta nýtt sér
atkvæðisréttinn. Forsetaframbjóð-
andinn Benigno „Noynoy“ Aquino
var með mest fylgi, um 40%, þegar
búið var að telja um 38% atkvæða í
gær. Aquino er sonur Corazon
Aquino, fyrrverandi forseta Fil-
ippseyja, og Benignos Aquinos.
Hinn síðarnefndi var leiðtogi
stjórnarandstöðunnar á sínum tíma
en var myrtur árið 1983. Eig-
inkonan tók þá við kyndlinum.
Liðlega 50 milljónir manna voru
á kjörskrá en nær 100 milljónir
manna búa á Filippseyjum. Hörð
átök hafa verið í kosningabarátt-
unni og féllu sex manns í gær.Reuters
Aquino með
mest fylgi í
forsetakjöri
Óttast er að um 90 námumenn hafi farist þegar miklar metansprengingar
urðu á laugardag og sunnudag í stærstu kolanámu Rússlands, hér bíða
syrgjandi ættingjar námumanna eftir frekari fréttum. Gas og vatn í göng-
unum olli björgunarmönnum miklum vanda en nær 300 manns komust
strax eftir slysið upp úr námunni. Hún er í Kemerovo-héraði í Síberíu og
nefnist Raspadskaja. Búið var að finna 31 lík í gær en 59 manns var enn
saknað. Náman þar sem þeir störfuðu er á um 450 metra dýpi.
Sprengingar í kolanámu
Alls féllu um 70 manns í tilræðum
og árásum í Írak í gær, fleiri en
nokkru sinni það sem af er árinu á
einum degi. Um tuttugu árásir voru
gerðar víðs vegar um landið og
sögðu ráðamenn í Bagdad að um
samræmdar aðgerðir virtist vera
að ræða. Sú mannskæðasta var
þegar tvær bílsprengjur sprungu
fyrir utan vefnaðarverksmiðju í
borginni Hilla. Þær sprungu um
það leyti sem starfsfólkið var að yf-
irgefa verksmiðjuna.
Um einni klukkustund síðar
sprengdi maður sig á staðnum þar
sem sjúkraliðar voru enn að störf-
um við að hlúa að þeim sem særðust
í hinum sprengjutilræðunum tveim.
Alls létust 36 í sprengingunum.
ÍRAK
Um 70 manns féllu
í samræmdum
sprengjutilræðum
Barack Obama
Bandaríkja-
forseti tilnefndi í
gær Elenu Kag-
an ríkislögmann
til að taka sæti í
hæstarétti lands-
ins. Hljóti Kagan,
sem er fimmtug,
samþykki þing-
manna verður
hún þriðja konan í réttinum og
yngsti dómarinn. Gagnrýnt er að
Kagan hafi enga reynslu af dóm-
arastörfum. En þar sem hún hefur
átt gott samstarf við hægrimenn er
talið að repúblikanar beiti sér ekki
gegn henni.
BANDARÍKIN
Obama tilnefnir
Kagan í hæstarétt
Elena Kagan
FRÉTTASKÝRING
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Kreppan hefur haft ýmsar afleið-
ingar og ein er að baráttan gegn út-
breiðslu HIV-veirunnar og alnæmis
í fátækustu ríkjum Afríku gæti tap-
ast vegna nýrra áherslna. Mikill ár-
angur hefur orðið á síðari árum og
má nefna sem dæmi að um 200.000
manns fá nú lyfjameðferð, svonefnd
antiretrorviral-lyf, gegn alnæmi í
Úganda, að sögn The New York
Times, ekki síst vegna rausn-
arlegrar aðstoðar Bandaríkjanna.
Miklu skiptir að tekist hefur að
lækka lyfjakostnaðinn úr 12.000
dollurum á ári í 100 dollara. En þótt
fjöldi alnæmissmitaðra aukist um
milljón manns á ári í heiminum er
svo komið að sums staðar er nýjum
sjúklingum nú vísað frá. Fjárveit-
ingarnar eru að verða búnar. Stofn-
un sem Bandaríkjamenn kosta í
Mósambík hefur verið sagt að opna
ekki fleiri heilsugæslustöðvar.
Breskur læknir og sérfræð-
ingur í alnæmi, Natasha Astill, vinn-
ur á spítala við jaðar á mjög af-
skekktum dal í Bwindi-frum-
skóginum í Úganda; þar býr margt
pygmea í grennd við ferða-
mannakofa fyrir fólk sem vill skoða
górillur. Astill segist hafa brostið í
grát þegar hún sá 118 umkomulausa
sjúklinga hnipra sig saman á gólfi
spítalans, rokið barði þakið. En hún
varð að segja þeim sem komu að hún
gæti ekki meðhöndlað þá nema þeir
borguðu einn dollara á dag, meira en