Morgunblaðið - 11.05.2010, Side 17

Morgunblaðið - 11.05.2010, Side 17
17 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 2010 Útiverslun Elísa og Kara eru með útiverslun á Laugaveginum við Hjartagarðinn. Þær selja þar föt, skó, bækur og blöð og stefna að því að vera þar daglega eftir að skóladegi lýkur næstu daga. Ernir Á árunum 2006-2008 þrefölduðu bankarnir stærð sína, þrátt fyrir viðvaranir dönsku bankanna í byrjun árs 2006. Þeir héldu áfram eftir að matsfyrirtækin vöruðu við 2007. Áður höfðu margir varað við og sett fram viðvar- anir, studdar hag- fræðilegum rökum, um að þróunin gengi ekki upp og mundi leiða til ófarnaðar. Íslensku bank- arnir sprengdu upp verð á húsnæði með lánaþenslu og seldu ungum fjölskyldum verðtryggð lán með veði í ofmetnum íbúðum, í góðu samstarfi við Íbúðalánasjóð. Þeir lánuðu almenningi út á bifreiðar í gjaldmiðlum sem enginn lántakenda hafði tekjur í. Þeir tóku að veita eig- endum sínum stórfelld lán út á svo- nefnd eignarhaldsfélög og tóku ekki tryggingar í neinu nema loftinu. Þeir seldu ringluðum viðskiptavin- um sínum gengisbundin lán til kaupa á hlutabréfum. Þeir tóku loks stöðu gegn krónunni og felldu hana rétt fyrir öll milliuppgjör sín á árinu 2008. Það gaf þeim gengishagnað fyrir uppgjörið og verðbólguhagnað næstu vikurnar á eftir á meðan gengislækkunin var að koma fram í verðlaginu og rýra lífskjör við- skiptavina þeirra. Þeir voru örlátir á framlög til prófkjöra og flokkssjóða. Þeir sem vildu andæfa þenslunni fengu engar undirtektir hjá ráð- herrum, sem ekki vildu eyðileggja góðærið. Við erum nú að horfast í augu við að þetta var ekki aðeins glanna- skapur og vankunnátta. Um refsi- verða háttsemi og stórfelld auðg- unarbrot af margvíslegu tagi virðist hafa verið að ræða. Þessi brot virð- ast einkum framin 2006 og síðar, eftir að eigendum og stjórnendum bankanna mátti vera orðið ljóst að spilaborgir þeirra myndu hrynja. Um- ræða hefur orðið um ábyrgð og skyldur lán- veitenda og er ekki að undra með hliðsjón af framansögðu. William K. Black var hér ný- lega og sagðist sjá gamalkunna „upp- skrift“ að auðgunar- brotum í skýrslu Rannsóknarnefndar. Hún væri not- uð aftur og aftur og skrifaðar hefðu verið bækur um hana: Fyrst þensla, svo ótrygg lán með háum vöxtum, gegndarlausar lántökur, engir vara- sjóðir, útlánatöp ekki viðurkennd og methagnaður færður til bókar. Besta leiðin til að ræna banka sé að eiga hann. Þetta er bara endurtekið í nokkur ár með vaxandi hraða á meðan bankinn er féflettur með kaupréttum, bónusum og lánum út á innantómar skeljar. Skaðsemi erlendu bankanna Á þessum tíma voru vextir lágir og mikið framboð af erlendum lán- um í veröldinni. Það voru hinir er- lendu stórbankar sem fjármögnuðu hrunadansinn. Rétt er að vekja at- hygli á að sömu sjónarmið og áður greindi eiga við um ábyrgð og skyldur hinna erlendu banka, sem gerðu þessi brot möguleg. Þó að við höfum ekki þekkt uppskriftina gerðu þeir það án nokkurs vafa. Samt héldu þeir áfram að lána, sennilega af því að þeir voru sjálfir að nota uppskriftina heima fyrir. Það verður að halda þeim sem valda öðrum tjóni til ábyrgðar. Um þriðj- ungur íslensku þjóðarinnar býr nú við skertan hlut vegna þessa blekk- ingarleiks, með beinum hætti. Óvið- ráðanlegar skuldir, verðfall eigna, dýrtíð, atvinnuleysi, nauðungarupp- boð og gjaldþrot. Röskun verður á stöðu og högum barna vegna fjölg- unar skilnaða og þegar fjölskyldur missa húsnæði sitt. Hinn hluti þjóð- arinnar verður fyrir þessu með óbeinni hætti, þ.e. auknum sköttum, lækkandi kaupmætti, skerðingu líf- eyris, verðfalli eigna o.s.frv. Hér er um að ræða hörmungar og þján- ingar heillar þjóðar, sem ekki verð- ur lýst í fáum orðum. Það er sárt að þetta skuli hafa verið af mannavöld- um. Krefjumst bóta Það er mín skoðun að sækja eigi skaðabætur til erlendu bankanna, sem við nefnum nú orðið „erlendu kröfuhafana“. Á meðan þetta er kannað af innlendum og erlendum lögfræðingum þarf að kyrrsetja þær eignir, sem þeir eiga í gömlu bönk- unum. Þær eiga að vera til trygg- ingar hugsanlegri bótaskyldu og jafnvel sektum þeirra og gömlu bankanna, reynist stjórnendur þeirra jafnframt brotlegir við hegn- ingarlög. Ekki skiptir máli þótt kröfur hafi gengið kaupum og sölum síðan, því eigandi kröfunnar mun eignast kröfu á hinn erlenda banka í stað þess fjár sem upptækt er gert. Flestir muna eftir ENRON- málinu sem kom upp árið 2001. Færri vita að Royal Bank of Scot- land, Royal Bank of Canada, Can- adian Imperial Bank of Commerce, The Toronto-Dominion Bank, JP Morgan Chase, Credit Suisse, Mer- rill Lynch, Fleet Bank, Barclays og Deutsche Bank hafa allir samþykkt að greiða skaðabætur vegna við- skipta sinna við félagið. Allir máttu þeir játa á sig aðild að svikum, trún- aðarbrotum o.fl. sem olli tjóni sem nam 18 milljörðum dollara. Citibank hefur verið stefnt fyrir að hafa, þrátt fyrir vitneskju um refsiverða háttsemi stjórnenda Enron, að- stoðað félagið við að setja upp sér- stök eignarhaldsfélög í því skyni að ofmeta tekjur og eignir, en vanmeta skuldir. Þetta segir allt sína sögu um framferði stórbankanna. Við þurfum að láta rannsaka við- skiptin við hina erlendu stórbanka, hvern og einn. Eitt er víst, frá árs- byrjun 2006 vissu þeir allt um þær hörmungar sem lánaþensla þeirra hlaut að valda. Í stað þess að staldra við héldu þeir skeyting- arlausir áfram að lána í trausti þess að íslenska ríkið yrði að hlaupa und- ir bagga, eins og raunar hefur kom- ið fram. Þeir vissu að almenningur á Íslandi yrði látinn borga, þeir voru þess vegna ekki í góðri trú. Líklegt er að Neal Batson, lögmaður í Atl- anta, geti gefið góð ráð. Hann tók að sér að rannsaka háttsemi ofan- greindra banka, sjá enron.com – Litigation Information – Case Documents. Út fyrir rammann Það er tillaga mín að farið verði án tafar í rannsókn á því hvort unnt sé að krefja hina erlendu banka um skaðabætur vegna misgjörða þeirra við íslenska þjóð. Eins hvort brot gömlu bankanna og vitorðsmanna þeirra í erlendum bönkum varði stórfelldum sektum. Athugunin þarf að vera víðtæk og ná bæði til inn- lendra og erlendra lagasjónarmiða. Þegar tillagan um að gera innlán að forgangskröfu var lögð fram í að- gerðahópi Seðlabankans til und- irbúnings neyðarlögum luku lög- lærðir embættismenn upp einum rómi: Nei, þetta væri ekki mögu- legt. Ákvæðið varð samt að lögum. Án þess hefði sennilega orðið rík- isgjaldþrot. Óvenjulegar aðstæður kalla á óhefðbundnar lausnir. Við þurfum að hugsa „út fyrir ramm- ann“. Við höfum verið bláeyg og óprúttnir aðilar hafa notfært sér hrekkleysi okkar. Við þurfum nú að sýna þeim að svo má brýna deigt járn að bíti. Ísland er fullvalda ríki sem hlýtur að gæta hagsmuna sinna þegar að því er vegið. Það er mikilvægt fyrir alla, einnig umheiminn, að ábyrgð- arlausum bönkum verði haldið til ábyrgðar. Óþarft er að hafa áhyggj- ur af því að við munum verða útilok- uð frá bankaviðskiptum í veröldinni vegna þessa. Þvert á móti mundi þetta vekja verðskuldaða athygli og verða okkur til sóma. Það er líka til nóg af bönkum. Frýs í æðum blóð? Allir vita nú að aðgerðaleysi er ekki rétta leiðin. Fyrsta skrefið er að kyrrsetja eignir erlendu kröfu- hafanna, á því má ekki verða ónauð- synlegur dráttur. Það vill svo til að þær fjárhæðir, sem út úr þrota- meðferð gömlu bankanna munu koma, eru líklegar til að skipta sköpum fyrir þá sem hafa orðið fyr- ir barðinu á ábyrgðarleysi, græðgi og afbrotum, sem erlendu kröfuhaf- arnir gerðu möguleg. Fjárhæðirnar eru líka af þeirri stærðargráðu sem erlendir stórbankar eru vanir að borga í sektir. Spurningin er nú þessi: Rennur blóðið enn í því fólki sem þjóðin hefur valið til forystu? Eftir Ragnar Önundarson » Í stað þess að staldra við héldu þeir skeyt- ingarlausir áfram að lána í trausti þess að ís- lenska ríkið yrði að hlaupa undir bagga, eins og raunar hefur komið fram. Þeir vissu að almenningur á Ís- landi yrði látinn borga … Ragnar Önundarson Höfundur er viðskiptafræðingur og bankamaður. Krefjum erlendu bankana um bætur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.