Morgunblaðið - 11.05.2010, Side 18

Morgunblaðið - 11.05.2010, Side 18
18 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 2010 BRÉF TIL BLAÐSINS Hér í blaðinu í gær birtist bréf Steinþórs Jónssonar, eiganda Björnsbakarís, þar sem kvartað er yfir fram- kvæmdum á horni Hring- brautar og Birkimels. Þar hefur OR unnið að endurnýjun háspennustrengs og vatnsinntaks í bakarí Stein- þórs. Höfundur bendir réttilega á að þetta horn er viðkvæmt fyrir framkvæmdum. Þar er rekstur, sem krefst greiðr- ar umferðar, og þar er talsverð umferð gangandi fólks milli mið- borgarinnar og Melanna. Aðrir áhrifaþættir á tilhögun framkvæmdarinnar eru að þarna undir horninu eru a.m.k. 10 síma- strengir, hitaveita, kalt vatn auk rafmagnsstrengja og þá er Birki- melurinn strætóleið. Þess vegna var snúnara að skerða akreinarnar til hagsbóta fyrir gangandi vegfar- endur við framkvæmdastaðinn. Bókum okkar Steinþórs ber ekki saman um tvennt:  Eiganda bakarísins voru kynnt- ar framkvæmdirnar áður en þær hófust og tímaáætlanir, sem þá voru kynntar, stóðust. Leyfi fyrir framkvæmdunum gilti til 10. maí en þeim lauk 3. maí.  Gangandi vegfarendur komust um framkvæmdasvæðið án þess að þurfa að leggja sig í hættu. Vold- ugir varúðarborðar og girðingar, sem Steinþór virðist amast við, eru hluti öryggisráðstafana. Þetta er mikilvægt þótt við hljótum sífellt að hafa til skoðunar hvort samskipti megi vera meiri og bráðabirgðalausnir vandaðri. Það er grundvallaratriði að raskið ógni ekki öryggi og leggur starfs- fólk OR sig í líma við að ganga þannig frá framkvæmdastöðum sínum að fólki stafi ekki hætta af. Fyrir hönd OR vil ég þakka Steinþóri brýninguna. Aðstæður til viðhalds veitukerfanna eru óvenjulega snúnar við dyrnar á bakaríinu hans á horni Hring- brautar og Birkimels. Það þýðir líka að af framkvæmdunum, sem nú er farsællega lokið, má ým- islegt læra. EIRÍKUR HJÁLMARSSON, upplýsingafulltrúi Orkuveitu Reykjavíkur. Svar frá Orkuveitu Reykjavíkur vegna fram- kvæmda við Birkimel Frá Eiríki Hjálmarssyni Eiríkur Hjálm- arsson Ekki opnar maður dagblöð nú orðið eða hlustar á fréttir án þess að heyra að einstaklingur af erlendu bergi brotinn hafi verið handtekinn af lögreglu fyrir þetta og hitt. Það sem ég hef tekið eftir með opnun Schengen er að við virðumst hleypa hér inn í landið heilu glæpagengjunum sem koma gagn- gert hingað til að ræna og rupla og berja menn til óbóta ef svo ber und- ir. Þeir bera enga virðingu fyrir lög- reglu, hika ekki við að ráðast á hana og koma svo glottandi í héraðsdóma landsins. Margir hverjir af þessum mönnum eru fyrrverandi hermenn frá sínum heimalöndum og því stór- hættulegir. Nú er ég alls ekki að dæma allt þetta fólk nema síður sé. Af þessu fólki eru 85-90% afbragðsfólk, en fellur í skuggann fyrir þessum fáu og fær á sig stimpil sem erfitt er að losna við. Við landsmenn eigum ekki að þurfa að sitja uppi með þetta lið. Ég tel að dómsmálaráðherra okkar, frú Ragna Árnadóttir, sem ég tel með allra bestu dómsmálaráðherr- um sem við höfum haft, ætti að hraða í gegnum þingið að brjóti þessir aðilar af sér ítrekað og hafi þeim verið úthlutað íslensku rík- isfangi á að afturkalla það hið snar- asta og vísa viðkomandi úr landi. Orðið ítrekað er dálítið umdeilt og sitt sýnist hverjum. Ég tel að þegar um gest frá öðru landi er að ræða og hann brýtur af sér í þrjú skipti sé um einbeittan brotavilja að ræða og að lokinni refsingu verði hann sviptur ríkisfanginu og sendur til síns heima. Einnig þegar þetta fólk er svipt ökuréttindum, en er samt að aka jafnt edrú sem ölvað, sem er því miður ansi algengt. Sömuleiðis málið með þessa Catal- inu Mikue Ncogo. Ef hún hefur fengið íslenskt ríkisfang á að svipta hana því, setja á hana frímerki og senda hana til síns heima. Þessi kona er búin að sýna það og sanna að svona fólk höfum við ekkert með að gera hér. Þetta eru nú mínar skoðanir á þessum vandamálum með erlenda glæpamenn. ÓMAR F. DABNEY fv. fangavörður. Erlendir brotamenn með íslenskt ríkisfang – hvað er til ráða? Eftir Ómar F. Dabney Ómar F. Dabney Maður er að verða nokkuð sjóaður í æsi- fréttafyrirsögnum dag- blaðanna, þar sem bankarán, bófar og okkar sérstaki Elliot Ness leika aðal- hlutverkin. En forsíðu- fyrirsögn Morg- unblaðsins fimmtudaginn 6. maí sló mig gersamlega út af laginu. … íbúar [miðborgarinnar] „snældubrjálaðir“. Og til að dramat- ísera málið var gæsalöppum vafið um hið gildishlaðna lýsingarorð. Vitnað er til svokallaðra Íbúasamtaka mið- borgarinnar. Í fréttinni sem fylgdi er sagt að „íbúar í miðborginni séu að missa þolinmæðina vegna ófremdarástands sem myndast þar um helgar“. Talað er um ofbeldisglæpi, sóðaskap og há- vaða. Fasteignaverð kemur einnig við sögu. Ef ég byggi í Grafarvog- inum hefði þessi frétt staðfest allar mínar grunsemdir um lastabælið 101, lögleysuna sem þar ríkir og ekki hvað síst slóðaskap borgaryfirvalda fyrir að láta þetta viðgangast. Ég myndi þá aldrei hætta mér niður í bæ eftir klukkan fimm á daginn og ég myndi krefjast banns á strippbúllur (ææi, það er víst komið) og vínveitingar eft- ir miðnætti. En nú bregður svo við að ég bý í þessu lastabæli, miðboginni minni, og mín upplifun er bara allt önnur. Ástandið í miðborginni nú er ekkert verra en það hefur verið. Ég hef aldrei orðið fyrir áreitni af ókunnugum á ferðum mínum um borgina, hvorki að nóttu né degi. Vissulega kemur fyrir að ég vakna við háreysti en það er örsjaldan. Helst er það á sumarkvöldum þegar veðrið leyfir fólki að spara sér leigu- bílinn og rölta heim í blíðunni. Síðast- liðin 40 ár hef ég lifað hér góðu lífi. Verið í göngufæri við leikhús, söfn, veit- ingastaði og verslanir. Miðborg Reykjavíkur hefur upp á flest það að bjóða sem hugurinn girnist. Sá sem þar býr þarf í raun ekkert að sækja upp fyrir Elliða- árnar til að lifa fullu lífi. Án þess að geta fullyrt þar um er mér ekki grunlaust um að einmitt þannig sé ástatt um margan miðbæj- arbúann. Að búa í miðborg er lífsstíll og maður tekur því lífi eins og það er. Miðborg þarf líf til að lifa. Þróun síð- ustu ára hefur orðið sú að fyrirtæki og verslanir hafa flust austar í borg- ina þar sem bílastæði leyfa greiðari aðgang að þjónustunni. Fataversl- anir, fasteignasölur og ferðaskrif- stofur sem áður fylltu Kvosina og drógu fólk í miðbæinn eru horfnar á braut. Í staðinn eru komin kaffihús og skemmtistaðir eins og títt er um flestar miðborgir. Þessu fylgir óhjá- kvæmilega nokkur hávaði og þar sem Íslendingar verða seint vændir um að vera sérstakir snyrtipinnar fylgir þessu einnig nokkurt rusl. Hávaðinn frá sópabílum borgarinnar á það til að trufla svefn minn enda ann hreins- unardeildin sér engrar hvíldar við að sópa ósómann áður en daggestir mið- borgarinnar mæta til vinnu. Mesti sóðaskapur miðborgarinnar er þó í boði Alþingis. Forræð- ishyggjan sem örlar á hjá siðapost- ulum miðbogarsamtakanna á sér líka málsvara á Alþingi. Þar komust menn að þeirri niðurstöðu að „þessi menntaða þjóð“ sem fjallað er fjálg- lega um í ræðum, kunni fótum sínum ekki forráð og því þurftu besserviss- erarnir á Alþingi að bregðast við. Reykingar á veitingastöðum voru bannaðar. Fólk á ekki lengur rétt á að ráða sjálft hvernig það hagar sínu nautnalífi. Þessi eilífa afskiptasemi af hegðun manna skilar sér nú í óásjá- legum tyggjóslummum á gang- stéttum borgarinnar. Og ekki hefur tekist betur til með strippbúllu- bannið ef marka má þessa kvörtun miðborgarsamtakanna sem greini- lega vilja gera miðborg Reykjavíkur að steriliseruðu safni. Ofbeldi er ekki háð staðsetningu þótt vissulega megi halda því fram að líkurnar aukist þar sem fjöldinn er mestur, enda býr of- beldið í hegðunarmynstri mannsins. Fólk getur verið barið til óbóta í frið- sælum úthverfum; inni á heimilum eða í grænum görðum. Slagsmál í heimahúsum, jafnvel morð, eru fram- in um allt land og einkenna ekkert frekar miðborg Reykjavíkur en hverja aðra húsaþyrpingu þar sem fólk hefur slegið sér niður. Ég sé ekki að um neitt sérstakt vandamál sé að ræða hérna. Hávaði af tónlist er á ábyrgð veitingamanna og þeir þurfa starfsleyfi fyrir sinn rekstur. Starfsleyfið má takmarka við tónlist innandyra. Í stað þess að framfylgja einhverju banni á öllu skemmtanahaldi í miðborginni svo fámennur hópur geti haldið fast- eignaverðinu uppi ætti lögreglan að einbeita sér að því að uppræta glæpa- starfsemi sem byggist á innflutningi ólöglegra efna, s.s. eiturlyfjum og sterum sem skekkja hegðun og hugs- un þess hóps sem þeirra neytir. Að flytja skemmtanahald út í iðn- aðarhverfin er engin lausn. Það mun mistakast rétt eins og tilraunin til að flytja miðbæinn í Kringluna. Látum miðborgina okkar lifa Eftir Ragnhildi Kolka » Brugðist er hér við áróðri gegn miðborg Reykjavíkur. Hún er ekki eins slæm og af er látið. Reyndar bara stórfín. Ragnhildur Kolka Höfundur er lífeindafræðingur MSc og bókmenntafræðingur MA. Sjálfsagt lítur stjórn- sýslan svo á málin að þetta sé okkar hugs- unarháttur, „bara ef það hentar mér“, en raunin er sú að svo er ekki í pottinn búið hjá okkur bifhjólafólkinu. Ég held að flest séum við sammála um að klæðast vel, klæðast fyrir fallið og allur þessi söngur! En á hinn bóginn viljum við eiga val þegar kem- ur að kaupum hlífðarfatnaðar. Flóra hjólafólks er breið og það sem ekki hentar mér á Harley hentar fínt fyrir Gauja á Kawanum og svo öfugt … Vesenið er að gallinn hans Gauja er sennilega í náðinni hjá stjórnsýslunni og þarf þar af leiðandi líka náð hjá tryggingafélögum, á meðan gallinn minn er það ekki þótt fram- leiðslumarkmið og þol gallanna sé það sama. Til að byrja á byrjuninni þá fór af stað vinna innan samtakanna fyrir nokkrum misserum. Ég efa ekki að farið hafi verið af stað með góðum hug, sér í lagi með tilliti til tolla- og vörulækkunar á hlífðarfatnaði bif- hjólafólks. Kannski er ekki réttlátt að gagnrýna þessa vinnu á þeim grundvelli að hugurinn hafi verið góður, en traustar stoðir standa ekki uppi með góðan hug einan að vopni í svona veigamiklum málum. Lág- markskröfur til fólks sem gengur í slík verkefni eins og breytingar á lög- um hlífðarfatnaðar er: Þekking á fatnaði, stöðlum, akstri bifhjóla og stjórnsýslukerfinu! Þessum kröfum var ekki fullnægt, frumvarpið var ekki yfirfarið, það var ekki lagt fyrir aðalfund Snigla og það fékk ekki réttláta meðferð inn á þing og naut ekki þeirrar athygli sem það þarfn- aðist inni á þinginu. Þrotlaus vinna hefur legið á umferð- arnefnd Snigla í tvö ár til að lagfæra þessi mis- tök. Um mitt ár í fyrra töldum við sem sitjum í umferðarnefnd okkur hafa unnið sigur í þessu máli. Mikil og náin sam- vinna við samgönguráðuneytið og stjórnsýsluna skil- uðu okkur að sam- gönguráðuneytið féllst á kröfur okkar um að draga þetta frumvarp til baka á þeim forsendum að ekki væri vegur að vinna eftir því og var það því mikið áfall þegar nefnd innan samgönguráðuneytis felldi kröfur okkar út og skilaði frumvarpi á 75. gr. breyttu. Svör samgöngu- ráðuneytis voru þau að „ekki þótti gerlegt að fella þetta úr lögum á þeim forsendum að telja mætti að ráðuneytið væri með því að senda út röng skilaboð til þjóðfélagsins“. Skilaboð um að hlífðarfatnaður væri óþarfur. Ég get svo sem skilið sjón- armið ráðuneytisins í þessu máli, þetta er auðvitað algjör U-beygja sem erfitt er að útskýra, bæði fyrir stjórnsýslu og þjóðfélaginu sjálfu! Nú eru nýju umferðarlögin komin inn á borð Alþingis. Okkar staða nú er að herja á Alþingi um breytingar, ósk um að verða umsagnaraðilar að frumvarpinu og reyna af öllum mætti að lágmarka skaðann fyrir bif- hjólafólk og í kjölfarið draga úr völd- um tryggingafélaga að skerða bóta- rétt okkar þegar til slysa kemur. Auðvitað er það hneisa að stjórnsýsl- an skuli þvinga okkur til aðgerða í þessu máli, það er hneisa að stjórn- sýslan skuli með forsjárhyggju setja okkur í tvísýna stöðu gagnvart bóta- rétti okkar. Kannski spyr sig einhver sem ekki gerir sér grein fyrir alvöru málsins – hvert er vandamálið? Af hverju vil fólk ekki setja notkun hlífðarfatnaðar í lög rétt eins og hjálmaskyldu og beltanotkun? Svar við því er einfalt. Staðlakerfi örygg- isfatnaðar ætlaðs til bifhjólaaksturs alls staðar í heiminum er meingallað þótt fatnaðurinn sjálfur fái fullt hús stjarna og þegar kemur að reglu- gerðasmíðum um hvað flokkast til hlífðarfatnaðar, hvort sem það er lág- marksfatnaður eða ekki, er raun- veruleg hætta á að reglugerðin valdi því að úrval hlífðarfatnaðar, bæði þeir gallar sem við eigum og höfum keypt fyrir stórfé og gallar sem okk- ur mun hugnast að kaupa og nota, sé ekki samkvæmt reglugerð. Hlífðarfatamálið er ekki það eina sem getur njörvað réttindi okkar heldur einnig tillaga um að „smærri einstaklingar en 150 cm mega ekki sitja á bifhjóli“ og hækkun prófsald- urs upp um þrjú ár. Hér á landi er lögræðisaldur 18 ár, við 18 ára aldur máttu gifta þig, taka lán, kaupa hús og gera það sem hugur og geta girn- ist – nema að keyra mótorhjól! Um tvítugt máttu fara í ríkið og kaupa þér áfengi – en þú mátt ekki keyra mótorhjól. Akstur bifhjóla er hættu- legur, á því leikur enginn vafi. En 300 hestafla bíll er líka hættulegur ef ekki hættulegri en 60-70 hestafla bif- hjól. Það er ekki með nokkru móti hægt að skilja hvers vegna það eru sett takmörk á bifhjólaréttindi en ekki bifreiðir. Bifhjól flokkast undir sama hatt og fólksbíll – ökutæki. Bara ef það hentar mér Eftir Indu Björk Alexandersdóttur »Hér á landi er lög- ræðisaldur 18 ár, við 18 ára aldur máttu gifta þig, taka lán, kaupa hús og gera það sem hugur og geta girnist – nema að keyra mótorhjól! Inda Björk Alexandersdóttir Höfundur er formaður umferð- arnefndar Snigla. Morgunblaðið birtir alla útgáfu- daga aðsendar umræðugreinar frá lesendum. Blaðið áskilur sér rétt til að hafna greinum, stytta texta í samráði við höfunda og ákveða hvort grein birtist í umræðunni, í bréfum til blaðsins eða á vefnum mbl.is. Blaðið birtir ekki greinar, sem eru skrifaðar fyrst og fremst til að kynna starfsemi einstakra stofnana, fyrirtækja eða samtaka eða til að kynna viðburði, svo sem fundi og ráðstefnur. Innsendikerfið Þeir sem þurfa að senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðs- ins. Formið er undir liðnum „Senda inn efni“ ofarlega á forsíðu mbl.is. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Ekki er lengur tekið við grein- um sem sendar eru í tölvupósti. Í fyrsta skipti sem formið er not- að þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið, en næst þegar kerfið er notað er nóg að slá inn netfang og lykilorð og er þá notandasvæðið virkt. Ekki er hægt að senda inn lengri grein en sem nemur þeirri hámarkslengd sem gefin er upp fyrir hvern efnisþátt en boðið er upp á birtingu lengri greina á vefn- um. Nánari upplýsingar gefur starfsfólk greinadeildar. Móttaka aðsendra greina

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.