Morgunblaðið - 11.05.2010, Side 20

Morgunblaðið - 11.05.2010, Side 20
20 Minningar MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 2010 ✝ Jóna Ólafsdóttirfæddist í Ausu í Andakílshreppi 26. október 1917. Hún lést 3. maí síðastlið- inn á líknardeild Landspítalans í Landakoti. Hún ólst upp með foreldrum sínum, lengst af í Miðvogi í Innri-Akraneshreppi, en fluttist 1940 til Reykjavíkur. For- eldrar hennar voru: Krístín Jónsdóttir, f. 11. júní 1890 að Ausu í Andakíl, d. 8. apríl 1955 og Ólafur Guðmunds- son, f. 6. mars 1889 að Svanga (nú Haga) í Skorradal, d. 23 september 1980. Þau bjuggu lengst af í Mið- vogi í Innri-Akraneshreppi en flutt- ust á Akranes 1945 og bjuggu þar til æviloka. Börn Kristínar og Ólafs voru fjögur, Jóna var þeirra elst. Systkin hennar voru: Margrét Eggerts Ólafsdóttir, f. 8. ágúst 1921, d. 8. febrúar 1922, Ragnhildur Sigríður Ólafsdóttir, f. 2. febrúar 1923, húsfreyja í Reykja- vík, og Eggert Aðalsteinn Ólafsson, f. 8. desember 1925, bifvélavirki, d. 21. maí 1996. Á jóladag árið 1942 giftist Jóna Páli Guð- mundssyni frá Krossanesi í Helgu- staðahreppi, f. 6. mars 1917. Páll lést á aðfangadag árið 2001. Þau bjuggu alla tíð í Skipasundi 11 Reykjavik. Jóna og Páll eignuðust fimm börn. 1) Drengur, f. í júní 1944, d. júní 1944, 2) Guðmundur, f. 24 mars 1946, kvæntur Guðbjörgu Maríu Jóelsdóttur, f. 1. april 1947. Dóttir þeirra er Arn- fríður María, f. 27. júní 1967. 3) Kristín, f. 14 júlí 1949, gift Magnúsi Ingvarssyni, f. 7 júni 1941. Synir þeirra eru: Ingvar, f. 23. febrúar 1974, Ólafur Páll, f. 14. nóvember 1975 og Agnar, f. 23. febrúar 1980. 4) Dóttir, f. 23. febrúar 1958, d. 23. febrúar 1958. 5) Gissur, f. 24 októ- ber 1960. Börn hans eru Þórður Daði, f. 1. febrúar 1984, Matthías Páll, f. 4. september 1991 og El- ísabet Ásdís, f. 6. mars 1996. Barna- barnabörn Jónu eru orðin þrjú. Útför Jónu fer fram frá Áskirkju í Reykjavík þriðjudaginn 11. maí 2010 og hefst athöfnin klukkan 13. Elsku mamma mín. Nú er komið að kveðjustundinni okkar í þessu jarðneska lífi. Við systkinin minn- umst þín fyrir gleði þína og þægilega nærveru. Aldrei heyrði maður styggðaryrði þau ár sem þú varst að ala okkur upp. Samt tókst þér að innprenta í okkur hvað er rétt og rangt og hvað leyfist og hvað ekki. Hvernig hver og einn átti að koma fram við náungann, hver sem hann var og hvaða stöðu sem hann hafði, allir voru jafnir. Virðing, náunga- kærleikur, heiðaleiki, samviskusemi og skilvísi var það sem þið foreldrar færðuð okkur í uppeldinu. Það voru forréttindi að geta komið til ykkar í Skipasundið þar sem þið bjugguð alla tíð í meira en hálfa öld. Alltaf voru allir velkomnir, enda var gestkvæmt af ættingjum, vinum og fyrrum sveitungum af landsbyggð- inni fyrstu áratugina, og ekki til- tökumál þótt gestir gistu í tvær til þrjár vikur. Aldrei var kvartað, þó eflaust hafi einhvern tíma verið lang- ur vinnudagur bæði við heimilisstörf sem og fæðuöflun. Þitt yndi var að komast í sveitina og fórum við ófáar ferðirnar saman, vítt og breitt um landið, austur á firði sem þá var talin full þriggja dag ferð aðra leiðina eða vestur á firði á sjötta áratugnum þegar við tjölduðum í túnfætinum á Brjánslæk og biðum í viku eftir að fá varahlut í bílinn með rútunni. Vandamálin voru til að leysa þau og glaðværðin aldrei langt undan, sama á hverju gekk. Yndi þitt af félags- skap annarra var mjög gefandi og ekki sakaði hvað þú hafði gaman af að dansa. Eftir að fækka tók á heim- ilinu og aldurinn færðist yfir þá tóku við hannyrðir svo um munaði og sjaldan féll þér verk úr hendi. Að lokum langar mig að nefna sálm sem móðir þín benti þér á þeg- ar þú varst unglingur sem gott vega- nesti út í lífið. Sálmur sem þú hélst mikið upp á, og var þér mjög kær sem leiðarljós í gegnum lífið. Legg þú á djúpið, þú, sem enn ert ungur, og æðrast ei, þótt straumur lífs sé þungur, en set þér snemma háleitt mark og mið, haf Guðs orð fyrir leiðarstein í stafni og stýrðu síðan beint í Jesú nafni á himins hlið. (Matth. Jochumsson.) Með söknuði kveð ég þig, kæra móðir. Ég þakka þér leiðsögnina og vináttuna. Blessuð sé minning þín. Þinn sonur, Guðmundur. Á uppvaxtarárum mínum eyddi ég mörgum stundum með ykkur afa í Skipasundinu. Skipasundið varð mitt annað heimili og þar lærði ég góðar lífsreglur og gildi sem ég hef reynt að fylgja í mínu lífi. Þið afi vor- uð mér góðar fyrirmyndir og á sama tíma voruð þið skemmtilegir karakt- erar með jákvætt viðhorf til lífsins og sterkar skoðanir á mönnum og málefnum. Nú hefurðu sameinast afa á ný á góðum stað og það er huggun að hugsa til þess. Þrátt fyrir að hafa ekki haft tækifæri til að vera hjá þér seinustu stundirnar fann ég svo greinilega fyrir nærveru þinni. Það finnst mér lýsa þér vel, amma mín. Karekterinn svo sterkur og nærver- an þannig að maður finnur hana hvar í heimi sem maður er. Ég er þakk- látur fyrir að þú gast notið seinustu áranna vel, hraust, sátt og í notaleg- um félagsskap á góðu heimili. Hvíldu í friði, amma mín. Ólafur Páll. Eitt sinn fyrir ekki svo löngu sagð- irðu við mig: „Mér finnst ég bara ekkert vera svo gömul.“ Það kom mér ekkert sérstaklega á óvart enda þú síung í skemmtilegum frásögnum af mótorhjólum og bláu hári á Borg- inni, útreiðartúrum og uppvaxtarár- um fjarri borginni. Þær standa upp úr þegar ég læt hugann reika og þakka fyrir ánægjuleg kynni í gegn- um árin. Ekki síður en sá einstaki dugnaður að á tíræðisaldri fylla alla jólapakka afkomendanna með út- saumuðum listaverkum unnum af al- úð fyrir hvern og einn. Minningarn- ar munu ylja okkur um ókomna tíð. Af eilífðarljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en auga sér mót öllum oss faðminn breiðir. (Einar Benediktsson.) Hjördís og Daði Freyr. Mæt kona, vinur minn Jóna, kveð- ur þetta jarðlíf og heldur á vit ljóss- ins á sama tíma og sumarið gengur í garð. Hún og maður hennar voru með fyrstu frumbyggjum að Skipa- sundi 11, þar sem þau bjuggu alla tíð. Ég sem þessar línur rita var svo heppinn að vera næsti nágranni þeirra frá árinu 1947. Það þurfti stefnufestu, hugrekki og sjálfsaf- neitun að koma yfir sig húsþaki á þessum árum. Oft urðu vinir og fé- lagar að koma til aðstoðar. Heimilin voru opin fyrir gestum og gangandi. Krakkamergðin mikil í götunni er undu sér glaðir við leik á Kleppstúninu, við Vatnagarða, Keili, – og í leikjum í sjálfu Sundinu. Þar sem enginn skipti sér af en allir fylgdust með að settum leikreglum væri fylgt. Í þessu frjálsa umhverfi var gott að alast upp. Ég var svo lán- samur að kynnast heimili ykkar Páls á þeim aldri er mannshugurinn verð- ur fyrir þeim áhrifum er endast allt lífið. Aldrei minnist ég þess að hafa heyrt frá þér styggðaryrði þó oft syði upp úr í ærslum okkar krakk- anna. Alltaf sama brosið, gleðin, mildin, – og maður boðinn velkomin í eldhúsið þitt er snéri að götunni þar sem þú gast séð allt er þar fór fram, – og ég fékk snúð þrátt fyrir ólætin sem mér fannst þá besti viðgjörn- ingur sem ég gat hugsað mér, enda keypti móðir mín aldrei snúð þótt ég rellaði mikið. Já, stórfjölskyldan í Skipasundinu sækir á mig er ég kveð þig, Jóna mín. Það var yndislegt að alast upp, – í leiðsögn þeirrar kynslóðar er nú er horfin sjónum okkar, – og þú síð- ust að kveðja. Kynslóð er gaf af sér, studdi, gladdist og hjálpaðist að við háa sem lága, börn sem aldraða, heil- brigða sem sjúka. Kynslóð er mótar þá umgjörð sem hún er vaxin frá. Þar fórst þú fremst í flokki, Jóna mín, með þinni glöðu og skemmti- legu nærveru og þið öll voruð verð- ugir fulltrúar þeirrar kynslóðar sem ég og aðrir minnumst með virðingu og þakklæti. Ég vil sérstaklega minnast á gamlárskvöldin og brenn- una okkar krakkana. Dansinn á heimili ykkar eftir að nýja árið gekk í garð og allir velkomnir. Húsið ykk- ar var okkar félagsheimili og þú geislandi af gleði og umhyggju fyrir gestum þínum. Ég undirritaður vil nota þetta tækifæri að flytja heimili þínu mínar bestu þakkir, – einnig Guðna mágs þíns og hans konu Sig- rúnar. En þú og Rúna önnuðust for- eldra mína af mikilli kostgæfni er aldur færðist yfir þau. Sú skuld verð- ur aldrei greidd nema í fátækum orðum. Síðustu æviár þín dvaldist þú á Norðurbrún 1, í Holtinu þínu og und- ir þú hag þínum vel og naust fé- lagslyndis þíns. Jóna var ein þeirra mörgu sem vinna störf sín í kyrrþey, sem sjald- an er getið um en allir njóta ávaxt- anna af verkum þeirra. Nú er hún horfin sjónum okkar yfir móðuna miklu. En megi það ljós er þú tendr- aðir í brjóstum barna þinna, vina og samferðamanna verða að gróður- sprota fyrir betra lífi. Eftirlifandi börnum þínum og öðrum aðstand- endum sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Hún á góða heim- komu vísa. Hvíl í friði, mæta kona. Þinn vinur, Eyjólfur Magnússon Scheving. Jóna Ólafsdóttir ✝ Fjóla fæddist áLambanesreykj- um í Fljótum 21. október 1922. Hún lést á dvalarheim- ilinu Hlíð 7. apríl sl. Foreldrar hennar voru Þorbergur Arn- grímsson bóndi, fæddur í Höfn í Fljótum 8. ágúst 1893, d. 15. ágúst 1971, og Soffía Gunnlaugsdóttir, fædd í Baldursheimi, Arnarneshreppi 8. janúar 1903, d. 4. febrúar 1986. Systkini Fjólu: Valgerður, f. 1919, d. 1987, Ólafur Jónas, f. 1926, d. 1992, Sigurður, f. 1929, d. 1994, Sveinn, f. 1931, Birna, f. 1934, Ágústa, f. 1936, og Matthías, f. 1940. Hálfsystir samfeðra Kristín Aðalbjörg Jóna, f. 1915, d. 1999. Á æskuárum bjó fjölskyldan á Grund, Eyrarbakka og Hofteigi í Arnarneshreppi. Fjóla giftist 8. maí 1948 Erlingi Pálma- syni lögreglumanni, f. á Hofi í Hörgárdal 4. ágúst 1925, d. 26. nóvember 1997. Börn þeirra eru Halldór Pálmi Erl- ingsson, f. 15. sept- ember 1947. Maki Gerður Kristjáns- dóttir, f. 4. janúar 1951, eiga þau sex börn og sjö barna- börn. Bergþór Erl- ingsson, f. 30. janúar 1953. Maki Heiðdís Á. Þorvaldsdóttir, f. 9.12. 1953, eiga þau fjögur börn og sjö barnabörn. Erna Erlingsdóttir, f. 10. apríl 1955. Maki Hjörtur Gísl- son, f. 15. ágúst 1952, og eru þeirra börn þrjú og barnabörn tvö. Útför Fjólu hefur farið fram í kyrrþey. Elsku tengdamóðir mín er nú lát- in. Við slík tímamót streyma minn- ingar um hugann. Samband okkar Fjólu var afar gott allt frá upphafi okkar kynna og fátt var notalegra en að sitja með henni yfir kaffibolla og spjalla um allt og ekkert. Aldrei heyrðist hún hallmæla fólki, fann alltaf já- kvæða hluti um hvern og einn sem hún mætti á lífsleiðinni. Hún reyndist mér eins og besta móðir og vakti yfir velferð okkar allra alla tíð meðan heilsan leyfði. Kátína og gleði var ríkjandi á heim- ili tengdaforeldra minna og var því sárt að sjá drunga leggjast yfir sál síðustu æviárin. Börnum okkar þótti alltaf gott að koma til ömmu og afa í Aðalstrætið og ófá jól og áramót áttum við þar saman. Síðustu æviárin saman bjuggu þau í Lindarsíðu 2. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Takk fyrir allt elsku Fjóla. Þín tengdadóttir, Heiðdís. Elsku amma, að kveðja þig í dag er ljúfsárt. Við vitum að þú ert hvíldinni fegin, ekki síður ham- ingjusöm með endurfundi þína við afa Erling. Samt skilur þú eftir stórt skarð í hjörtum okkar því betri, glaðværari og yndislegri ömmu var ekki hægt að hugsa sér. Heimsóknir okkar til þín voru fáar síðustu árin þar sem við systkinin búum fyrir sunnan. Að koma í heimsókn í Aðalstrætið og svo seinna í Lindarsíðuna var alltaf til- hlökkunarefni. Það var svo nota- legt að koma í hlýjuna og kerta- ljósið til ömmu og afa í Aðó eins og við kölluðum það. Alltaf var eitt- hvað gott að borða hjá ömmu Fjólu hvort sem það voru rjómakökur, smurbrauðstertur, súkkulaðikakan góða eða laxasalatið sem seint verður gleymt. Nammiskálin var líka að sjálfsögðu alltaf til staðar. Södd og sæl settumst við í sófann en í ömmu heyrðist „ég á kleinur í frysti“ eða „ég get hrært í meira laxasalat“. Aldrei fórum við svöng frá ömmu. Nú þegar við erum orðin foreldr- ar þykir okkur leitt að börnin okk- ar fái aldrei að kynnast ömmu Fjólu, þekkja hana eins og við þekktum hana, hlæjandi, brosandi og hugsandi um allt annað en sjálfa sig. Elsku amma, minning þín mun ávallt fylgja okkur og okkar fjöl- skyldum. Mín ljúfsára lokakveðja koss læði á svala kinn. Minningar kærar sem kæta og gleðja við kveðjumst í hinsta sinn. (EB) Berglind og Elmar. Fjóla Þorbergsdóttir ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, HULDA VILHJÁLMSDÓTTIR, Hjallatúni, Vík í Mýrdal, andaðist á Hjallatúni fimmtudaginn 6. maí. Útför hennar fer fram frá Víkurkirkju föstudaginn 14. maí kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á dvalarheimilið Hjallatún. Finnur Bjarnason, Gréta Bjarnadóttir, Oddný Bjarnadóttir, Stefán Á. Stefánsson, Valborg Bjarnadóttir, Egill Bjarnason, Sigurlín Tómasdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SÝRUS GUÐVIN MAGNÚSSON, Lækjarsmára 8, Kópavogi, andaðist á Landspítala Landakoti laugardaginn 8. maí. Útför hans verður frá Digraneskirkju fimmtudaginn 20. maí kl. 13.00. Matthildur Katrín Jónsdóttir, Viðar Sýrusson, Elsa Ólafsdóttir, Ásta Kristín Sýrusdóttir, Jón Bernharð Þorsteinsson, Reynir Sýrusson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.