Morgunblaðið - 11.05.2010, Qupperneq 26
26 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
VESKIÐ HENNAR LÍSU
ILMAR EINS OG HÚN
HVERNIG LYKT ÆTLI SÉ
AF BUDDUNNI HENNAR?
LYKTAR EINS
OG RASSVASI
OG ÞÁ HEFUR
FORVITNINNI VERIÐ
SVALAÐ ENN EINA
FERÐINA, DÖMUR
MÍNAR OG HERRAR
ÆI
ÞETTA
GENGUR
EKKI
ÉG ÞARF AÐ
HAFA KVEIKT
LJÓSIÐ
ELSKAN, Í GEGNUM ÁRIN HEF ÉG
REYNT AÐ VERJA ÞIG FYRIR KÖLDUM
RAUNVERULEIKANUM
KARLMENN TAKA ALDREI
ÓHREINU FÖTIN SÍN
UPP AF GÓLFINU
EN ÉG HELD AÐ ÞAÐ
SÉ KOMINN TÍMI
TIL AÐ ÉG SEGI ÞÉR
EINA STAÐREYND
UM HEIMINN
GRÍMUR,
ÞÚ KOMST!
UGA!
LÁTTU ÞÉR
BARA BATNA.
ÉG SKAL SJÁ UM
ALLAR ÞÍNAR
SKYLDUR FYRIR
HÁSKÓLANN
MEÐ
HEIÐARLEIKA
OG VIRÐINGU
...OG ÞOKULÚÐRI,
HÁRKOLLU, STÓRUM
SVAMPFINGRI...
FYRST LANGAR OKKUR AÐ
BIÐJA ALLA UM AÐ KYNNA
SIG FYRIR HÓPNUM OG
SEGJA OKKUR HVAÐ
ÞIÐ VILJIÐ FÁ ÚT ÚR
ÞESSARI HELGI
ÉG KOM BARA
SVO KONAN MÍN
MYNDI HÆTTA AÐ
NÖLDRA Í MÉR
ÞEGIÐU!
ERUÐ ÞIÐ Á
RÉTTUM STAÐ?
KOMIÐI SÆL! ÉG HEITI KARL OG ÞETTA ER
KONAN MÍN, HÚN MARGRÉT. VIÐ MUNUM
STÝRA ÞESSU HJÓNABANDSNÁMSKEIÐI
HÆG SEKÚNDA Í LÍFI
KÓNGULÓARMANNSINS...
HANN SKAUT Á MIG ÚR
KLUKKULAGA BYSSU...
MEÐ MÍN VIÐBRÖGÐ
ER EKKERT MÁL AÐ
VÍKJA SÉR UNDAN
ÞESSI HRINGING! ÞETTA ER EINS
OG ÞÚSUND VEKJARAKLUKKUR!
ÉG NÆ EKKI ÁTTUM
Án gríns
Sem kjósanda í
Reykjavík þótti mér
ágætt tækifæri að
skoða Háskólann í
Reykjavík og sækja um
leið fund með fram-
bjóðendum flokkanna í
Reykjavík.
Óhætt er að segja að
háskólahúsið er mjög
glæsilegt. Ekki verður
hægt að segja að fram-
bjóðendurnir stæðu sig
með glæsibrag, nema
Hanna Birna Krist-
jánsdóttir borgarstjóri.
Hún flutti sitt mál
skýrt og greinilega á þeim mínútum
sem frambjóðendur höfðu til að kynna
sig og sína flokka. Að loknum kynn-
ingum var fundarmönnum gefinn
kostur á að spyrja frambjóðendurna.
Í skemmstu máli voru svörin al-
mennt óljós, langdregin eða hreint
grín.
Einhver sagði að varaformaður
Samfylkingarinnar, Dagur B. Egg-
ertsson, væri ekki þekktur fyrir að
vera langorður. Salurinn skellihló.
Maðurinn talaði og fyrr en varði var
hann kominn aftur á byrjunarreit.
Maður skynjaði aldrei hvað hann var
að tala um. Utan úr salnum heyrðist
kallað: „Hættu þessu maður, þvílík
langloka.“ Og aftur gall við skellihlát-
ur. Það þarf ekki Jón Gnarr grínara
til.
En án gríns, hver vill ala upp úti-
gangsmenn í borginni?
Rífa upp aspir og fleira
sem Jón Gnarr er að
tala um og er ekki grín.
Lágmarkskrafa er að
þeir sem veljast í borg-
arstjórn Reykjavíkur
séu vel menntaðir og
hafi þekkingu til að
stjórna borginni. Jóni
Gnarr finnst Reykjavík
leiðinleg borg. Er mað-
urinn kannski bara að
grínast?
Hvernig getur borg
verið leiðinleg? Borg
getur aldrei verið leið-
inleg. Hins vegar eru
það þeir sem búa í
borginni sem gera hana oft á tíðum
leiðinlega, ljóta og subbulega með
slæmri umgengni og hirðuleysi al-
mennt. Reykjavík er falleg borg sem
Reykvíkingar geta verið stoltir af.
Borgarstjórn Reykjavíkur hefur
verið samstillt um að gera góða borg
betri. Og þrátt fyrir „kreppuna“ eru
góðir hlutir að gerast í Reykjavík.
Það sama er ekki hægt að segja um
landsmálin.
Þau eru þvílíkur flækjufótur enda
ekki við öðru að búast hjá þeim sem
halda utan um þau mál. Ekki ber á
neinum framförum á þeim bæ.
Hanna Elíasdóttir,
kjósandi í Reykjavík.
Ást er…
… að lesa „bara eina
sögu í viðbót“ fyrir
svefninn.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9, vatns-
leikfimi (Vesturbæjarl.) kl. 10.50, postulín
kl. 13, lestrarhópur kl. 14.
Árskógar 4 | Smíði/útskurður kl. 9,
botsía kl. 9.45, handavinna kl. 12.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Línudans kl. 13.30.
Dalbraut 18-20 | Vinnustofa kl. 9, fé-
lagsvist og framsögn kl. 14.
Dalbraut 27 | Handav. kl. 8, vídeó kl. 14.
Listamaður mánaðarins.
Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl 11.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Skák kl.
13, félagsvist kl. 20.
Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi kl.
9.45, handav. til kl. 17, jóga kl. 10.50.
Félagsheimilið Gjábakki | Nemendur
leiksk. Fögrubrekku syngja kl. 10.45, kl. 14
hefst afmælisdagsk. Gjábakka, kaffi/
kleinur í boði.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Jóga/
myndl. kl. 9.30, ganga kl. 10, jóga kl. 18.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Línudans, karlaleikfimi, botsía, kyrrð-
arst./opið hús í kirkju, fastir tímar.
Félagsstarf Gerðubergi | Glersk/
perlus.kl. 9, stafganga kl. 10.30, farið á
sýn. í Ráðhúsinu (frá Bólstaðar-, Löngu-
hlíð, Vesturgötu og Vitatorgi) kl. 13.30, á
heimleið komið við í Hvassaleiti, á sýningu
og í kaffi, s. 575-7720.
Grensáskirkja | Þeir sem vilja taka þátt í
hádegisverði eftir messu á uppstigning-
ardag skrái sig í s. 528-4410 f.h. á mið-
vikudag. Verð 1.500 kr.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, mynd-
mennt/qI-gong kl. 10, leikfimi kl. 11.30,
boltaleikf. kl. 12, brids kl. 12.30, mynd-
mennt kl. 13, vatnsleikf. kl. 14.10, hálfs dags
ferð til Grindavíkur kl. 13 12. maí.
Hvassaleiti 56-58 | Bútasaum. kl. 9,
myndl. kl. 13, helgist. kl. 14, stólaleikf. kl. 15.
Myndl.sýn. á opnunart., kaffisala.
Hæðargarður 31 | Fastir liðir. Hægt að taka
frá miða á Tríó Björns Thoroddsen og And-
reu Gylfadóttur 14. maí kl. 14.
Íþróttafélagið Glóð | Línudans fram-
h.hópur II kl. 14.30, framh.hópur I kl. 16,
byrj. kl. 17.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun er fé-
lagsvist á Korpúlfsstöðum kl. 13.30.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Morgunkaffi,
vísnakl. kl. 9.15, leikfimi kl. 11, handv. kl. 11,
opið hús brids/vist kl. 13, postulín ofl. kl. 13,
hárgreiðslust. s. 552-2488, fótaaðgerðast.
s. 552-7522.
Norðurbrún 1 | Myndlist kl. 9, útsk., postu-
lín hefst kl. 13, handav. kl. 13. Leikfimi hefst
aftur í júní.
Norðurbrún 1 | Myndlist kl. 9, útsk., postu-
lín og handav. kl. 13.
Safnaðarheimilið Kirkjuhvoll, Garðabæ |
Kyrrðarstund kl. 12.10. Súpa kr. 250. Spi-
labingó, spjall, handav. kl. 13. Kaffi kr. 250,
Vesturgata 7 | Handavinna/spænska kl.
9.15, spurt og spjallað, bútasaumur, leshóp-
ur og frjáls spil kl. 13.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, búta-
saumur, glerbræðsla kl. 9, morgunstund kl.
9.30, leikfimi kl. 10.15, framh.saga kl. 12.30,
handavinnust. kl. 13, félagsvist kl. 14.
Bjarni Thorarensen ólst upp á Hlíð-
arenda og segir Jón Helgason í
æviágripi, að kvæði hans sýni „að
honum var Fljótshlíðin jafnan kær-
ust allra sveita og fjallasýn þaðan
minnisstæðust“. „Um afturfarir
Fljótshlíðar“ er ort 1821, eftir að
eldgos kom upp í Eyjafjallajökli en
það stóð frá 1821 til 1823:
Nú er flag
Fljótshlíð orðin,
íturvæn
er áður þótti,
í fjalla aur
fætur hyljast,
á grænum fyrr
sem grundum stóðu.
Gunnar hátt
af haugi lítur
slóðir fagrar fyrr
fölar orðnar,
og iðrast nú
að aftur hvarf
að bera bein
blá við hrjóstur.
Karl af Laugaveginum var á ferð
um Njáluslóðir um helgina og
mökkinn lagði upp af Eyja-
fjallajökli:
Þó askan breiði svört úr sér
og sökkvi hreiðrum kjóanna,
gaddur í fé og allt hvað er
ekki skrökvar Jóhanna.
Þessi vísa karlsins gefur tilefni til
að rifja upp gamla vísu, sem ort var
í sumarbyrjun; vorið hafði verið
gott og gróska í loftinu:
Það er sagt í hálfum hljóðum
sem haft er eftir konum fróðum
að labbi um með land í skjóðum
lúpínan á Njáluslóðum.
Vísnahorn pebl@mbl.is
Af Hlíðarenda og eldgosi