Morgunblaðið - 11.05.2010, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 2010
allar upplýsingar á www.operubio.is
NÚ ER HÆGT AÐ KAUPA ÓPERUPASSA, ódýrara miðaverð og númeruð sæti
miðasala í Sambíóunum Kringlunni opnar kl. 17.00
NÆSTA TÍMABIL HEFST Í OKTÓBER... KYNNIÐ YKKUR MÁLIÐ Á WWW.OPERUBIO.IS
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
SÝND Í ÁLFABAKKA, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
Robert Downey Jr., Samuel L. Jackson,
Gwyneth Paltrow, Scarlett Johansson, Don
Cheadle og Mickey Rourke eru mætt í fyrstu
STÓRMYND SUMARSINS
FYRRI MYNDIN
GERÐI ALLT
VITLAUST OG
ÞESSI ER ENN
BETRI!
Ath. það er sérstakt leyniatriði á eftir
creditlistanum í lok myndarinnar.
Stærsta opnun á Íslandi árið 2010
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
600 kr.
600 kr.
Tilboð
IRON MAN 2 kl. 5:30 - 8 - 10:30 12
KICK-ASS kl. 8 - 10:30 14
OFURSTRÁKURINN kl. 6 m. ísl. tali L
IRON MAN 2 kl. 5:30 - 8 - 10:30 12
KICK-ASS kl. 8 - 10:10 14
OFURSTRÁKURINN kl. 6 m. ísl. tali L
IRON MAN 2 kl. 5:30 - 8 - 10:30 12
SHE'S OUT OF MY LEAGUE kl. 8 12
DATE NIGHT kl. 10:10 10
OFURSTRÁKURINN kl. 5:50 m. ísl. tali L
/ KEFLAVÍK / SELFOSSI/ AKUREYRI
GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR, VIP OG 3D MYNDIR
8.05.2010
8 10 11 18 28
3 1 9 1 2
0 1 0 9 1
31
5.05.2010
3 5 20 38 45 46
1913 18
AF LISTUM
Hugrún Halldórsdóttir
hugrun@mbl.is
Hrói Höttur, með RusselCrowe í aðalhlutverki,verður opnunarmynd kvik-
myndahátíðarinnar í Cannes í
Frakklandi á morgun. Hinn góð-
kunni Ridley Scott leikstýrir mynd-
inni og því er líklegt að Hollywood-
bragur verði yfir Hróa í þetta skipt-
ið. Með myndinni fetar Russel
Crowe í fótspor ekki ómerkari
manna en Sean Connery, Errol
Flynn og Kevin Costner sem allir
hafa túlkað manninn sem stal frá
þeim ríku til að gefa þeim fátæku.
Þessi þjóðsöguhetja hefur verið
vinsæl allt frá sinni tíð og hafa ef-
laust margir strákar látið sig
dreyma í barnæsku um að standa í
sporum Hróa Hattar, með boga og
örvar að vopni. Hann hefur einnig
notið mikillar hylli meðal kvenþjóð-
arinnar, sem kemur ef til vill ekki á
óvart því fátt heillar dömur jafn
mikið og vígamaður sem berst fyrir
réttlæti.
Hrói og fylgdarlið hans hafaoftar en ekki sprangað um
Skírisskóg í laufgrænum sokkabux-
um og verið öryggið uppmálað. Það
eru nefnilega ekki margir karlmenn
sem geta gengið í níðþröngum
sokkabuxum án þess að þykja það
skaða karlmennskuna.
Með árunum hafa kvikmynda-
gerðarmenn breytt útliti Hróa, en í
nýjustu myndinni er sokkabuxunum
hreinlega skipt út fyrir snjáðar og
óhreinar gallabuxur.
Það er spurning hvort Holly-
wood-menn sjá meiri gróðavon í því
að taka Hróa úr sokkabuxunum.
Þannig er verið að höfða meira til
karlkyns áhorfenda, sem finnst ef-
laust erfitt að horfa á kynbróður
sinn svo berskjaldaðan, enda er lítið
eftir fyrir ímyndunaraflið þegar
sokkabuxur eru annarsvegar.
Árið 2007 setti franski sokka-buxnaframleiðandinn Gerbe á
markað sokkabuxnalínu fyrir karl-
menn. Að þeirra sögn var eft-
irspurnin til staðar. Nú myndi mað-
ur halda að íslenskir karlmenn yrðu
með þeim fyrstu til að taka upp
þessa tísku þar sem þjóðaríþrótt
landans, glíma, einkennist einmitt af
þessum klæðnaði. Í þeirri íþrótt
spóka karlmenn sig um í „sokka-
buxum“ af öllum regnbogans litum
og eru stoltir af því. Nú þremur ár-
um síðar bólar samt sem áður ekk-
ert á þessari tísku hér á landi. Það
er spurning hvað veldur, hvort það
er hið óblíða veðurfar eða bara sú
staðreynd að íslenskir karlmenn
vilja vera karlmannlegir.
Hvað sem því líður verðuráhugavert að sjá hvernig
Crowe tekst upp með að túlka hetj-
una í nýstárlegri mynd, sokka-
buxnalausa. Sjálf hefði ég kosið
sokkabuxur á Hróa, því mér finnst
hugmyndin um Russel Crow í
þröngum sokkabuxum alls ekki út í
hött.
Karlmenn í sokkabuxum
» Þannig er verið aðhöfða meira til karl-
kyns áhorfenda, sem
finnst eflaust erfitt að
horfa á kynbróður sinn
svo berskjaldaðan.
Vígalegur Errol Flynn var flottur í hlutverki Hróa. Litríkir Alvöru karlmenn í „sokkabuxum“.
Ástarsamband leikkonunnar
Reese Witherspoon og umboðs-
mannsins Jim Toth er orðið opin-
bert. Toth fylgdi Witherspoon á
fótboltaleik hjá syni hennar, Dea-
con, í Los Angeles á laugardag-
inn áður en þau fóru saman í
brúðkaupsveislu hjá syni Toms
Hanks.
„Reese getur ekki hætt að tala
um hversu vel Jim lætur henni
líða og hversu frábært það sé að
hafa hann í kringum börnin,“
segir heimildarmaður People.
Ástin sást víst á Witherspoon
og Toth á fótboltaleiknum að
sögn viðstaddra. Parið, sem faldi
sig undir derhúfum
og sólgleraugum,
var eitt bros og
fagnaði Deacon
ákaft í leiknum
og voru aug-
ljóslega bæði
mjög stolt
af honum.
Ástin
blómstrar
Ástfangin
Reese With-
erspoon.
Ítalski menningarmálaráðherrann,
Sandro Bondi, mun ekki verða við-
staddur kvikmyndahátíðina í Cann-
es í Frakklandi sem hefst í næstu
viku í mótmælaskyni við heimildar-
mynd sem hefur verið valin til sýn-
ingar á hátíðinni. Heimildar-
myndin Draquila er
mjög gagnrýnin á
framferði Silvios
Berlusconis, for-
sætisráðherra
Ítalíu, í kjölfar
jarðskjálftans í
L’Aquila sem varð
þrjú hundruð
manns að bana í apríl
í fyrra. Er ráðherrann
ásakaður um að notfæra
sér harmleikinn
til að auka
eigin vinsældir og að hafa ekki sam-
ráð við íbúa um uppbyggingu eftir
skjálftann.
Bondi, sem er gallharður stuðn-
ingsmaður Berlusconis, kallaði
myndina „áróður sem brýtur gegn
sannleikanum og allri ítölsku þjóð-
inni“. Leikstjóri myndarinnar,
Sabina Guzzanti, er þekkt fyrir
gagnrýni sína á Berlusconi.
Eyddi hún nokkrum mánuðum í
bænum og rannsakaði upp-
byggingarstarf stjórnvalda.
Titill myndarinnar er samsuða
úr nafni bæjarins, L’Aquila, og
Drakúla. Enginn þarf að velkj-
ast í vafa um hver gegnir
hlutverki rúmenska
greifans í
mynd-
inni.
Berlusconi móðgaður í
heimildarmynd
Tónlistarmaðurinn Hörður Torfa
heldur tónleika í Iðnó föstudags-
kvöldið næstkomandi kl. 20. Dag-
skrá tónleikanna er að mestu byggð
á skissum og hugleiðingum sem
Hörður hripaði hjá sér á meðan
hann stóð fyrir mótmælafundunum
á Austurvelli veturinn 2008-2009 og
vann síðan í söngva og auðvitað
verða eldri söngvar með í bland,
segir í fréttatilkynningu um tón-
leikana. Nú í maí eru fjörutíu ár síð-
an Hörður útskrifaðist frá
Leiklistarskóla Þjóðleikhússins og
síðan hann hóf upptöku á sinni
fyrstu breiðskífu sem kom út ári
síðar. Miðasala á tónleikana á föstu-
daginn er í Iðnó á milli kl. 11.00 og
16.00 á virkum dögum. Miða-
sölusími er 562 9700.
Hörður Torfa með tónleika
Morgunblaðið/Ómar