Morgunblaðið - 11.05.2010, Blaðsíða 36
Þessi tjaldur verpti tveimur eggjum í öskuhrúgu við hliðina á fjárhúsunum
í Fagradal skammt frá Vík í Mýrdal. Jónas Erlendsson segir að tjaldur hafi
komið til þeirra mörg undanfarin ár og gera megi því skóna að þetta sé
sami fuglinn þó að hann geti ekki slegið því föstu. Askan úr gosinu í Eyja-
fjallajökli trufli hann ekki við varpið og ekki sé annað að sjá en honum lítist
vel á nánasta umhverfi.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Tjaldur á fornum slóðum
ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 131. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
1. Dökkur mökkur eftir skjálfta
2. Aska fannst í hreyflum
3. Röng frétt um ferðir Ólafs Þórs
4. Geta greitt sekt en borga ekki
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
„Ég hef lítið spilað í Hafnarfirði
síðan ég hélt mína debúttónleika þar
1998 og gaman að sýna hvert ég er
kominn í tónlistinni,“ segir Rúnar
Óskarsson klarínettuleikari sem
heldur kammertónleika í Hafnarborg
á uppstigningardag. »27
Morgunblaðið/Ómar
Með tónleika fyrir
sveitunga sína
Kári Allansson
orgelleikari held-
ur útskriftar-
tónleika sína í dag
kl. 17 í Hallgríms-
kirkju, en hann er
fyrsti nemandi til
að útskrifast með
BA-gráðu í orgel-
leik frá tónlistar-
deild Listaháskóla Íslands. Á efnis-
skrá eru m.a. verk eftir J.S. Bach, Jón
Ásgeirsson og Ad Wammes.
Fyrstur með BA-
gráðu í orgelleik
„Þetta er rétt tímasetning fyrir
plötuna. Hún er búin að vera lengi á
leiðinni, lögin á henni eru búin að
vera í gangi í langan tíma,“ segir
Kristján Árni Krist-
jánsson, eða Káki
eins og hann er
kallaður, söngv-
ari og gítarleikari
Kakala, um frum-
burð sveitarinnar,
The Cave, sem
kom út í síðasta
mánuði. »28
Frumburður Kakala
nefnist The Cave
Á miðvikudag Suðvestan 3-10 m/s og víða rigning, en dregur úr úrkomu þegar líður á
daginn, fyrst vestan til. Hiti 7 til 13 stig.
Á fimmtudag (uppstigningardagur) Norðaustlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s. Rigning
eða jafnvel slydda nyrðra, en skýjað með köflum og þurrt sunnan til. Kólnandi veður.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg norðlæg eða breytileg átt, skýjað með köflum eða léttskýjað.
Suðvestan 3-8 m/s síðdegis, þykknar upp og fer að rigna undir kvöld. Hiti 6-14 stig.
VEÐUR
Valur og FH gerðu jafntefli,
2:2, í fjörugum upphafsleik
úrvalsdeildar karla í fótbolt-
anum, Pepsi-deildarinnar, í
gærkvöld. Valsmenn voru
nálægt því að leggja Ís-
landsmeistarana að velli
en Gunnar Már Guð-
mundsson jafnaði fyrir
þá úr vítaspyrnu skömmu
fyrir leikslok. Danni König,
framherji Valsmanna, skor-
aði fyrsta mark deildarinnar
þetta árið. »1, 4
Valur nærri því að
leggja meistarana
Steve Nash, leikstjórnandi
körfuboltaliðsins Phoenix Suns, fékk
þungt högg í leik liðsins við San Ant-
onio Spurs og sá ekkert með öðru
auganu. Samt átti hann stórleik
á lokakafla leiksins og
tryggði Phoenix sigur í ein-
vígi liðanna. Gunnar Val-
geirsson, sérfræðingur
Morgunblaðsins, fer yfir
stöðu mála í NBA-
deildinni. »3
Sá ekkert með öðru en
skaut Spurs í kaf
Selfyssingar leika í kvöld sinn fyrsta
leik í efstu deild karla í knattspyrnu
frá upphafi. Þeir taka þá á móti Fylk-
ismönnum í fyrstu umferðinni og eft-
irvæntingin í bænum og nærsveitum
er mikil. „Það er gríðarleg stemning
og eftirvænting í bænum og varla
hefur verið rætt um annað en fót-
bolta á meðal bæjarbúa,“ segir Sæv-
ar Þór Gíslason. »2
Mikil eftirvænting fyrir
fyrsta leikinn á Selfossi
ÍÞRÓTTIR
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Ekki er vitað til þess að gosið í Eyja-
fjallajökli hafi haft áhrif á fuglalíf í
landinu til þessa, að sögn Jóhanns
Óla Hilmarssonar, formanns Fugla-
verndar.
Askan góð fyrir tjaldinn
Jóhann Óli segir að farfuglarnir
hafi ekki látið gosið trufla sig. Tjald-
urinn og jaðrakaninn hafi fljótlega
fundið út að nóg æti væri undir ösk-
unni. Hún hafi hitað upp jarðveginn
og ormarnir hafi ekki látið á sér
standa. Gosið hafi eitthvað truflað
fýlinn til að byrja með en hann hafi
verið fljótur að jafna sig. Menn hafi
einna helst haft áhyggjur af varpi
fugla sem hafi orpið á svæðunum þar
sem askan er mest en staðreyndin
með tjaldinn í Fagradal sýni að ekki
sé öll von úti. Tjaldurinn verpi
reyndar gjarnan í möl eða sandi og
askan geri varpland hans bara betra
og stærra. Hins vegar megi gera ráð
fyrir að sumir fuglar sleppi því að
verpa að þessu sinni eða reyni að
finna ný svæði fyrir varpið, ösku-
lausa bletti. Haldi gosið ekki áfram
til eilífðarnóns megi ætla að það hafi
ekki mikil áhrif á fuglalífið.
Flækingsfuglar á ferð
Farfuglarnir hafa látið sjá
sig á nýliðnum vikum og þar
á meðal sjaldséðir flæk-
ingsfuglar en engar nýjar
tegundir hafa enn sést.
Mandarínönd hefur sést í
Kópavogi, hvítönd á Álfta-
nesi, taumandarpar austur í
Nesjum, hringdúfa á Höfn,
múrsvölungur í Vest-
mannaeyjum, blikönd á Borg-
arfirði eystra, grákráka á Fáskrúðs-
firði og kúfönd í Grindavík.
Varpið nær venjulega hámarki
um mánaðamótin maí, júní. Jóhann
Óli segir að varpið í Flóanum virðist
vera tiltölulega snemma á ferðinni í
ár. Tjaldur hafi orpið fyrir sum-
ardaginn fyrsta og menn hafi orðið
varir við varp hjá álftum og hröfnum
og fleiri tegundum. „Þetta er frekar
með fyrra fallinu,“ segir hann og
bætir við að greint hafi verið frá
varpi hjá krossnefjum annan vet-
urinn í röð. Þeir koma hingað frá
Síberíu og norðurhluta Skandinavíu
og éta úr könglum í barrskógum
víða um land. „Þeir gætu verið að
nema land,“ segir Jóhann Óli Hilm-
arsson.
Fuglarnir láta
gosið ekki
hafa áhrif á sig
Nóg af ormum er undir öskunni
Jóhann Óli Hilmarsson, formað-
ur Fuglaverndar, segir spenn-
andi að fylgjast með því hvort
gosið í Eyjafjallajökli og ösku-
fallið hefur áhrif á fuglalífið í
landinu þegar til lengri tíma er
litið. Hann segir að hugsanlega
hafi staðan áhrif á varpið í ár en
þegar gosið hætti megi gera ráð
fyrir að askan hverfi með tím-
anum, þess vegna næsta vetur,
og varpið verði því með eðlileg-
um hætti þegar á næsta ári.
Hins vegar hafi vakið at-
hygli að engin opinber
stofnun hafi kannað
þennan þátt máls-
ins.
Spennandi tímar
FYLGIST MEÐ VARPINU