Morgunblaðið - 14.06.2010, Qupperneq 10
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JÚNÍ 2010
Hugrún Halldórsdóttir
hugrun@mbl.is
Sigrún Huld Þorgrímsdóttir,hjúkrunarfræðingur og úti-vistarkona, gaf nýverið útbókina Göngubók
barnanna. Þar hefur hún tínt til 20
hentugar gönguleiðir fyrir börn og
óvana fjallgöngumenn í nágrenni
Reykjavíkur. Sjálf gekk Sigrún allar
ferðirnar með samtals 22 börnum,
átta fullorðnum og þremur hundum.
„Meirihlutann af þessum ferð-
um gekk ég í fyrrasumar, en það
sumar var einstaklega gott. Ég gekk
í frítíma mínum og þurfti nánast
aldrei að fella niður ferð vegna veð-
urs,“ segir Sigrún með ánægjutón í
röddu.
Það er augljóst að hún hefur
gaman af því að rifja upp gerð bók-
arinnar.
„Það var yfirleitt ekki neitt mál
að fá krakkana með mér í fjall-
göngur. Þeir allra elstu voru þó oft-
ast uppteknir í íþróttum, jafnvel önn-
um kafnari en við fullorðna fólkið.
Það var samt allur gangur á því
hvernig krakkarnir klæddu sig, ég
fór stundum með undarlega skóuð
börn, en það fór eftir því hvort for-
eldrar þeirra voru gönguvanir. Mað-
ur þarf ekki endilega að eiga Gore-
tex og flotta gönguskó til að labba
hér í kring.“
Til minningar um vinkonu
Bókin er Sigrúnu mjög kær, og
þá fyrst og fremst fyrir þær sakir
hvernig hún er tilkomin. „Þessi bók
er í minningu vinkonu minnar Höllu.
Við gengum mikið saman og ætl-
uðum að gera göngubók til að hafa
afsökun fyrir því að fara í göngutúra
Göngubók fyrir
ungar fjallageitur
„Börn eru oft í eðli sínu fróðleiksfús,“ segir Sigrún Huld Þorgrímsdóttir, höfundur
Göngubókar barnanna. Þar fjallar hún um tuttugu góðar gönguleiðir fyrir börn í
nágrenni Reykjavíkur. „Þau þurfa eitthvað sem virkjar þau, eitthvað sem gefur
færi á leikjum, príli, busli og sögum,“ segir Sigrún um það sem hentugar göngu-
leiðir fyrir börn þurfa að hafa.
Morgunblaðið/Eggert
Í göngutúr Sigrún Huld með Óskari syni sínum sem teiknaði myndirnar í bók-
inni, Theodór Ísar syni hans og hundinum Tinnu, fjallabókatíkinni frægu.
Man-blog.com er vefsíða sem er til-
einkuð áhugamálum og því sem
vekur áhuga karlmanna. Henni er
skipt upp í nokkra flokka, sá fyrsti
er um bíla. Í þeim flokki má meðal
annars lesa sér til um hvað þarf að
hafa í huga þegar sportbíll er
keyptur, hvernig á að kitla pinnann
án þess að eyða of miklu eldsneyti
og þar er grein um stelpur og
sportbíla.
Annar flokkur er um stefnumót
og kynlíf þar sem er m.a. grein um
hvernig mjög kristnir einhleypingar
geta sameinað trúna, stefnumót og
kynlíf. Einnig er fjallað um internet-
stefnumót fullorðins fólks.
Þriðji flokkurinn fjallar um
skemmtun en þó aðallega tölvu-
leiki, annar flokkur fjallar um hug-
arleiki. Tíska fær auðvitað sinn
sess en færslurnar þar eru frekar
lélegar eins og í bloggfærslunum
um snyrtingu og snyrtivörur fyrir
karlmenn. Peningar og íþróttir fá
svo sína umfjöllun, hún verður þó
að teljast mjög léleg. Kynþokka-
fullar konur fá svo sína umfjöllun.
Það er hægt að finna áhugavert
efni á þessari síðu þó hún sé ekki
uppfærð reglulega og innihald
sumra flokkanna sé ansi rýrt.
Vefsíðan www.man-blog.com
Reuters
Sport Hraðskreiðir bílar koma auðvitað við sögu.
Um áhugamál karlmanna
Milonga-tangókvöld fer fram alla
miðvikudaga í Kaffitári í Bankastræti
frá kl. 20 til 23.
Milonga er alþjóðlegt heiti fyrir
stað þar sem fólk kemur til að dansa
tangó. Á milongu eru spilaðar þriggja
til fjögurra laga syrpur eða töndur,
ýmist í tangó-, vals- eða milonga-
takti. Eftir hverja töndu er boðið upp
að nýju. Á milongum er annaðhvort
tangó-diskótekari eða hljómsveit.
Frá kl. 20 til 20.45 er opinn kynn-
ingartími fyrir þá sem vilja kynnast
argentínskum tangó. Eftir kynning-
artímann er dansað á fullu til kl. 23.
Aðgangseyrir er 500 kr.
Endilega …
… stefnið á
tangókvöld
Nú þegar sumarið er komiðflykkjast fullorðnir ogbörn út í sólina. Sólingefur okkur kærkomna
birtu og hlýju eftir langan vetur en
einnig útfjólubláa geislun sem getur
verið skaðleg ef við förum ekki var-
lega. Þar sem húð barna er mun við-
kvæmari en húð fullorðinna er það
sérstaklega mikilvægt að börn sól-
brenni ekki. Mikilvægt er að verja
börn á fyrsta ári vandlega; sólhattur
og þunn sumarföt henta þeim vel.
Staðsetjið barnavagninn í skugg-
anum eða notið sólhlíf.
Ef farið er út í sólina milli kl. 11 og
15 er besta vörnin föt og hattur, en
sólaráburð má bera á þau svæði sem
eru óvarin. Áburðurinn verður að
vera með sólarvarnarstuðulinn 15
eða hærri, allt eftir aðstæðum. Okk-
ur hættir til að brenna í andliti, á
eyrunum og aftan á hálsi. Barða-
breiðir hattar veita þar góða vörn.
Útfjólublá geislun, hvort sem hún
kemur frá sólinni eða ljósabekkjum,
er aðalorsök húðkrabbameina. Á Ís-
landi greinast yfir 300 manns með
Hollráð um heilsuna
Húðin
gleymir
ekki sól-
bruna
ódýrt og gott
HM Lúxushamborgarar, 2 hamborgarar,
2 brauð, beikonsneiðar, BBQ sósa, ostur
og Pepsi eða Pepsi Max, 1 l
798kr.pk.
10 Daglegt líf