Morgunblaðið - 14.06.2010, Síða 25
Menning 25FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JÚNÍ 2010
Fiskidagurinn
Dalvík
4. - 8. ágúst
Föstudagskvöldið er fiskisúpukvöld,
allir bæjarbúar bjóða upp á fiskisúpu.
Skemmtun á sviðinu alla helgina. Fimm
þúsund friðardúfublöðrum sleppt,
knúskort og allir knúsast. Bryggjusöngur,
stærsta pizza landsins bökuð, hálfmaraþon
og kappreiðar.
Mærudagar
Húsavík
22. - 25. júlí
Uppskeruhátíð
félagasamtaka
bæjarins.
Litaþema, bænum
skipt í þrjú litahverfi,
góðlátleg keppni
á milli hverfa og
fyrirtækja.Húsfirsk
skemmtiatriði, fjöl-
skylduskemmtun, grill og
leiktæki fyrir börnin.
Bræðslan
Borgarfjörður eystri
23. - 25. júlí
Tónlistarhátíð á Borgarfirði.
Í ár spila breska hljómsveitin
Fanfarlo,Dikta,KK og Ellen,
200.000 Naglbítar ogmargir
fleiri. Að jafnaði mæta um tvö
þúsundmanns á Bræðsluna.
Þjóðhátíð
Vestmannaeyjar
30. júlí - 2. ágúst
Óumdeilanlega stærsta útihátíð Íslands. Dikta,
Buff og fleiri tónlistarmenn. Páll Óskar á
Húkkaraballi. Haldin í Herjólfsdal.Brekkusöngur
og brenna.Rútur og bekkjabílar ferja fólkið allan
sólarhringinn.
LungA
Seyðisfjörður
12- 18 júlí
Listahátíð á Austurlandi.
Listasmiðjur,myndlistarsýning,
leiksýning og fjöldi tónleika.
Meðal tónlistarmanna verða
Ragnheiður Gröndal, Egill Ólafs-
son,Sigurður Flosason,Kjartan
Valdimarsson,SuddenWeather
Change,Benni HemmHemm,Óli ofur,
Hjaltalín,Seabear og Bloodgroup. Neistaflug
Neskaupstaður
Verslunarmannahelgin
Hvert hverfi heldur sína
hátíð sem sameinast í
Neistaflugi.Gunni og
Felix keyra á pallbíl á
milli hverfa og halda
uppi stuðinu.Skrúð-
ganga og grill.
Skeljahátíð
Hrísey
16. -18. júlí
Grilluð skel, reykt skel,
skel og franskar í boði
boði.Brenna við
bryggjuna. Óvissuferð,
listflug, ratleikur og
sjósund. Íslandssmeist-
aramót í skeljakappáti,
í fyrra kepptu Hallgrímur
Helgason og Stefán Eiríks-
son til úrslita.Söngvakeppni,
fjöruferð og leiktæki fyrir börnin.
Ágúst
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
September
NeistaflugNeskaupstað
ÞjóðhátíðVestmannaeyjum
Fiskidagurinn Dalvík
Gæran Sauðárkróki LjósanóttKeflavík
Humarhátíð
Höfn í Hornafirði
2. - 4. júlí
Ingó ogVeðurguðirnir á stórdansleik ásamt
heimahljómsveitum. Jóhanna Guðrún syngur
nokkur vel valin lög.Ólafía Hrönn
verður kynnir dagskrárliða.
Heimsmeistaramótið í
Hornafjarðarmanna.
Kassabílarall,
golfmót og nóg
af humrum.
Fjölmargar hátíðir eru haldnar víðsvegar um
landið hvert sumar. Hátíð má finna í nánast
hverju plássi og vinsælt er að fólk ferðist þvert
yfir landið til að sækja heimaslóðirnar heim og
taka þátt í hátíðarhöldunum.
Hér gefur að líta helstu hátíðir sumarsins þó
alls ekki sé um tæmandi talningu að ræða.
Upplýsingarnar fengust frá skipuleggjendum
hverrar hátíðar en augljóst er að nóg er um að
vera í sumar fyrir þá sem vilja ferðast um landið.