Fréttablaðið - 01.10.2011, Page 6
1. október 2011 LAUGARDAGUR6
beint gegn bændum og bætir við að
standa eigi vörð um hefð bundinn
landbúnað í sveitum landsins.
Það sé hins vegar merkilegt að
ekki megi gagnrýna landbúnaðar-
kerfið í ljósi þess hve matvæla-
verð sé hátt á Íslandi og þess hve
lítið bændur bera úr býtum. Auk
þess bendir hún á að svína- og
kjúklingakjöt sé að mestu fram-
leitt í útjaðri höfuðborgarsvæðinu
í eins konar verksmiðjum sem eigi
fátt skylt með hefðbundnum land-
búnaði. magnusl@frettabladid.is
ÁSAMT HLJÓMSVEIT BJÖRNS THORODDSEN FLYTJA LÖGIN SEM
MÖMMUR ELSKUÐU OG SUNGU Á 6. OG 7. ÁRATUG SÍÐUSTU ALDAR
Raggi Bjarna · Hera Björk · Bjarni Baldvins
AUKASÝNING 15. OKT. KL. 20.00
Heiðursgestur söngkonan
Hjördís Geirsdóttir
Björn Thoroddsen og hljómsveit: Vignir Þór Stefánsson píanó
Jón Rafnsson bassi – Jóhann Hjörleifsson trommur
UPPSELT Í KVÖLD
Miðasala á
salurinn.is og
midi.is
Þegar búvörur eru 45 prósent af matar-
körfu heimilanna er ekki nema eðlilegt
að við beinum sjónum okkar í þessa átt.
MARGRÉT KRISTMANNSDÓTTIR
FORMAÐUR SAMTAKA VERSLUNAR OG ÞJÓNUSTU
Ert þú ánægð(ur) með lestrar-
kennslu grunnskólabarna?
Já 32,6%
Nei 67,4%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Eiga lögreglumenn að fá
verkfallsrétt til að fylgja eftir
kröfum í kjarasamningum?
Segðu þína skoðun á visir.is
SAMGÖNGUR Birgir Jónsson, nýhættur forstjóri
Iceland Express, birti í gær hluta tölvupóst-
samskipta sinna við eiganda félagins, Pálma
Haraldsson. Af þessum töluskeytum má ráða
að Pálmi var ekki andvígur því að ráða konu
Birgis í starf yfirmanns hjá Iceland Express.
Birgir segist í yfirlýsingu í gær hafa verið
knúinn til að birta innihald samskipta sinna
við Pálma eftir að stjórn félagsins hafi „lekið
upplýsingum í fréttastofu Ríkisútvarpsins“
um að Birgir hafi viljað ráða sambýliskonu
sína og aðra ættingja til starfa.
Í tilkynningu sem stjórn félagsins sendi frá
sér seint á fimmtudagskvöld segir að Birgir
hafi komið fram með hugmyndir sem falið
hafi í sér að „hreinsa út hluta af yfirstjórn
félagsins, og ráða í hans stað
fólk sér nákomið“, en á það
hafi stjórn félagsins ekki
fallist. Þar segir enn fremur
að samið hafi verið um að
Birgir sinnti rekstri félags-
ins eins og almennt gildi
um forstjóra. „Í samkomu-
lagi við Birgi fólst ekki að
honum yrði afhent eigenda-
vald yfir félaginu.“
Að sögn Birgis er með þessu ráðist á hann
með „ómaklegum, ódýrum og ósönnum hætti“.
Hann þurfi því að „verja heiður sinn og sinna“.
Í tövupósti sem Birgir segir vera frá Pálma
lýsir eigandi Iceland Express sig samþykkan
ráðningu sambýliskonu Birgis. Forstjórinn
fyrrverandi bætir svo við að Pálmi hafi þess
utan sagt á stjórnarfundi félagsins að það
fyndist „ekki frambærilegri kona á landinu til
að gegna þessar stöðu“.
Birgir kveðst ekki vera hræddur við Pálma
og hans fólk og hafa langa reynslu af því að
starfa með þeim. „Því eru öll atriðin sem við
deilum um til með skriflegu samþykki hans og
ég mun ekki hika við að verja hendur mínar
og birta þau ef það reynist nauðsynlegt,“ segir
í yfirlýsingu hans.
Skarphéðinn Berg Steinarsson hefur verið
ráðinn forstjóri Iceland Express tímabundið.
Hann á sæti í stjórn félagsins ásamt Pálma
Haraldssyni og Sigurði G. Guðjónssyni. - gar, bj
Nýráðinn forstjóri Iceland Express hættir vegna ágreinings við eiganda félagsins eftir tíu daga á forstjórastóli:
Deila um ráðningu sambýliskonu Birgis
BIRGIR JÓNSSON
ATVINNUMÁL Yfir þrjátíu starfs-
menn hafa hætt hjá Orkuveitu
Reykjavíkur frá því í júní. Fimm
var sagt upp á fimmtudag. Starfs-
lokasamningar hafa verið gerðir
við 25 eldri starfsmenn.
Að því er segir í tilkynningu
frá OR er verið að fækka starfs-
fólki í hagræðingarskyni. „Skipu-
lagið er einfaldað og stjórnendum
fækkað. Þá er lögð af starfsemi
sem ekki er þörf fyrir með minnk-
andi umsvifum. Átta störf eru lögð
niður í breytingunum, á skrifstofu
og verkstæðum,“ segir OR.
Þá þiggja 25 starfsmenn tilboð
um flýtt starfslok. Tilboðið er gert
67 starfsmönnum sem verða 63 ára
eða eldri á árinu 2011. Það gildir
fyrir þennan hóp út árið 2014 en
ekki þá sem verða 63 ára eftir
næstu áramót.
Eigendur OR veita fyrir tækinu
víkjandi lán á árunum 2011
og 2013. Það er hluti aðgerða-
áætlunar sem í heild er upp á lið-
lega 50 milljarða króna á fram til
2016. Um 30 milljarðar af því eiga
að koma úr rekstri OR með hag-
ræðingu og eignasölu.
Breytingarnar á skipulagi OR
beinast að veitustarfsemi fyrir-
tækisins. Um áramótin verður OR
síðan skipt í tvö félög um næstu
áramót í samræmi við lög sem þá
taka gildi. Rekstur virkjana og
sala á rafmagni verður þá í sjálf-
stæðu félagi. - gar
OR hagræðir með starfslokasamningum við eldri starfsmenn og uppsögnum:
Eldri en 62 ára hætta og fá árslaun
ORKUVEITA REYKJAVÍKUR Vinna á bug
á fjárhagsvanda Orkuveitunnar með
aðgerðaáætlun út árið 2016.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
NEYTENDUR Margrét Kristmanns-
dóttir, formaður Samtaka verslun-
ar og þjónustu, harmar að bænd-
um finnist samtökin ráðast að sér
þegar þau hvetji til þess að inn-
flutningur verði leyfður á svína-
og kjúklingakjöti.
Samtök verslunar og þjónustu
hafa síðustu vikur og mánuði
gagnrýnt þær miklu hömlur sem
eru á innflutningi á landbúnaðar-
vörum. Þá hafa samtökin gagn-
rýnt verðhækkanir sem orðið hafa
á svína- og kjúklingakjöti síðustu
mánuði.
„Verslunin í þessu landi stendur
mjög illa og það sem okkur geng-
ur til er að fjölga þeim krónum
sem fjölskyldur eiga eftir í hverj-
um mánuði þegar reikningar hafa
verið greiddir. Þess vegna höfum
við talað gegn skattahækkunum
og fyrir lægra matvælaverði. Og
þegar búvörur eru 45 prósent af
matarkörfu heimilanna er ekki
nema eðlilegt að við beinum sjón-
um okkar í þessa átt,“ segir Mar-
grét og bætir við að verslanir gætu
flutt svína- og kjúklingakjöt inn til
landsins og selt á talsvert lægra
verði en nú er gert ef aðeins þeim
yrði leyft það.
Bændasamtökin hafa sagt verð-
hækkanirnar undanfarið skýrast
af auknum launakostnaði vegna
nýgerðra kjarasamninga og hækk-
unum á verði aðfanga. Þá hafa þau
bent á að sé horft lengra aftur í
tímann en síðustu 12 mánuði komi
í ljós að búvörur hafi hækkað tals-
vert minna í verði en aðrar neyslu-
vörur.
Margrét segir það sennilega
rétt að kjarasamningarnir skýri
hluta af verðhækkunum en bendir
á að gengi krónunnar hafi heldur
styrkst á tímabilinu. Því geti þessi
tvö atriði ekki skýrt eins miklar
verðhækkanir og hafi orðið.
Margrét segir að lokum mál-
flutning samtakanna alls ekki vera
Vilja fjölga auka-
krónum fjölskyldna
Formaður Samtaka verslunar og þjónustu segir mikilvægt að standa vörð um
hefðbundinn landbúnað. Það sé hins vegar óeðlilegt að ríkisvaldið standi í vegi
fyrir innflutningi á svína- og kjúklingakjöti sem sé of dýrt í verslunum.
Verð á svína- og fuglakjöti hefur hækkað töluvert síðustu mánuði. Frá 2008 hefur
almennt verðlag hins vegar hækkað meira.
140
130
120
110
100
90
80
70
jan.
‘08
jan.
‘11
■ Vísitala neysluverðs
■ Svínakjöt
■ Fuglakjöt
jan.
‘09
jan.
‘10
Vísitala hefur hækkað meira en kjötið
Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) saka Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, um að koma í veg fyrir svo gott sem alla erlenda
samkeppni við íslenskar landbúnaðarvörur og þar með þverbrjóta gildandi
alþjóðasamninga.
„Sjálf teljum við sjálfsagt að flytja út landbúnaðarvörur, en lokum á sama
tíma öllum dyrum fyrir innflutningi sem gæti lækkað verð til neytenda. Þetta
er eitthvað sem verslun á Íslandi á ekki að sætta sig við,“ segir í frétt á vef
samtakanna.
Þar segir að sjálfsagt sé að gagnrýna kerfi sem hafi valdið því að íslenskir
neytendur búi við eitt hæsta landbúnaðarverð í heimi á sama tíma og
bændur séu láglaunastétt í samanburði við flestar aðrar atvinnugreinar.
Saka ráðherra um að brjóta samninga
KJÖRKASSINN