Fréttablaðið - 01.10.2011, Blaðsíða 90
1. október 2011 LAUGARDAGUR58
Ostakökubæklingurinn er kominn aftur. Í honum eru ýmsar
skemmtilegar hugmyndir að því hvernig hægt er að gera MS
ostakökurnar ómótstæðilegar.
Hann fylgir öllum ostakökum meðan birgðir endast.
Einnig er hægt að nálgast bæklinginn á tölvutæku formi á ms.is.
... hvert er þitt eftirlæti?
Áttu hindber?
Af hverju að flækja hlutina?
Það sem þú þarft1 Hindberjaostakaka frá MS Hindber
Hindberjasósa
Hindberjasósa
100 g sykur
2 dl vatn
100 g hindber fersk eða frosin1 tsk sítrónusafi
Allt sett í pott, soðið saman og kælt.
Góð ráð
Til að flýta enn meira fyrir er hægt að kaupa tilbúna hindberja- eða jarðarberjasósu.
Hindberjaostakaka með hindberjasósu og hindberjum
1
1
-0
5
6
8
/
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA...nóg til,
og meira
frammi
www.ms.is
Gerðu
meira
úr
kökunu
m
Bíó ★★★★
Eldfjall
Leikstjórn: Rúnar Rúnarsson
Aðalhlutverk: Theodór Júlíusson, Margrét
Helga Jóhannsdóttir, Þorsteinn Bachmann,
Elma Lísa Gunnarsdóttir
Eldfjall hefst á mögnuðum svipmyndum
Ósvalds Knudsen frá eldgosinu í Heimaey
1973. Atburðarásin færist til nútímans og
við fylgjumst með Hannesi, geðstirðum
húsverði frá Vestmannaeyjum, sem er að
fara á eftirlaun. Hann er leiðinlegur við
konuna sína og ónærgætinn við brottflutt
börnin sín. Hann er eins konar mennskt
eldfjall, ófrýnilegur, ógnvekjandi og gæti
gosið hvenær sem er.
Þegar konan hans veikist tekur Hannes
þá ákvörðun að sinna henni heima fyrir.
Hún er rúmföst, ófær um að tjá sig, og
Hannes þarf að baða hana og mata. Líkt
og hrörlegu trilluna í garðinum sem hann
reynir að laga, telur hann sjálfum sér trú
um að hann geti lagað eiginkonuna.
Eldfjall er dramatísk og á köflum erfið.
Það er sársaukafullt að fylgjast með van-
mætti manns sem vill laga það sem brotið
er en getur það ekki. Öll höfum við verið í
sporum Hannesar, eða í það minnsta fylgst
með af hliðarlínunni.
Stjörnur myndarinnar eru aðalleikar-
arnir tveir, Theodór Júlíusson og Margrét
Helga Jóhannsdóttir. Senur þeirra saman
eru gífurlega sterkar, sem og einleikur
Theodórs í öðrum atriðum. Hins vegar
fannst mér vanta örlítið meira púður í
persónur Þorsteins Bachmann og Elmu
Lísu. Þau léku hlutverk sín vel en mér
fannst eins og persónurnar hefðu þurft
meira pláss og eilítið meiri dýpt.
Myndatakan er stórglæsileg og af gamla
skólanum. Tónlistin er falleg og sparlega
notuð. Í heildina er myndin áferðar fögur
og fagmannlega gerð. Rúnar má vera
ánægður með Eldfjallið sitt.
Haukur Viðar Alfreðsson
Niðurstaða: Falleg og íburðarmikil mynd en
erfið, enda um erfiðan mann.
Opinberun Hannesar
Brjálaður aðdáandi söngkon-
unnar Avril Lavigne hefur verið
dæmdur í fangelsi fyrir að lemja
og stinga móður sína til bana
eftir að hún neitaði að aðstoða
hann við að kaupa miða á tónleika
með Lavigne. Aðdáandinn, hinn
39 ára Robert Lyons, á yfir höfði
sér að minnsta kosti tuttugu ára
fangelsi fyrir verknaðinn. Lyons
hefur átt við andlega örðugleika
að stríða síðan hann var ungling-
ur. Hann trylltist eftir að móðir
hans neitaði að leyfa honum að
hringja í vin sinn svo hann gæti
keypt fyrir hann miða á tónleika
Lavigne.
Drap móður
vegna miða
LAVIGNE Aðdáandinn brjálaðist þegar
hann fékk ekki miða á Lavigne.
Chris Martin, söngvari Coldplay,
óskar þess að hann hefði samið
lögin Empire State of Mind eftir
rapparann Jay-Z og Someone
Like You eftir söngkonuna Adele.
Þegar Jay-Z spilaði lagið fyrir
hann fylltist Martin öfund. Þrátt
fyrir það segir hann vel samin
lög veita sér mikinn innblástur.
„Þegar ég hlusta á Empire State
of Mind, Use Somebody með
Kings of Leon, Someone Like You
með Adele eða Bad Romance með
Lady Gaga hugsa ég með mér:
„Rosalega er þetta flott“,“ sagði
Martin. „Ég verð að reyna að búa
til eitthvað betra. Þetta er stans-
laus samkeppni.“
Hrífst af
Jay-Z og
Adele
COLDPLAY Chris Martin öfundaði Jay-Z
mikið af laginu Empire State of Mind.