Fréttablaðið - 01.10.2011, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 1. október 2011 13
Vinnum saman
gegn launamun
kynjanna
www.pwc.com/is
Samkvæmt jafnréttislögum ber að greiða körlum og
konum jöfn laun fyrir jafn verðmæt störf.
Jafnlaunaúttekt PwC gefur upplýsingar um
raunverulegan launamun kynjanna hjá þínu fyrirtæki.
Eftirtalin fyrirtæki
hafa fengið
jafnlaunamerki PwC
PwC á Íslandi er framsækið og taust fyrirtæki sem veitir sérfræðiþjónustu á sviði fyrirtækja- skatta- og lögfræðiráðgjafar, endurskoðunar og reikningsskila. Fyrirtækið er íslenskt og
er hluti af alþjóðlegu neti sjálfstæðra fyrirtækja sem skilgreinir sig sem þekkingarfyrirtæki sem aðstoðar viðskiptavini sína við að auka verðmæti, stjórna áhættu og bæta árangur
sinn.
Hafðu samband við Fyrirtækjaráðgjöf PwC | Skógarhlíð 12 | 105 Reykjavík | S. 550 5300
RÚSSLAND, AP „Pútín er tvímælalaust mesti
stjórnmálaskörungur landsins og vinsældir
hans mælast meiri,“ sagði Dmitrí Medvedev
Rússlandsforseti í sjónvarpsviðtali, þar sem
hann útskýrði þá ákvörðun sína að bjóða sig
ekki fram til forseta næsta kjörtímabil.
Þeir Vladimír Pútín forsætisráðherra komu
sér saman um að Pútín byði sig fram næst, en
Medvedev yrði forsætisráðherra hans.
Í viðtalinu sagði Medvedev að skoðanir
þeirra og markmið færu að mestu saman, en
sagði ekkert hæft í því að Pútín hefði bara
notað Medvedev til að „passa fyrir sig“ for-
setaembættið í eitt kjörtímabil. Á endanum
væru það kjósendur sem réðu.
„Úr því að afstaða okkar er svona svipuð,
ættum við þá að vera að keppa hvor við
annan?“ spurði Medvedev og sagðist engan
veginn hafa verið að blekkja kjósendur í fyrri
yfirlýsingum, þegar hann vildi ekki útiloka
það að bjóða sig fram aftur.
Pútín var forseti Rússlands í tvö kjörtíma-
bil áður en Medvedev tók við embættinu, en
samkvæmt stjórnarskrá má enginn sitja leng-
ur en tvö kjörtímabil samfleytt í embætti for-
seta. Ekkert bannar Pútín hins vegar að sækj-
ast eftir embættinu á ný eftir að hafa setið hjá
í eitt kjörtímabil. - gb
Medvedev útskýrir hvers vegna hann vill að Pútín verði aftur forseti:
Segir Pútín mesta stjórnmálaskörung landsins
DMITRÍ MEDVEDEV Segir ástæðulaust að keppa við
Pútín, þar sem skoðanir þeirra eru svo líkar.
NORDICPHOTOS/AFP
DÓMSMÁL Lögreglustjórinn á
Suðurnesjum hefur ákært mann
fyrir að fótbrjóta annan mann
með fjórhjóli.
Manninum, sem er á fertugs-
aldri, er gefið að sök að hafa á
síðasta ári ekið fjórhjóli á bíla-
stæði í Grindavík án nægilegrar
varúðar. Maðurinn missti stjórn
á hjólinu með þeim afleiðingum
að það prjónaði með hann. Við
þetta skall annað framhjól fjór-
hjólsins á hægra fæti manns sem
var staddur á bílastæðinu og fót-
brotnaði sá við höggið. - jss
Missti stjórn á fjórhjóli:
Fótbraut mann
á bílastæði
VIÐSKIPTI Verksmiðja Actavis á
Möltu hefur sett rúmlega þrjátíu
milljón töflur af samheitalyfinu
Olanzapine á markað í Evrópu.
Einkaleyfi lyfsins Zyprexa frá Eli
Lylly við geðklofa og geðhvarfa-
sýki féllu úr gildi í vikunni.
Þetta er stærsta markaðssetn-
ing Actavis. Lyfið er þróað af
Actavis í Hafnarfirði en framleitt
á Möltu.
Samkvæmt upplýsingum frá
Actavis er markaðssetning lyfs-
ins Olanzapine frábrugðin sölu
annarra lyfja og nokkuð flóknari
að því leyti að lyfið getur farið
til nokkurra landa í mismunandi
styrkleika og nokkrum pakka-
stærðum. - jab
Risamarkaðssetning Actavis:
Þrjátíu milljón
töflur á markað
TÖFLUR Á FÆRIBANDI Markaðssetning
Actavis á nýju samheitalyfi þykir nokkuð
flóknari en önnur.
ATVINNA Páll Magnússon, bæjar-
ritari Kópavogsbæjar, hefur
verið ráðinn forstjóri Bankasýslu
ríkisins. Hann tekur við starfinu
af Elínu Jónsdóttur, sem gegnt
hefur starfi
forstjóra frá
því að stofn-
unin hóf störf
í ársbyrjun
2010. Páll hefur
meðal annars
gegnt stöðu
bæjar ritara hjá
Kópavogsbæ og
hefur jafnframt
verið staðgengill bæjarstjóra.
Bankasýsla ríkisins er ríkis-
stofnun með sjálfstæða stjórn
sem heyrir undir fjármálaráð-
herra. Stofnunin fer með eignar-
hluti ríkisins í fjármálastofnun-
um. - sv
Nýr forstjóri Bankasýslunnar:
Páll Magnússon
ráðinn forstjóri
PÁLL MAGNÚSSON
Átti 168 kannabisplöntur
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
dæmt mann á fimmtugsaldri í fimm
mánaða fangelsi, skilorðsbundið í
tvö ár, fyrir að hafa í vörslu sinni 168
kannabisplöntur, sem hann ræktaði
og tæplega 286 grömm af kannabis-
laufum.
Stúlka stal úr Lyfju
Stúlka um tvítugt hefur verið dæmd
fyrir þjófnaði í átta mánaða skilorðs-
bundið fangelsi. Hún stal snyrtivörum
í Lyfju í Kópavogi fyrir tæplega 23
þúsund krónur. Þá braust hún inn í
íbúð í Reykjavík og stal þaðan ýmsum
tækjum.
DÓMSMÁL