Fréttablaðið - 01.10.2011, Blaðsíða 70
1. október 2011 LAUGARDAGUR38
TIL LEIGU SMÁRATORG 3
TURNINN
GLÆSILEG SKRIFSTOFUBYGGING Í MIÐJU HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS
Real Estate Group
Smáratorgi 3 | 201 Kópavogur | www.smi.is
Höfum til leigu skrifstofuhúsnæði á 12. hæð, 417 m2 að stærð.
Taktu þátt í blómlegum rekstri í miðju höfuðborgarsvæðisins í glæsilegu umhverfi á einu mest vaxandi verslunar-
og þjónustusvæði landsins.
Smáratorg 3 er hæsta bygging landsins, vel staðsett í miðju höfuðborgarsvæðisins á einu sterkasta þjónustu-
svæði landsins, mitt á milli tveggja af sterkustu verslunarmiðstöðvum landsins Smáralindar og Smáratorgs.
Gott aðgengi og fjöldi bílastæða
Glæsileg móttaka er í byggingunni með símsvörun og móttöku gesta. Á lóðinni er fjöldi bílastæða með góðu
aðgengi til og frá helstu stofnbrautum.
Allar nánari upplýsingar veitir Davíð Freyr Albertsson í síma: 897 2822 eða netfang: david@smi.is
eða Arnar Hallsson í síma: 892 5858 eða netfang: arnar@smi.is.
Þ
ær eru ekki margar
vefsíðurnar sem hafa
jafn traustan áskrif-
endahóp og Facebo-
ok. Vefurinn hefur
stækkað gríðarlega
síðustu ár og tekur stöðugum
breytingum. Facebook gengur nú
í gegnum róttækustu breytingar
frá upphafi.
Mark Zuckerberg, fram-
kvæmdastjóri Facebook, kynnti
breytingar á útliti og notkunar-
möguleikum vefsamfélagsins.
Bráðlega munu notendur geta
deilt nánast öllum atriðum úr lífi
sínu með vinum sínum á einfald-
ari hátt. Zuckerberg kynnti líka
nýjung: Tímalínu þar sem notend-
ur geta skoðað atriði úr lífi vina
sinna langt aftur í tímann, jafn-
vel löngu áður en Face book kom
til sögunnar.
Fyrirbærið hefur verið forrit-
að til að taka saman helstu atrið-
in úr lífi notenda og raða þeim í
tímaröð. Fyrsta fréttin er auðvi-
tað hvenær notandinn er fædd-
ur. Hann getur í framhaldi skráð
helstu tímamót í lífi sínu og dag-
sett. Hafi notandi átt aðgang að
Facebook fyrir þessar breyting-
ar tengist allt sem hann hefur sett
inn og allar myndir sem hann er
merktur á við þessa tímalínu.
Allt það helsta á einum stað
Einnig hefur fréttaveitunni verið
breytt örlítið og nýjum hlutum
bætt við. Nú er auðveldara að rit-
stýra því sem fréttaveitan sýnir.
Allar ómerkilegri tilkynningar
um hvort einhver hafi gert athuga-
semd við færslu vinar, eða hvort
einhverjum hafi líkað myndir,
er ekki lengur að finna í frétta-
veitunni sjálfri. Í staðinn kynnti
Facebook sérstakan fréttaritil sem
uppfærir sjálfkrafa allar tilkynn-
ingar.
Þá býður uppfært Facebook upp
á að setja vini í sérstaka vinalista.
Vinalistarnir virka ekki ósvipað
þeim sem Google plús býður not-
endum sínum upp á. Með listun-
um getur notandinn valið hvort
hann sjái uppfærslur frá einhverj-
um sérstökum hópi eða einfald-
lega helstu fréttir úr sínu nánasta
samfélagi.
Saga þín frá fæðingu á tímalínunni
Tímalínan hefur enn ekki verið
opnuð formlega en netverjar
gera ráð fyrir að það verði strax
á fyrstu vikum októbermánaðar.
Áhugasamir notendur geta nálgast
þróunarútgáfu af tíma línunni með
því að festa viðbót við aðganginn
sinn. Þannig geta allir tekið þátt í
að fullkomna tíma línuna.
Notendur hafa enn vald yfir
því hverju þeir deila með öðrum
og hverju ekki. Tímalínunni er
hægt að ritstýra á einfaldan hátt
og ákveða að sýna ekki hallæris-
legar myndir frá löngu liðnum
árshátíðum eða tilkynningar um
sambandsslit við fyrrverandi.
Þegar tímalínan verður opnuð
opinberlega verður hún ekki sjá-
anleg vinum notenda fyrr en not-
andinn er búinn að taka ákvörðun
um að birta hana. Hægt verður að
stilla tímalínuna að vild, velja og
hafna færslum til að sýna. Notand-
inn birtir síðan tímalínuna þegar
hún er klár, brenni hann ekki inni
á tíma. Tímalínan birtist nefni-
lega sjálfkrafa eftir ákveðið lang-
an tíma frá virkjun hennar.
Breytingar á viðmóti Face book
hafa verið nokkuð tíðar síðan sam-
félagið fór af stað. Þær hafa iðu-
lega farið í taugarnar á notend-
um í fyrstu og tala margir um
að „Facebook hafi bara verið fín
eins og hún var“. Eflaust hafa því
margir orðið örlítið pirraðir þegar
nýju breytingarnar voru kynntar.
Það er hins vegar mat greinarhöf-
undar að engum vandkvæðum sé
bundið að venjast þessu nýja við-
móti og þess ber að geta að breyt-
ingar á Face book hafa hingað til
virst vel ígrundaðar áður en þeim
hefur verið hleypt af stokkunum.
Einfaldleiki í fyrirrúmi
Þegar Mark Zuckerberg kynnti
þessar nýju breytingar lagði hann
áherslu á að það ætti að vera ein-
falt fyrir notendur að deila lífi
sínu með vinum sínum í gegnum
vefinn.
Einfaldleikinn er í fyrirrúmi
hvað viðbætur við Facebook varð-
ar. Með viðbótum er átt við leiki,
tónlistarforrit, kvikmynda forrit
og nánast allt annað sem þér dett-
ur í hug. Nú hefur viðbótunum
verið breytt þannig að þær spyrja
notandann aðeins einu sinni hvort
hann vilji leyfa viðbótinni að deila
aðgerðum innan hennar.
Annað sem á að einfalda notkun-
ina er að nú geta notendur valið úr
lista hvers konar færslu þeir vilja
gera. Hafir þú til dæmis trúlof-
að þig er nú sérstök aðgerð til að
tilkynna það. Að sama skapi ef þú
fótbrýtur þig, útskrifast úr skóla
eða lærir nýtt tungumál.
Nýtt hlutverk vefsins
Markmiðið með þessum nýjustu
breytingum er að bjóða notendum
að deila lífi sínu með vinum og
kunningjum á skipulagðari hátt en
áður. Nú er kominn hvati fyrir not-
endur síðunnar að gera grein fyrir
lífi sínu frá því áður en vefurinn
fór af stað. Facebook er að skapa
sér nýtt hlutverk sem gagnasafn
um fólk og fortíð þess. Facebook
er ekki lengur bara samskipta-
vefur heldur safn upplýsinga um
fólk.
Facebook gæti því búið yfir upp-
lýsingum um æviskeið 800 millj-
óna manna um heim allan innan
skamms tíma.
Facebook fær
nýtt hlutverk
Vefsamfélagið Facebook hefur oft gengið í gegn-
um breytingar á notendaviðmóti en aldrei eins
og nú. Birgir Þór Harðarson kynnir hér róttæk-
ustu breytingar á Facebook sem samskipta-
vefurinn hefur gengið í gegnum frá upphafi.
Fréttaveita
Hér sér notandinn allt það helsta
sem vinir hans eru að hugsa. Allar
vinsælustu færslurnar birtast hér
svo hægt sé að taka taka þátt með
í heitum umræðum. Fréttaveitan
hefur verið hönnuð til að finna sjálf-
krafa mynstur í áhugasviði vina og
tilkynna notendum.
Fréttaveitunni ritstýrt
Blái flipinn sem birtist í vinstra horni
hverrar færslur í fréttaveitunni gerir
notendum kleift að velja og hafna
því sem birtist í fréttaveitunni. Viljir
þú til dæmis sjá allar myndir um
leið og þeim er deilt smellir þú á
flipann og Facebook sýnir þér fleiri
myndir um leið og þær berast.
Flýtileiðir og síur
Vinstra megin við fréttaveituna
er hægt að hoppa í pósthólfið,
velja hvort skoðaðir eru sérhópar
í fréttaveitunni eða tekið þátt í
hópum með öðrum notendum.
Tímalínan skoðuð
Sé smellt á nafn notanda í bláa
borðanum efst opnast tímalínan
eins og hún birtist öðrum not-
endum. Hingað er farið ef ritstýra á
tímalínunni.
Fréttaritill
Þetta er nýjung sem birtist hægra
megin við fréttaveituna eða efst í
spjalllistanum. Facebook uppfærir
sjálfkrafa allar ómerkilegri fregnir
hér, athugasemdir og „like“.
NÝTT NOTENDAVIÐMÓT Á FACEBOOK
KYNNIR BREYTINGAR Mark Zuckerberg kynnti nýjungar á Facebook. Meðal þeirra er tímalínan sem safnar upplýsingum um líf
notenda og raðar í tímaröð, allt frá fæðingu til dagsins í dag. Markmiðið er að endurspegla líf notenda á sjónrænan hátt, með
flennistórum myndum og tilkynningum um athafnir á vefnum. NORDICPHOTOS/AFP
Tímalínan á Facebook er nokkuð viðamikil og það gæti reynst nokkuð
strembið að fara í gegnum allar færslur langt aftur í tímann og velja úr
það sem vinir manns fá að sjá. Það getur samt verið skemmtilegt að fara í
gegnum gamlar færslur sem kannski voru gleymdar og grafnar.
Tímalínan er forrituð þannig að hún skiptist upp í tímabil. Nýliðnum
tímabilum er skipt í mánuði en eldri tímabilum í ár. Eins og gefur að skilja
safnast mikið efni í hverjum mánuði hjá virkum Facebook-notanda, hvað
þá á heilu ári. Facebook hjálpar því til við að velja atburði til að sýna með
því að safna saman vinsælustu hlutunum í því tímabili sem unnið er með.
Þannig eru afmælisdagar fólks meðal þeirra atburða sem líklegir eru í
úrvalið sem Facebook tekur saman. Vinamargur notandi hefur jafnvel fengið
yfir 100 krot á vegginn á afmælisdeginum.
Það er einfalt að gera færslur veigameiri á tímalínunni. Þegar færsla hefur
verið fundin er einfaldlega smellt á stjörnuna sem birtist þegar músin er
færð yfir. Þá stækkar glugginn yfir dálkana tvo. Einfalt er að minnka hlut
færslnanna: Smellið bara aftur á stjörnuna aftur.
■ HVERNIG RITSTÝRIR MAÐUR TÍMALÍNUNNI?