Fréttablaðið - 01.10.2011, Qupperneq 12
1. október 2011 LAUGARDAGUR12
BÆNDA
-
MARKA
ÐUR
Í DAG L
AUGAR
DAG
KL. 11-16
Bændamarkaðurinn
er í Krónunni
Lindum / Bíldshöfð
a / Granda / Mosfel
lsbæ / Selfossi / Ak
ranesi
N k uppskeraslený s í
U kriftirpps
ningasteSvei mt
ært verðFráb
ukkaðSma – fyrst og fre
mst
ódýr!
VELJUM
ÍSLENS T!K⁄
FRÉTTAVIÐTAL: Jonas Gahr Störe utanríkisráðherra Noregs
Utanríkisráðherra Noregs
segir að umræða um við-
kvæm málefni tengd
hryðjuverkunum í sumar sé
varla byrjuð enn í Noregi.
Áleitnar spurningar, eins
og til dæmis um muninn á
orðum og athöfnum, verði
þó að draga fram í dagsljós-
ið og ræða í anda lýðræðis-
ins.
Jonas Gahr Störe, utanríkisráð-
herra Noregs, segir að Norðmenn
verði lengi að ná sér eftir harmleik-
inn í sumar þegar hryðjuverk ein-
staklings kostuðu nærri 70 manns
lífið, flest ungmenni úr ungliða-
hreyfingu Verkamannaflokksins.
„Margt af þessu unga fólki þarf
stuðning áfram, sumir eru enn á
sjúkrahúsi og þurfa endurhæfingu.
Það sem við þurfum að gera er að
fylgja þessu eftir sem ein fjölskylda
og veita bæði þeim sem særðust
og fjölskyldum þeirra allan þann
stuðning sem við getum.“
Fyrir utan þann mannlega
harmleik, sem árásirnar í Ósló og
á Úteyju ollu, þá er fjárhagstjónið
nú metið á ríflega milljarð norskra
króna, en sú fjárhæð samsvarar 20
milljörðum íslenskra króna.
Hryðjuverkamaðurinn beindi
árásum sínum sérstaklega að
Verkamannaflokknum, bæði ráðu-
neytisbyggingu í Ósló og útilegu
ungliðahreyfingar flokksins í
Úteyju.
„Við í Verkamannaflokknum
gerum okkur alveg grein fyrir því
að þetta var árás á okkur, enda fór
árásarmaðurinn ekkert leynt með
það. Þetta eru því auðvitað skelfi-
leg skilaboð, en um leið gerði þetta
okkur mjög ákveðin í því að gefa
ekkert eftir með þau gildi, sem við
höfum í hávegum, og það hvernig
við nálgumst lýðræðið,“ sagði Störe.
Störe segir að umræðan í Noregi
hafi farið hægt af stað eftir að þessi
voðaverk voru framin fyrir rúmum
tveimur mánuðum.
„Fólk hefur farið varlega og gætt
sín á að snerta ekki á mjög við-
kvæmum málefnum. En þetta held
ég að muni breytast. Við munum
fá umræður um það hvernig þessi
maður gat þróað áform af þessu tagi
og hvar mörkin liggja milli orða og
athafna, því margir hafa sömu skoð-
anir og þessi maður án þess þó að
fremja hryðjuverk. Ég held að við
eigum að fá þessi mál fram í dags-
ljósið í anda lýðræðis og ræða þau.“
Störe hefur undanfarna daga
verið í opinberri heimsókn hér á
landi. Hann segir heimsóknina hafa
nýst vel, hann hafi komið bæði til
Akureyrar og Siglufjarðar, hrifist
af náttúrufegurðinni og áttað sig
betur á sameiginlegri sögu land-
anna tveggja.
„Það er alltaf eitthvað sem kemur
manni á óvart á Íslandi. En það er
gott,“ segir Störe.
Eitt af meginmarkmiðum heim-
sóknarinnar hingað var að styrkja
samstarf Íslands og Noregs um
málefni norðurslóða. Meðal annars
var samþykkt að stofna prófessors-
stöðu um málefni norðurslóða við
Háskólann á Akureyri.
„Ég tel að þekkingin sé það sem
við þurfum að leggja mesta áherslu
á í þessum málum,“ segir Störe. Við
hlökkum mikið til samstarfs við
Ísland á þessu sviði og það hefur
orðið að veruleika núna.“
Eins og Ísland er Noregur aðili
að Evrópska efnahagssvæðinu og
hefur engin áform um að sækja um
aðild að Evrópusambandinu.
Störe segist samt ekki sjá fyrir
sér að samningurinn um Evrópska
efnahagssvæðið verði endurskoð-
aður á næstunni, en þó hefur norsk
nefnd í nærri tvö ár unnið að viða-
mikilli úttekt á áhrifum EES-samn-
ingsins á Noreg.
„Ég mun fyrir árslok fá í hend-
urnar yfirgripsmikla skýrslu frá
nefndinni. Það verður yfirgrips-
mikil skýrsla sem ég held að gefi
okkur mikilvægar upplýsingar um
það hvaða þýðingu EES hefur í dag
fyrir Noreg. Við fáum miklu betri
mynd að því hvernig Noregur er
samtengdur Evrópu í gegnum EES,
og svo getum við fengið einhverj-
ar hugmyndir um það hvernig við
getum bætt samstarfið á einhverj-
um sviðum.
Hann segir enga knýjandi þörf
til þess að gera breytingar á sam-
starfi Noregs við ESB eins og það
gengur fyrir sig í gegnum EES-
samninginn.
„En ein ástæðan fyrir því að við
fengum þessa nefnd til að fara út
í þessa vinnu er að hún komi með
tillögur.“
Norðmenn verða lengi að ná sér
STÖRE OG ÖSSUR Utanríkisráðherrar Noregs og Íslands á Akureyri í vikunni.
MYND/UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir það táknrænt að prófessors-
staðan, sem helguð verður norðurslóðarannsóknum, verði í Háskólanum á
Akureyri, því þar er helsta miðstöð norðurslóðarannsókna hér á landi.
„Við undirstrikuðum sérstaklega mikilvægi Akureyrar með því að þar
hófst hin opinbera heimsókn hans. Þar tók ég á móti honum og þar verður
prófessorsstaðan, kennd við norska landkönnuðinn Friðþjóf Nansen.“
Þessi staða verður einnig tengd Háskóla norðurslóða, University of the
Arctic, sem starfar í öllum Norðurlandaríkjunum auk Rússlands, Kanada og
Bandaríkjanna.
Ráðherrarnir samþykktu einnig að styrkja Íslendinga til vísindasamstarfs á
Svalbarða, auk þess sem settur verður upp sjóður til að styrkja undirbúning
í þátttöku Íslendinga í ýmsum rannsóknum á norðurslóðum.
„Það er alveg ljóst að kastljós heimsins er að beinast að norðurslóðum.
Þær verða gríðarlega mikilvægar á næstu áratugum bæði vegna þess að
nýjar siglingaleiðir munu opnast en líka vegna þess að bráðnun íssins mun
opna svæði þar sem vitað er að miklar auðlindir er að finna, bæði olíu og
gas. Við vorum hins vegar algerlega sammála um að ekki verði hægt að
ráðast í vinnslu þeirra nema hafa ströngustu varúðarreglur og móðir náttúra
verði á öllum stigum látin njóta vafans.“
Norðurslóðir verða í kastljósi heimsins
Guðsteinn
Bjarnason
gudsteinn@frettabladid.is