Fréttablaðið - 01.10.2011, Qupperneq 18
18 1. október 2011 LAUGARDAGUR
Básaskersbryggju | 900 Vestmannaeyjar | Sími 481 2800 | Fax 481 2991 | www.herjolfur.is
Með Herjólfi í vetur milli lands og Eyja
– fjórar ferðir alla daga
Eftir 1. október verður eingöngu hægt að bóka í 2 ferðir milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar fram í tímann á meðan
vetraráætlun gildir. Um er að ræða fyrstu og þriðju ferð. Þær bókanir gilda síðan í Þorlákshöfn ef ekki er siglt í Landeyjahöfn.
Í lok hverrar viku á föstudögum kl. 15:00 er opnað fyrir bókanir í aðrar ferðir vikunnar á eftir ef Landeyjahöfn er áfram opin.
Hægt verður að bóka ferðir fram til 20. desember. Áætlun yfir jól og áramót verður kynnt fljótlega.
Alla daga vikunnar:
Frá Vestmannaeyjum 08:00 11:30 15:30 20:30
Frá Landeyjahöfn 10:00 13:00 19:00 21:30
Ef ekki er hægt að sigla um Landeyjahöfn verður fyrsta ferð þann dag ávallt um Þorlákshöfn og síðan tvær ferðir seinnipartinn
um Landeyjahöfn ellegar ein ferð til Þorlákshafnar ef ófært er um Landeyjahöfn.
Ákvörðun um hvort ferðir nr. 3 og 4 verði farnar í Landeyjahöfn eða ferð nr. 2 í Þorlákshöfn verða teknar fyrir kl. 11 á hverjum
morgni. Farþegar sem eiga bókað verða látnir vita af öllum breytingum með SMS og tölvupósti.
Upplýsingar um bókanir í ferðir Herjólfs fram í tímann og ferðir hans á stórhátíðum er að finna á heimasíðu skipsins: herjolfur.is
Einhverju sinni er illa lá á séra Matthíasi orti hann ljóð, þar
sem hann bar fósturjörð sinni
ófagra söguna. Kvæðið hófst á fyrir-
sögn þessa greinarstúfs.
Það hefir að vísu hent fleiri
að hreyta illyrðum þegar á móti
blæs. Ritstjóri Morgunblaðsins,
sem um áratuga skeið hafði lagt
þjóðinni lífsreglurnar, lýsti þjóð-
félagið ógeðslegt í yfirheyrslum
Rannsóknarnefndar Alþingis. Sem
vonlegt var þótti honum of margt
hafa úrskeiðis gengið við hið mikla
hrun síðla árs 2008, og má ýmislegt
nefna, sem til þess dró.
Við brotthvarf Hal ldórs
Ásgrímssonar frá formennsku í
Framsóknar flokknum uppgötvaði
ritstjórinn og blað hans hver væri
grænstur fyrir þann flokk. Það
væri Finnur Ingólfsson, sem hefði
sýnt og sannað ágæti sitt í stjórn-
málum og öðrum umsvifum í þjóð-
félaginu. Dró Morgunblaðið ekkert
af sér; birti hálfsíðu mynd af kapp-
anum; langt viðtal og jós hann mak-
legu lofi fyrir vasklega framgöngu í
skrautlegu lífshlaupi. Voru þó fæst
frægðarverkin til tínd í blaðinu. Af
nógu var þó að taka.
Finnur hafði reynzt fylginn sér
við einkavæðingu bankanna og kom
sér og sínum þar vel fyrir. Sýndi sig
þar fórnarlund hans í þágu þáver-
andi stjórnarflokka. Myndi sú skip-
an mála fleyta þeim gegnum brim
og boða fjármála um ófyrirsjáan-
lega framtíð. Sjálfur tók Finnur að
sér, ásamt nánum sálufélögum, að
losa Landsbankann við hálfan hlut í
Vátryggingarfélaginu, til „rimelige
priser“, með aðstoð að vísu banka-
ráðs bankans undir forystu Helga
horska og varaformannsins Kjart-
ans Gunnarssonar, og ávaxtaði þann
greiða svo rösklega að hann gaf af
sér 25 milljarða króna innan þriggja
ára.
Þá hafði Finnur forgöngu um að
bjarga 30 milljarða króna óreiðu-
fé hinna framliðnu Samvinnu-
trygginga frá því að verða veðri og
vindum að bráð.
Auðvitað hafði Finnur margt lært
af Halldóri Ásgrímssyni. Um Hall-
dór sagði Illugi Gunnarsson, núver-
andi þingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins, í Fréttablaðinu sunnudaginn 18.
júní 2006: „Halldór er búinn þeim
eiginleikum að þeir sem kynnast
honum skynja að þar fer óvenju
vandaður og heill maður.“
Til dæmis lærði Finnur af Hall-
dóri aðferð í fjármálum sem 111
útrásarvíkingar eru taldir hafa haft
að fyrirmynd, að stofna félag án
allrar ábyrgðar, nota síðan aðstöðu
sína til að afla því félagi ómældra
fjárfúlga og vísa síðan skuld-
heimtumönnum, í flestum tilfellum
bönkum, á eigna- og ábyrgðarlaust
félagið. Þannig stofnaði fyrirtæki
Halldórs á Höfn í Hornafirði félagið
„Mónu“ sem eignuð voru tvö ónýt
skipsræksni. Síðan slógu áhrifa-
menn Landsbankann um milljarða
króna, keyptu svo fiskveiðiheim-
ildir fyrir féð á því verði sem upp
var sett. Mátti svo Landsbankinn
afskrifa milljarða króna þegar þar
að kom að lán féllu í gjalddaga.
Þessa snilld notfærði Finnur
sér, stofnaði félag án ábyrgðar eða
eigna, sló bankann um fé og lét
félagið að því búnu greiða sér arð
kr. 388 milljónir. Svo hirti bankinn
félagið.
Um þessi heilindi og framsækni
í fjármálum var Morgunblaðinu
og ritstjóra þess fullkunnugt, enda
brauzt það um á hæl og hnakka að
Finnur yrði kosinn formaður hins
skilningsríka samstarfsflokks Sjálf-
stæðisflokksins. En menn skildu
ekki sinn vitjunartíma. Því fór sem
fór að allt fór yfirum.
Er furða að áhrifamönnum verði
bumbult og kalli slíka skynvillinga
ógeðslega.
Og volaða landið hans séra
Matthíasar gekk aftur:
Volaða land,
horsælu hérvistar slóðir,
húsgangsins trúfasta móðir,
volaða land!
„Volaða land“
Stjórnmál
Sverrir
Hermannsson
fyrrverandi
alþingismaður
Um þessi heilindi og framsækni í fjár-
málum var Morgunblaðinu og ritstjóra
þess fullkunnugt, enda brauzt það um á
hæl og hnakka að Finnur yrði kosinn formaður hins
skilningsríka samstarfsflokks Sjálfstæðisflokksins. En
menn skildu ekki sinn vitjunartíma. Því fór sem fór
að allt fót yfirum.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI FRÓÐLEIKUR
Meiri Vísir.