Fréttablaðið - 01.10.2011, Síða 20
RÁÐSTEFNA UM D-VÍTAMÍN
Föstudaginn 21. október, kl. 08.30-13.00, á Reykjavík Natura
Nánari upplýsingar á www.heillheimur.is
Skráning á heillheimur@heillheimur.is eða í síma 864-0981
VERTU SÓLARMEGIN Í LÍFINU
8.30 Setning
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri hjá Landlæknisembættinu
8.40 Stutt og laggott í D dúr
8.45 D-vítamínbúskapur fullorðinna Íslendinga
Prófessor Gunnar Sigurðsson, yfirlæknir innkirtlasjúkdómad. LSH
9.15 ABC en ekkert D!
Kolbeinn Guðmundsson, sérfr. í efnaskipta- og innkirtlasjúkd. barna
9.45 Vitundarvakning á norðurslóðum
Anna Þóra Ísfold, meistaranemi í Lýðheilsuvísindum við HÍ
10.05 Morgunverður
10.30 Þarf að D-vítamínbæta íslensk matvæli?
Laufey Steingrímsdóttir, prófessor við matvæla- og næringarfr.deild HÍ
11.00 Er ég D í fortíð sé
Haraldur Magnússon, osteópati, B.Sc. (hons)
11.30 The D-lightful Vitamin D For Your Health
Dr. Michael F. Holick, Ph.D., M.D., Professor of Medicine,
Physiology and Biophysics at Boston University
12.30 Pallborðsumræður
13.00 Ráðstefnuslit
Fundarstjóri: Friðfinnur Hermannsson, EMPH og ráðgjafi hjá Capacent
Dr. Holick er margverðlaunaður fyrir rannsóknir sínar á
D-vítamíni og þykir einkar líflegur fyrirlesari.
The Vitamin D Solution - Dr. Holick
VINNINGAR AFHENTIR Í ELKO LINDUM. 149 KR/SKEYTIÐ.
MEÐ ÞVÍ AÐ TAKA ÞÁTT ERTU KOMINN Í SMS KLÚBB.
KOMIN Í BÍÓ!
SENDU SMS SKEYTIÐ
ESL ABD Á
NÚMERIÐ 1900
OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
BOÐSM
IÐI BOÐSMIÐI
VILTU
VINNA
MIÐA?
FULLT AF VINNINGUM:
BÍÓMIÐAR
TÖLVULEIKIR - DVD MYNDIR
GOS OG FLEIRA!
9. HVER
VINNUR!
FJÖLDI
AUKAVINNINGA
1. október 2011 LAUGARDAGUR
Hugurinn reikar mörg ár aftur í tímann þegar ég var
lítil stelpa og pabbi starfaði sem
lögreglumaður. Minningarnar
streyma fram. Ég man eins og það
hafi gerst í gær þegar hann var
keyrður heim af vinnufélögum
sínum, hann skalf svo mikið að
mamma þurfti að klæða hann úr
fötunum með hjálp þeirra. Þau
hjálpuðust svo að við að koma
honum ofan í heitt baðið því hend-
ur hans létu ekki að stjórn sökum
kulda. Ég varð hrædd en á sama
tíma stolt af pabba mínum því
hann hafði bjargað manni frá
drukknun. Maðurinn hafði ætlað
að svipta sig lífi og pabbi minn
lagði sig í hættu með því að stinga
sér á eftir honum út í sjó. Ég man
daginn sem pabbi kom heim eftir
nokkurra daga vinnu við að bjarga
fólki í Vestmannaeyja gosinu. Ég
man þegar við fjölskyldan þurft-
um að yfirgefa heimili okkar
vegna þess að okkur var hótað
lífláti, þá vann pabbi í fíkniefna-
deildinni.
Ég var nýkomin með bílpróf
þegar ég sótti litla bróður minn í
bíó. Þegar við komum að heimili
okkar hafði bíl verið ekið í gegnum
garðinn og á húsið okkar. Þarna
var veikur einstaklingur að verki,
hann var vopnaður hnífi og reyndi
að drepa pabba minn. Til allrar
hamingju var pabbi stór og sterk-
ur, náði að yfirbuga manneskjuna
og slapp með smá skurði. Ég var
í heimavistarskóla á þessum tíma
og dreymdi lengi á eftir að þessi
manneskja myndi elta mig uppi.
Á svipuðum tíma fengu foreldrar
mínir hótun um að yngri bróður
minn yrði drepinn, hann var þá sjö
ára. Ég man að mamma þurfti að
hætta að vinna því það mátti ekki
líta af honum.
Ég gekk með mitt fyrsta barn
þegar annar veikur einstakling-
ur bankaði upp á á heimili okkar.
Þegar ég kom til dyra var hurðinni
þrykkt upp og mátti minnstu muna
að ég fengi hurðina í magann en þá
var ég gengin með barnið á níunda
mánuð. Pabbi hafði reynt að hjálpa
þessum einstaklingi og þetta voru
fylgikvillarnir.
Pabbi hætti að starfa sem lög-
reglumaður þegar hann varð sex-
tugur (kannski sem betur fer því
mér er annt um heilsu hans) og
var þá kominn í yfirmannsstöðu.
Mánaðarlaun hans verða ekki
gefin upp hér en það var bæði
hægt að hlæja og gráta yfir þeim.
Systir mín útskrifaðist seinna
sem lögreglumaður. Ég man
þegar við ætluðum að kíkja út
á lífið saman fyrst eftir að hún
útskrifaðist. Við vorum ekki
komnar á dansgólfið þegar dauða-
drukkinn einstaklingur vatt sér
að henni og hellti yfir hana blóts-
yrðunum því að hún hafði stöðvað
hann fyrir of hraðan akstur. Ég
man líka þegar hún þurfti að bíða
lengi eftir niður stöðum úr blóð-
mælingu því að hún hafði verið
bitin af einstaklingi sem var með
lifrarbólgu.
Það er vafalaust mjög margt
gefandi við það að starfa sem
lögreglumaður en ég held að við
þurfum ekki að efast um það að
álagið er mikið hjá þessari stétt
og ekki aðeins á lögreglumönnum
sjálfum heldur fjölskyldum þeirra
líka. Ég lít upp til lögreglumanna
og styð þá af fullum hug í baráttu
sinni fyrir betri launakjörum.
Dóttir og systir lögreglumanna
Kjaramál
Sandra
Jónasdóttir
íþrótta- og
heilsufræðingur