Fréttablaðið - 01.10.2011, Side 21
LAUGARDAGUR 1. október 2011 21
Á tímum þegar fjölmiðlar hræða okkur upp úr skón-
um með vondum fréttum af fjár-
málamörkuðum og yfirvofandi
heimsendi er upplífgandi að fá
góðar fréttir öðru hvoru. Góðu
fréttirnar berast akkúrat núna
frá Þýskalandi þar sem haldið
er upp á dag þýskrar einingar,
þriðja október. Þar ríkir, þrátt
fyrir allt, bjartsýni. Samkvæmt
skoðanakönnun, sem Allens-
bach-stofnunin gerði fyrir tveim-
ur vikum, hafa Þjóðverjar ekki
verið jafn áægðir með lífið í
langan tíma.
Ánægjan er ekki úr lausu lofti
gripin, frekar en annað í samein-
uðu Þýskalandi. Árið 2002 kall-
aði tímaritið Economist Þýska-
land „hinn veika mann Evrópu“
því þar einkenndist allt af hiki
og ráðaleysi. Þjóðverjar væru
að missa af efnahagslestinni.
Átta árum síðar telst Þýskaland,
samkvæmt lista World Economic
Forum, vera eitt af samkeppnis-
hæfustu ríkjum heims. Þess má
raunar geta að svo skemmtilega
vill til að af tíu efstu ríkjum á
þessu lista eru sex Evrópusam-
bandsþjóðir: Svíþjóð, Danmörk,
Þýskaland, Finnland, Holland,
Bretland. Þegar samkeppnis-
hæfni er mæld er einkum miðað
við nýsköpun í atvinnulífinu, inn-
viði samfélagsins, menntakerfi,
atvinnu- og fjármálamarkað.
Þýskaland státar nú af einum
mesta hagvexti í Evrópu og
atvinnuleysi í september mæld-
ist 6,6%. Það hefur ekki verið
lægra í 20 ár. Til samanburðar
má geta þess að í Bandaríkjunum
er atvinnuleysi yfir 9%. Árang-
ur Þjóðverja hefur vakið mikla
athygli og eins og von er. Talað
er um nýtt Wirtschaftswunder,
nýtt efnahagsundur. Hið sam-
eiginlega Þýskaland er orðið að
fyrirmyndarlandi. Í erlendum
fjölmiðlum er ekki bara skrif-
að, af mikilli aðdáun, um þýsku
efnahagsvélina, sem er drifin
áfram af litlum og meðalstórum
fjölskyldufyrirtækjum, heldur
líka um hið félagslega jafnvægi
í Þýskalandi, lífsgæði og farsæla
pólitík sem snýst sífellt um það
að miðla málum.
Þar að auki er Þýskaland
rómað fyrir sitt öfluga menn-
ingarlíf. Höfuðborgin Berlín er
ein helsta menningar og mennta-
borg álfunnar. Jafnvel þótt víðar
væri leitað. Margt bendir til að
Berlín sé að taka við New York
sem höfuðstaður skapandi lista
í heiminum. Og Þýskaland er
orðið eitt stærsta ferðamanna-
land í heimi. Á síðasta ári komu
þangað 60 milljónir ferðamenn.
Allt þetta hefur orðið til þess
að til Þýskalands liggur nú stríð-
ur straumur fólks alls staðar úr
heiminum, en einkum frá Spáni
og Ítalíu, sem vill læra þýsku og
reyna svo fyrir sér. Meirihlut-
inn er stúdentar eða menntafólk
sem hefur annað hvort misst
vinnuna eða óttast að það gerist:
verkfræðingar, arkitektar, efna-
fræðingar, lögfræðingar, tölvun-
arfræðingar.
Í nýjasta tölublaði af Die Zeit
er ítarleg umfjöllun um Þýska-
land sem fyrirheitna landið. Þar
er meðal annars rætt við Lauru
Lucchini sem er 33 ára og flutti
frá Tórínó til Berlín fyrir þrem-
ur árum. Hún segist ekki hafa
séð neina framtíð á Ítalíu því
landinu sé stjórnað af körlum á
sjötugsaldri. Ungar konur hafi
þar ekkert opinbert hlutverk
nema sem „Berlusconi-dúkkur“.
Í Þýskalandi segist hún njóta
frelsis og öryggis. Hún talar um
félagslegt jafnvægi og þá til-
finningu að í Berlín snúist ekki
allt um atvinnu og það að lifa af,
heldur um gott líf. Þýskir Zeit-
lesendur hljóta að hafa glaðst
yfir því að Ítali flytji til Þýska-
lands í leit að góðu lífi til að
njóta.
Að sjálfsögðu hefur hinn
ótrúlegi árangur Þjóðverja, á
þeim tuttugu árum sem sam-
einað Þýskaland hefu verið til,
ekki orðið til af sjálfum sér.
Í frægri sjónvarpsræðu sem
Helmuth Kohl hélt 1990, þar
sem hann kynnti meðal ann-
ars sameiginlegan gjald miðil í
aðdraganda sameiningar þýsku
ríkjanna, sagðist hann sjá
fyrir sér „blómstrandi lands-
lag“ (blühende Landschaften)
í Austur-Þýskalandi og Þýska-
landi öllu. Óhætt er að segja að
það hafi gengið eftir, þótt leiðin
hafi verið þyrnum stráð á köflum
og seinfarin.
Margir rekja efnahagsundrið
þýska meðal annars til rótækra
umbóta, Agenda 2010, á atvinnu-
markaði og í hinu félagslega
kerfi. Stjórn Schröders og Fisch-
ers kom þeim á árin 2004 og
2005. Þær miðuðu að því að gera
þýskt atvinnulíf sveigjanlegra
og samkeppnishæfara. Þaðan
var meðal annars tekin upp sú
stefna, ættuð frá New Deal-kenn-
ingu Roosevelts, að farsælla sé að
hafa fólk í ríkisstyrktum hluta-
störfum en alfarið atvinnulaust
á bótum.
Annar lykill að efnahags-
undrinu er sú mikla rækt sem
Þjóðverjar hafa lagt við iðn-
fyrirtæki og háþróaða fag-
menntun. Það hefur skapað ótal
þýskum fyrirtækjum mikið for-
skot á heimsmarkaðnum. Þjóð-
verjar létu aldrei ginnast af
þeirri hugmynd að hægt væri að
halda uppi heilu þjóðfélögunum
með fjármálaviðskiptum.
Í þriðja lagi hafa Þjóðverjar
verið tilbúnir að leggja á sig sam-
eiginlegar byrðar þegar á þurfti
að halda: skattahækkanir, brems-
ur á launahækkanir, hlutstörf í
stað 100% starfa.
Vandi þýskra stjórnvalda snýst
ekki lengur um sam einingu þýsku
ríkjanna og afleiðingar hennar,
heldur um hlutverk Þjóðverja
í heiminum. Þeim er ætlað að
bjarga skuldsettum ríkjum og
evrunni en eru í leiðinni þeir
sífellt minntir á að þeir eigi að
halda sig sem mest til baka og
að þeir megi ekki ráða neinu.
Umræðan er á köflum mótsagna-
kennd og fjandsamleg. Það er
erfið staða að vera í. Um leið og
Þjóðverjum er óskað til hamingju
með einingardaginn, skal á það
minnt að Þjóðverjar eru ein raun-
besta vinaþjóð Íslendinga ásamt
Norðurlandaþjóðunum. Íslending-
ar ættu að rækta þann vinskap.
Viltu miklu
hraðara Internet?
Á siminn.is sérðu
hvort Ljósnetið er
komið til þín.
Áskriftarleiðir Símans eru hraðar og öruggar. Netvarinn
fylgir með þeim öllum og möguleiki á Sjónvarpi Símans.
Hringdu núna í 800 7000 og veldu þína leið.
Internet hjá Símanum
Mánaðarverð
4.490 kr.
Mánaðarverð
5.490 kr.
Mánaðarverð
6.490 kr.
Leið 1
10GB
Leið 2
40GB
Leið 3
80GB
Leið 4
140GB
Mánaðarverð
7.690 kr.
112Mb • 10GB
212Mb • 40GB
312Mb • 80GB
416Mb • 140GB
Vinsælasta
leiðin
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
8
3
13
Netvarinn tryggir öryggi
barna á netinu og verndar
þau gegn óvæntum hryllingi
Þýskaland – blómstrandi landslag
Þýskaland
Hjálmar
Sveinsson
borgarfulltrúi