Fréttablaðið - 01.10.2011, Blaðsíða 42
Þessi sýning er að frumkvæði leik-
hópsins Leikur einn, sem er nú
eiginlega bara ég,“ segir Sigurður
Skúlason leikari um eigin einleik,
Hvílíkt snilldarverk er maðurinn,
sem hann frumsýnir í Þjóðleikhús-
kjallaranum á sunnudagskvöld.
„Aðdragandinn er orðinn lang-
ur. Ég hef lengi gengið með þá hug-
mynd að vinna með texta Shake-
speares og á síðustu mánuðum og
misserum þróaði ég hugmyndina í
samstarfi við leikstjórann, Bene-
dikt Árnason. Við lögðumst yfir
Shakespeare og lásum fjöldann
allan af leikritum og pældum í ein-
tölum og senum. Annars vegar út
frá því að ná að spanna mannsæv-
ina frá vöggu til grafar, taka fyrir
æskuna og síðan ferðina í gegnum
ást, metnað, stríð og átök allt fram
í elli og dauða. Það kemur þarna
fyrir alls konar fólk af báðum
kynjum og öllum stigum þjóð-
félagsins og við skoðum hvern-
ig þetta fólk tekst á við lífið og
aðstæður sínar. Hinn útgangs-
punkturinn er sá að draga upp
mynd af lífinu sem leikhúsi, enda
var það Shakespeare hug leikið
að líkja lífinu við leikhús. Þetta
tvennt vefst saman í sýningunni
og vinnslu handritsins.“
Sigurður vefur texta úr ólík-
um verkum Shakespeares saman
í samhangandi frásögn. „Það eru
náttúrulega fjölmörg brot, bæði
eintöl, heilar senur, brot og stak-
ar setningar sem er sett í þetta
samhengi. Ég leik ýmsar og ólík-
ar persónur og um leið er ég sögu-
maður sem gefur örlitla innleið-
ingu í senurnar.“
Sýningin er samstarfsverkefni
leikhópsins Leikur einn og Þjóð-
leikhússins, sýnd í Þjóðleikhús-
kjallaranum og hefst klukkan
19.30. fridrikab@frettabladid.is
Spanna ævina
frá vöggu til grafar
Hvílíkt snilldarverk er maðurinn nefnist nýr einleikur Sigurðar Skúla-
sonar og Benedikts Árnasonar, byggður á verkum Shakespeares.
Sigurður Skúlason bregður sér í fjölmörg hlutverk í einleiknum Hvílíkt snilldarverk er
maðurinn.
02
6
6
3
AFMÆLISHÁTÍÐ
TÖSKU- OG HANSKABÚÐIN
FAGNAR 50 ÁRA AFMÆLI SÍNU
Tösku og hanskabúðin • Skólavörðustíg 7 • 101 Reykjavík • Sími 551 5814 • www.th.is
afsláttur af öllum vörum vikuna 1.–8. október
HAPPDRÆTTI
Kaffi og konfekt í tilefni dagsins.
Heppinn viðskiptavinur vinnur
glæsilega ferðatösku.
Sérstakur 50% afmælisafsláttur a
Fæst í Bónus og Inspired,
Keflavíkurflugvelli
HOLLUR
BITAFISKUR
+ 80% prótín
Fiskneysla er góð
fyrir heilabúið
Opið mán - fös 10-18, laugardaga 10-16
www.topphusid.is
Mörkinni 6 - Sími 588 5518
NÆG BÍLASTÆÐI
TOPPVÖR
UR • TOP
PÞJÓNUS
TA
Nýkomnar í úrvali
úlpur og kápur
Dún -og vattkápur 50% afsl.
Lummur með sírópi heyra til á laugardags- og sunnudagsmorgnum.
Þær eru fljótlegar, einfaldar og ómótstæðilegar. Blandið 2 dl af hveiti,
1 msk. sykri, 1 tsk. lyftidufti, tsk. salti, 1 dl haframjöli, 2½ dl mjólk, 2
msk. olíu og 1 eggi í skál, steikið í litlum skömmtum og njótið.
Leoncie segir margar þeirrar skoðunar
að Ást á pöbbnum sé hennar besta
íslenska lag, en sjálf hefur hún mest
dálæti á Enginn trekantur hér og Litla
sjóaranum sem hún gerir myndband við
um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/EINAR ÓLASON
ég sjálf, eins og Guð skapaði mig.
Hins vegar er óréttlátt að útiloka
mig af þeirri einu ástæðu að ég er
hæfileikaríkur útlendingur,“ segir
Leoncie og bætir við:
„Í dag er ég sterk og gef lítið
fyrir álit annarra. Fólk hefur
enda aldrei náð að kynnast pers-
ónu minni. Það hefur dæmt mig án
þess að gefa mér séns.“
En hvern mann hefur Leoncie þá
að geyma?
„Ég er gefandi, örlát og heiðar-
leg manneskja, og mjög góður
vinur vina minna. Verði ég vör
við óréttlæti breytist ég í tígris-
dýr. Misskilningur um mig er
allur vegna útlits míns en ég kom
með glamúr og litadýrð frá öðrum
menningarheimi. Af því að ég var
ekki hvít, bláeygð og ljóshærð var
ég strax lögð í einelti vegna öðru-
vísi útlits, hæfileika og bjagaðr-
ar íslensku. Íslendingar láta útlit
fólks þvælast of mikið fyrir sér og
þeir sem Guð skapaði öðruvísi en
Íslendinga eiga þar erfitt líf,“ svar-
ar Leoncie í einlægni.
En hefur hún eignast góðar vin-
konur á Íslandi í gegnum tíðina?
„Nei, ég hef aldrei eignast
íslenskar vinkonur. Þær hafa allt-
af verið afbrýðisamar og hrædd-
ar um mennina sína nálægt mér.
Þó hef ég verið gift kona í næst-
um þrjá áratugi. Það er erfitt að
eiga vinskap þeirra sem haldnir
eru minnimáttarkennd, en hennar
vegna vildu þær ekki kynnast mér
í raun og eignast í mér góðan vin.“
thordis@frettabladid.is
Framhald af forsíðu
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
FRÉTTI FRÉTTIRÉ TIR VIÐSKIPTI ÍÞ TIR LÍFIÐ UMRÆÐAN