Fréttablaðið - 01.10.2011, Side 53
LAUGARDAGUR 1. október 2011 9
Borgartúni 21 | 105 Reykjavík | Sími : 569 6900, 800 6969
www.ils.is
Menntunar- og hæfniskröfur
• Löggilding til sölu fasteigna
• A.m.k. 5 ára reynsla af fasteignasölu
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Sjálfstæði í vinnubrögðum
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
• Góð samskiptahæfni og metnaður
til að takast á við krefjandi verkefni
• Góð færni í excel og word
Starfssvið
• Sölumeðferð fullnustueigna Íbúðalánasjóðs
• Fylgjast með verðþróun á fasteignamarkaði
• Verðmat fasteigna
• Samskipti við fasteignasölur
• Þátttaka í eftirliti og umsjón fasteigna
• Önnur tilfallandi verkefni
Íbúðalánasjóður óskar eftir að ráða sérfræðing
í fasteignaviðskiptum. Viðkomandi mun starfa
á eignasviði sjóðsins.
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is
Upplýsingar veitir Brynhildur Halldórsdóttir (brynhildur@hagvangur.is)
Umsóknarfrestur er til og með 15. október
Sérfræðingur í
fasteignaviðskiptum
Tilgangur Íbúðalánasjóðs er að stuðla að því
með lánveitingum og skipulagi húsnæðismála
að landsmenn geti búið við öryggi og jafnrétti
í húsnæðismálum og að f jármunum verði
sérstaklega varið til þess að auka möguleika
fólks til að eignast og leigja húsnæði á við-
ráðanlegum kjörum.
Starfsmannastefna Íbúðalánasjóðs tekur mið
af jafnréttisáætlun. Umsóknir gilda í 6 mánuði
ef ráðið verður í önnur störf á þeim tíma.
Starfskjör eru í samræmi við kjarasamning ríkisins við viðkomandi stéttarfélag. Öllum umsóknum
verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Innanríkisráðuneytið auglýsir lausa til umsókn-
ar stöðu lögfræðings á skrifstofu almanna-
öryggis. Helstu verkefni eru stjórnsýsluverke-
fni, lagafrumvörp, reglugerðir og stefnumótun
um málefni skrifstofunnar.
Umsækjendur skulu hafa lokið embættis- eða
meistaraprófi í lögfræði og er æskilegt að þeir hafi
starfsreynslu á sviði lögfræði. Jafnframt er æskilegt
að umsækjendur búi yfir þekkingu og reynslu á sviði
stjórnsýslu.
Gerð er krafa um að viðkomandi hafi skipulags-
hæfileika, geti unnið sjálfstætt, sé sveigjanlegur og
hafi hæfni til að vinna undir álagi. Auk þess er gerð
krafa um hæfni í mannlegum samskiptum og góða
færni og kunnáttu í íslensku.
Um fullt starf er að ræða. Laun greiðast samkvæmt
kjarasamningi Félags háskólamenntaðra starfsmanna
stjórnarráðsins og fjármálaráðherra.
Karlar jafnt sem konur eru hvattar til að sækja um
auglýst starf.
Nánari upplýsingar veitir Þórunn J. Hafstein
skrifstofustjóri í síma 545 9000
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu liggur fyrir.
Umsóknarfrestur er til og með 16. október 2011.
Umsóknir skulu berast á netfangið postur@irr.is
eða til innanríkisráðuneytis, Sölvhólsgötu 7 , 150
Reykjavík.
Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6
mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, með vísan
til 3. tl. 2. mgr. 2. gr. regla nr. 464/1996 um auglýsingar
á lausum störfum, með síðari breytingum, sem settar
eru samkvæmt heimildi í 2. mgr. 7.gr. laga nr. 70/1996
um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Microsoft sérfræðingur
Síðumúla 5, 108 Reykjavík
Sími 511 1225 Fax 511 1126
www.intellecta.is
Umsóknarfrestur er til og með 11. október nk. Nánari upplýsingar um starfið veita Torfi Markússon (torfi@intellecta.is) og Ari Eyberg
(ari@intellecta.is) hjá Intellecta í síma 578 1145. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is. Allar umsóknir og fyrirspurnir verða
meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og þeim svarað.
Fjölnet ehf. er eitt elsta Internetþjónustu-
fyrirtæki landsins með sögu sem nær allt til
ársins 1999. Í dag er fyrirtækið í hópi fimm
stærstu hýsingar- og internetfyrirtækja á
landinu með stóran og fjölbreyttan hóp
fyrirtækja í viðskiptum.
Fjölnet ehf. er í eigu Tengils ehf. sem hefur
starfað í yfir 20 ár. Hjá Tengli starfa yfir 40
starfsmenn og er fyrirtækið með starfsemi á
þremur stöðum á landinu.
Nánari upplýsingar um fyrirtækið má finna
á heimasíðu þess www.fjolnet.is
Fjölnet ehf. á Sauðárkróki óskar eftir að ráða Microsoft sérfræðing til starfa
Í starfinu felst rekstur miðlægra tölvukerfa, bæði innri- og hýsingarumhverfa, ásamt samskiptum og samvinnu við
viðskiptavini
Menntunar- og hæfniskröfur
• Mjög góð þekking á Microsoft stýrikerfum er nauðsynleg og Microsoft vottun t.d. MCSE eða MCITP er æskileg
• Lágmark 3 ára reynsla af rekstri, hönnun og uppsetningu tölvukerfa
• Afbragðs þjónustulund, sjálfstraust til að vinna verkefni frá upphafi til enda ásamt hæfileikum til að starfa með öðrum
• Þekking á MS Exchange, Windows 2008 R2, Terminal Server, MS Lync, MS SharePoint 2010, Powershell, MS SQL, og IIS
er kostur
sími: 511 1144