Fréttablaðið - 01.10.2011, Síða 86

Fréttablaðið - 01.10.2011, Síða 86
1. október 2011 LAUGARDAGUR54 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Laugardagur 1. október 2011 ➜ Tónleikar 17.00 Ungfónían heldur hausttónleika í Langholtskirkju. Einleikari er klarínettu- leikarinn Sigurjón Bergþór Daðason og stjórnandi er Gunnsteinn Ólafs- son. Aðgangseyrir er kr. 2.000 en kr. 1.500 fyrir námsmenn, öryrkja og eldri borgara. 19.00 Tónleikatvenna á Gauki á stöng með hljómsveitunum Angist, Moment- um og Moldun. Fyrri hefjast kl. 19 og eru fyrir alla aldurshópa. Seinni byrja kl. 23.30 og er 18 ára aldurstakmark. Miðaverð er kr. 1.000. 20.00 Tónleikarnir Nýdönsk í nánd verða haldnir í Samkomuhúsinu á Akur- eyri. Miðaverð er kr. 3.900. 20.00 Helgi Björns og Reiðmenn vind- anna halda tvenna tónleika á Græna hattinum. Fyrri hefjast kl. 20 en seinni kl. 23. Miðaverð er kr. 2.900. 20.00 Hera Björk ásamt Ragnari Bjarnasyni og Bjarna töframanni flytja lög sem mömmur sungu á 6. og 7. ára- tugnum. Tónleikarnir fara fram í Salnum og miðaverð er kr. 3.500. 20.30 Bubbi Morthens heldur tónleika í kirkjunni á Húsavík. Miðaverð er kr. 2.500. 21.00 Trúbadorahátíð á Ob-La-Dí-Ob- La-Da Frakkastíg 8. Kormákur Bragason, Magnús Einarsson, Jakob Frímann Magnússon, Gunnar Þórðarson og Hjalti Þorkelsson koma fram. Aðgangseyrir er kr. 1.000. 21.00 Slóvensk-austuríska tvíeykið Vortex Project leikur eigin verk í Hafnar- húsinu á Sláturtíð á vegum S.L.Á.T.U.R. Aðgangur er ókeypis. 23.00 Hljómsveitin Gullkistan stígur á svið á Kringlukránni og spilar gamla gullmola rokksögunnar. Þessa nýju hljómsveit skipa Ásgeir Óskarsson, Gunnar Þórðarson, Jón Ólafsson og Óttar Felix Hauksson. Miðaverð er kr. 1.500. 23.30 Friðrik Ómar fagnar 30 ára afmæli sínu í Hofi. Uppselt er á tvenna tónleika í kvöld og hefur hann bætt við aukatónleikum á miðnætti. Gestir eru þau Regína Ósk, Jógvan Hansen og Guðrún Gunnarsdóttir. Miðaverð er kr. 4.500. 23.59 Hljómsveitin Vax leikur á Spot. Ásamt þeim koma fram Creedence Traveling Band, Magni og Tommi Tomm. Aðgangseyrir er kr. 2.000. ➜ Leiklist 14.00 Sirkus Íslands sýnir fjöl- skyldusýninguna Ö-Faktor í Tjarnarbíói. Miðaverð er kr. 1.900. 20.00 Leiksýningin Alvöru menn í leik- stjórn Gunnars Helgasonar er sýnd í Austurbæ. Miðaverð er kr. 3.500. 20.00 Nemendaleikhús Listaháskóla Íslands sýnir Á botninum eftir Maxim Gorkí í Smiðjunni, Sölvhólsgötu 13. Leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson. Miðaverð er kr. 1.500. 22.00 Pörupiltar og tvíeykið Viggó og Víóletta sýna leiksýninguna Uppnám í Leikhúskjallaranum. Miðaverð er kr. 2.900. ➜ Fræðsla 09.00 Atvinnu- og nýsköpunarhelgi á Suðurnesjum fer fram um helgina í húsnæði Keilis á Ásbrú og þátttaka er ókeypis. Nánari upplýsingar á anh.is. ➜ Síðustu Forvöð 12.00 Tómas R. Einarsson og Gunnar Gunnarsson leika tónlist í Kirsuberjatrénu, Vesturgötu 4, á sýningu Sigurborgar Stefánsdóttur sem lýkur á mánudag. ➜ Hátíðir 13.00 AUS, alþjóðleg ungmennaskipti fagna 50 ára afmæli samtakanna í Ráð- húsi Reykjavíkur. Meðal skemmtiatriða er dans frá mörgum heimshornum og tónleikar með hljómsveitunum Multi Musica og Skuggamyndum frá Býsans. Allir velkomnir. ➜ Listahátíð 14.00 Setning menningar- og listahá- tíðar Seltjarnarness í Seltjarnarneskirkju. Trompetissimo, nýtt verk eftir Kára Hún- fjörð Einarsson verður frumflutt. ➜ Málþing 13.00 Afmælismálþing Sagnfræðinga- félags Íslands fer fram í stofu 132 í Öskju í Háskóla Íslands. ➜ Kvikmyndahátíð 12.00 Kvikmyndahátíðin RIFF stendur fyrir smiðjum um óháða kvikmyndagerð á Kexi Hosteli. Tvær fara fram í dag. Fyrri ber heitið How Film Festivals Work með Giorgio Gosetti og Helgu Stephenson og hefst kl. 12. Seinni ber heitið The Art of Pitching Your Film með Valeska Neu, Gabor Greiner og Snorra Þórissyni kl. 14.15. 12.00 Myndir úr stuttmyndasmiðju grunnskólanna sýndar í Bíói Paradís. 15.00 Skaftfell á Seyðisfirði og Slátur- húsið á Egilsstöðum sýna fjórar heim- ildarmyndir dagana 1. og 2. október í samvinnu við RIFF. Sýningar fara fram kl. 15 og kl. 17 báða dagana. Aðgangseyrir er kr. 500. Aðgangur á allar myndirnar er kr. 1.500. 16.00 Málþing í Háskóla Íslands með hinum heimsþekkta vísindamanni David Suzuki. Á málþinginu rekur hann ævisögu hugmynda sinna og fer það í stofu 105 á Háskólatorgi Háskóla Íslands. ➜ Uppistand 20.00 Charlie Murphy með uppistand í Eldborg í Hörpu. Miðaverð er kr. 6.500. ➜ Tónlist „Ef fólk er á annað borð búið að borga sig inn til að hlæja, hvar sem er á landinu, þá er það gott,“ segir leikkonan Anna Svava Knútsdóttir. Anna Svava og Hugleikur Dagsson hafa ferðast um landið undanfarna daga með uppi- stand. Fyrr í vikunni voru þau á Húsavík og í gær komu þau fram á Akureyri. Í kvöld koma þau svo fram í Þorlákshöfn og ferða lagið endar í Reykjavík á sunnudagskvöld á Café Rosenberg klukkan 21. Anna segir vel hafa gengið á Húsavík og að hún og Hugleikur hafi verið mjög fyndin. „Það mættu bara ógeðslega fáir,“ segir hún, en bætir við að það hafi verið stutt í mánaðamót og það hafi mögulega spilað inn í. „En þetta er mjög gaman og það er mjög gaman fyrir okkur að vera saman,“ segir Anna áður en Hugleikur virðist hafa gripið orðið þar sem hann situr í órafjarlægð frá símtækinu. Hann tekur því við símanum. „Maður fær mjög sjaldan eitthvað upp úr henni. Hún talar svo hratt,“ segir Hugleikur en bætir við að hann telji að Anna sé Sarah Silver- man Íslands og hann sjálfur sé Louis CK Íslands. „Ég er svo gömul sál. Og rauð- hærður að innan.“ Anna og Hulli á ferð og flugi RÚNTA UM LANDIÐ Anna Svava og Hug- leikur hafa komið víða fram undanfarna daga og verða á Rosenberg á morgun klukkan 21.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.