Fréttablaðið - 01.10.2011, Page 92
1. október 2011 LAUGARDAGUR60
Hreyfill / Bæjarleiðir er styrktaraðili
árveknisverkefnis Krabbameinsfélagsins.
Með hverri pantaðri ferð styrkir þú verkefni Krabbameins-
félagsins til að berjast gegn krabbameini hjá konum.
Af því tilefni höfum við sérmerkt bílana okkar enn á ný með
bleikum taxaljósum og munu bílstjórarnir taka fagnandi á móti þér.
Taktu bleikan bíl
næst flegar flú
pantar leigubíl!
„Bleika slaufan” er til sölu í bílunum okkar frá 1. – 15. október.
Ökum
undir
bleikum
merkjum
enn á n‡
í október og
nóvember
Chris Cornell, söngvari rokk-
sveitarinnar Soundgarden, segist
hvorki kunna að lesa né skrifa
nótur. Hann sér eftir því að hafa
ekki haldið áfram með píanónám
sitt þegar hann var lítill. „Ég
lærði að lesa nótur þegar ég var
tíu ára og var í píanónámi. Því
miður var ég týndur í náminu.
Mér leið eins og ég væri í skóla.
Þetta var bara enn eitt fagið fyrir
mér. Ég átti líka frekar grimm-
an píanókennara,“ sagði Cornell.
Hann reyndi að byrja að læra
nótur aftur þegar hann var kom-
inn á þrítugsaldur en fannst það
mjög erfitt og hætti.
Erfitt að læra
nóturnar
ENGINN NÓTNAMAÐUR Söngvari
Soundgarden kann hvorki að lesa né
skrifa nótur.
Tvöföld plata með tónlist Bítlanna
og enska söngvarans Tony Sher-
idan verður gefin út í nóvember.
Útgáfan nefnist The Beatles with
Tony Sheridan: First Recordings.
Bítlarnir spiluðu með Sheridan
eftir að tónlistar mógúllinn Bert
Kaempfert uppgötvaði hljóm-
sveitina á tónleikum á nætur-
klúbbi í Hamborg árið 1961. Pete
Best spilar á trommur á plötunni
og á meðal laga eru Ain´t It Sweet
sem John Lennon syngur og Cry
for a Shadow sem er ósungið og
er eftir gítar leikarann George
Harrison.
Tvöföld plata
frá Bítlunum
BÍTLARNIR Tvöföld plata með Bítlunum
og Tony Sheridan er væntanleg.
Leikkonan Eva Longoria deilir
fyrsta sæti lista tímaritsins Forbes
yfir best launuðu leikkonurnar í
sjónvarpi, með gamanleikkonunni
Tinu Fey úr 30 Rock þáttunum.
Longoria, sem leikur hina fögru
Gabrielle í Aðþrengdum eiginkon-
um, vann sér inn um einn og hálf-
an milljarð á síðasta ári.
Þess bera að geta að allar fjór-
ar aðalleikkonur þáttanna sitja í
fyrstu tíu sætum listans en þætt-
irnir njóta gríðarlegra vinsælda
um allan heim og er áttunda serí-
an nýfarin í loftið í Bandaríkjun-
um.
Leikkonan Marcia Cross sem
leikur hina snyrtilegu Bree í
þáttunum er í þriðja sæti listans
en Teri Hatcher og Felicity Huff-
man sitja saman í sjötta sæti.
Vellaunaðar leikkonur
Á TOPP TÍU Eva Longoria, Teri Hatcher,
Marcia Cross og Felicity Huffman eru
allar meðal tíu launahæstu leikkvenna í
sjónvarpsgeiranum.
Ofurfyrirsætan Gisele Bündchen
hefur valdið ákveðnum usla í
heimalandi sínu, Brasilíu, með nýj-
ustu auglýsingaherferð nærfata-
merki síns, Hope. Auglýsingarnar
þykja ýta undir kynjamisrétti og
sýna konur í röngu ljósi.
Í auglýsingunum má sjá konu á
nærfötunum reyna að fá eiginmann
sinn til að fyrirgefa henni fyrir að
hafa eytt of miklu á kredit kortinu,
klesst bílinn og leyft tengdamóður-
inni að búa hjá þeim. Einkunnarorð
auglýsinganna eru svo „Þú ert bras-
ilísk kona – notaðu sjarmann“.
„Herferðin hlutgerir konur kyn-
ferðislega fyrir karlmönnum og
sýnir kynin sem gamaldags stað-
almyndir. Hún hjálpar líka til við
að rífa niður alla þá jafnréttis-
vinnu sem við höfum gert síðustu
ár,“ segir talsmaður aðalskrifstofu
samtaka kvenna í Brasilíu, en henni
hafa borist fjölmörg símtöl og bréf
frá reiðum konum í Brasilíu.
Gisele Bündchen tekur þessu
hins vegar létt og segir herferð-
ina vera saklaust grín en íhugar
að draga hana til baka þar sem hún
vill ekki styggja viðskiptavini sína,
konur í Brasilíu.
Gisele reitir samlanda sína til reiði
STYGGIR VIÐSKIPTAVININA Auglýsinga-
herferð Gisele Bündchen er í uppnámi
en hún þykir hlutgera konur og sýna
þær í röngu ljósi. NORDICPHOTOS/GETTY